Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.12.1999, Síða 75

Læknablaðið - 15.12.1999, Síða 75
LÆKNABLAÐIÐ 1999; 85 1003 Ný viðhorf í barna- og unglingageðlækningum - Evrópusamtök barna- og unglingageðlækna gefa út yfirlitsrit um stöðu greinarinnar í 31 Evrópulandi, þar á meðal íslandi Nú á haustdögum sótti Helga Hannesdóttir þing Evrópusamtaka barna- og unglingageðlækna í Ham- borg í Þýskalandi. Þessi þing eru haldin á fjögurra ára fresti en þau sækja barna- og unglingageðlæknar úr allri Evrópu og víðar að. Kjörorð þingsins að þessu sinni var: Ný viðfangsefni, nýjar lausnir. Að þessu sinni var hápunkt- ur þingsins útkoma bókar þar sem greint er frá stöðu barna- og unglingageðlækninga í 31 Evrópulandi, þar á meðal ís- landi en Helga skrifaði þann kafla. Þar eru samankomnar á einn stað miklar upplýsingar um stöðu og skipulag þessarar ungu sérgreinar í álfunni en barna- og unglingageðlækn- ingar hlutu viðurkenningu sem sérgrein innan læknavís- indanna árið 1993. Helga sagði að það hefði vakið athygli á þinginu að ís- land væri eina Evrópulandið þar sem ekki væri sjálfstæð kennslustaða í barna- og ung- lingageðlækningum. „Við læknadeild Háskóla íslands hefur verið auglýst 25% staða lektors í þessari grein og því fylgdi sú yfirlýsing að hún yrði fjármögnuð með því að taka fé frá kennslu í geðlækn- ingurn fullorðinna. Þetta skýt- ur skökku við það sem er að gerast í öðrum löndum en þar eru barna- og unglingageð- lækningar ásamt fjölskyldu- geðlækningum vaxtarbroddur geðlækninga. Hér á landi er þróunin allt önnur því hér eru geðlækningar fyrir fullorðna allsráðandi," sagði Helga. Hún bætti því við að á ráð- stefnunni hefði komið skýrt fram hversu mikil gerjun og breytingar væru að verða á störfum barna- og unglinga- geðlækna í álfunni. „Annars vegar eru það rannsóknir á sviði erfðafræði sem setja mark sitt á þróun greinarinnar. Þarna voru birtar niðurstöður margra rannsókna á samspili erfða og umhverfís í þróun geðsjúkdóma. Hins vegar eru uppi ný við- horf til meðferðar geðsjúkra. Þar er verið að auka sveigjan- leika og og brjóta niður múra milli sérgreina. Samvinna hinna mörgu fagstétta sem sinna þjónustu við geðsjúka er að aukast og það eykur fjöl- breytni meðferðarinnar sem í boði er, auk þess sem hún spornar gegn tvíverknaði og sóun á kröftum og peningum," sagði Helga Hannesdóttir barna- og unglingageðlæknir. -ÞH Áskrifendur Læknablaðsins sem ekki greiða áskriftargjald með félagsgjaldi til LÍ Einhverjir áskrifenda munu enn eiga ógreidda reikninga fyrir áskrift að Læknablaðinu árið 1999. Eru þeir beðnir að greiða það hið fyrsta. Áskrift innanlands er kr. 6.840 en fyrir áskrifendur erlendis kr. 6.0C0, þar sem þeir greiða ekki virðisaukaskatt. Reikningar fyrir áskrift ársins 2000 verða sendir út í janúar, enda reiknað með því að áskrift sé greidd fyrirfram.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.