Læknablaðið - 15.12.1999, Page 63
LÆKNABLAÐIÐ 1999; 85
993
Háskóli íslands
Ég sé ekkert neikvætt við að fyrirtæki
kosti kennarastöður við skólann
- segir Páll Skúlason háskólarektor
Páll Skúlason háskólarektor með málverk eftir Karl Kvaran í baksýn.
Fyrir skömmu var frá því
greint í fréttum að lyfjafyr-
irtækin Pharmaco og Isaga
hefðu tekið höndum saman
um að kosta stöðu prófess-
ors í svæfinga- og gjörgæslu-
lækningum við læknadeild
Háskóla íslands. Við það
tækifæri kom fram að slík-
um kostunarsamningum hef-
ur fjölgað talsvert á undan-
förnum árum og hafa orðið
til þess að 14 nýjar kennara-
stöður hafa orðið til við skól-
ann, þar af rúmur helming-
ur við læknadeild eins og
fram kemur í meðfylgjandi
yfirliti.
Viðbrögð margra við þess-
um fréttum voru þau að velta
fyrir sér hvort Háskóli Islands
væri kominn út á hála braut
með slíkum samningum, hvort
hann væri að stefna í voða
sjálfstæði sínu og vísindanna.
Einnig var spurt um siðferði-
lega stöðu þeirra kennara sem
stöðunum gegna. Læknablað-
ið bað því Pál Skúlason há-
skólarektor að svara nokkrum
spumingum um þetta efni og
varð hann góðfúslega við því.
Fyrsta spurningin var á þá
leið hvernig svona kostunar-
samninga ber að. Er Háskól-
inn sérstaklega á höttunum
eftir styrktaraðilum eða er að-
sókn eftir því að kosta kenn-
arastöður þar?
„Nei, við berum okkur ekki
sérstaklega eftir því að koma á
svona samningum. Þetta kem-
ur yfirleitt upp í samskiptum
einstakra kennara eða deilda
við fyrirtæki. Það er ekki
stefna Háskóla Islands að afla
slíkra samninga með skipu-
lögðum hætti. Þessir samning-
ar geta verið með ýmsum
hætti, bæði þessir beinu kost-
unarsamningar og eins hitt að
fyrirtæki styrki tiltekin verk-
efni en á móti lætur Háskólinn
búa til stöðu.“
Eins og allar aðrar
stöður
- Hvaða skilyrði setur Há-
skóli Islands þeim fyrirtækj-
um sem kosta kennarastöður?
„Fyrirtækin hafa engin af-
skipti af því hvemig ráðið er í
þessar stöður. Þær em auglýst-
ar eins og allar aðrar stöður og
ráðið í þær samkvæmt gildandi
reglum um dómnefndir og
hæfnismat. Fyrirtækin koma
hvergi nálægt því. Þessir
kennarar hafa sömu stöðu og
aðrir kennarar við skólann enda
eru þeir starfsmenn Háskólans
en ekki þessara fyrirtækja.
Þegar fyrirtæki setur fram
óskir um að kosta stöðu í til-
tekinni grein þá er fyrst athug-
að hvort sú staða og þær rann-
sóknir og fræðsla sem henni
fylgja tengist einhverju öðra
sem við erum að gera. Hún
verður að vera í samhengi við
þá starfsemi sem fyrir er og
talin æskileg af viðkomandi
fræðasviði. Styrkur Háskólans
er sá að á hverju sviði er hópur
af fólki að vinna saman. Við
erum ekki að ráða einstaklinga
sem vinna á þröngu sviði án
tengsla við annað sem er að
gerast. Tengslin milli manna
skipta öllu máli.“
- En hvernig bregst skólinn
við ósk fyrirtækis um að
stofna stöðu á einhverju sviði
sem þið teljið ekki þörf á?