Dagblaðið Vísir - DV - 11.05.2007, Side 2

Dagblaðið Vísir - DV - 11.05.2007, Side 2
föstudagur 11. maí 20072 Fréttir DV InnlendarFréttIr ritstjorn@dv.is Guðjón Ólafur Jónsson og Sæunn Stefánsdóttir notuðu bréfsefni Alþingis og létu senda út 2.000 bréf á kostnað Alþingis, til að kynna opnun á kosningaskrifstofu Fram- sóknar. Kostnaðurinn var 120 þúsund krónur. Skattgreiðendur þurfa að borga fyrir kostnaðinn en ekki er heimilt að nota póstinn nema það tengist þingstörfum. Létu ALþingi borgA Tveir af þingmönnum Framsókn- arflokksins, Guðjón Ólafur Jónsson og Sæunn Stefánsdóttir, auglýstu opnun kosningaskrifstofu sinnar með því að senda boðsbréf til 2000 félagsmanna í Framsóknarflokkn- um. Bréfið var ritað á bréfsefni Al- þingis, fært í umslag Alþingis og sent út á kostnað Alþingis. Aðspurð telur Sæunn boðsend- inguna fullkomlega eðlilega enda rúmist hún innan heimilda þing- manna til að kynna málefni sín fyrir stuðningsmönnum sínum. Ekkert óeðlilegt „Efni bréfsins var meira en það að kynna kosningaskrifstofu okkar. Þingmenn hafa heimild til að vera í sambandi við kjósendur og senda bréf til stuðningsmanna sinna til að kynna sínar áherslur. Ég álit þetta vera hluta þeirrar heimildar og ekki einsdæmi í þingsögunni,“ segir Sæunn. „Að mínu mati er þetta fullkomlega eðlilegur liður í því að vera í sambandi við kjós- end- ur og inn- an heimildar þingmanna. Bréf- ið var aðeins sent til okkar stuðningsmanna í Reykja- vík og að frumkvæði okk- ar Guðjóns Ólafs. Í stað- inn fyrir að senda tvö bréf ákváðum við að sameinast um þetta bréf. Ekki rétt Samkvæmt því bréfi sem DV hefur undir hönd- um þá er fólk aðeins beðið um að taka þátt í kosningabaráttu Fram- sóknarflokksins. Ólíkt því sem Sæunn segir í viðtali þá er bréfið hluti af bar- áttunni en ekki er minnst á venjuleg þingstörf í því. Samkvæmt þeim regl- um sem gilda á Alþingi fá þingmenn greiddan póstkostnað en aðeins ef það tengist þingstörf- um þeirra. Sjálf segir Sæ- unn ekkert að því að notast við bréfsefni og póstþjónustu Al- þingis á þennan hátt. „Ég veit um fjölda slíkra dæma hjá þingmönnum á þessum vetri án þess að ég sé þannig gerð að gefa upp hverjir það eru,“ segir hún um það sem hún segir viðtekin vinnubrögð á Alþingi. Rúmlega hundrað þúsund Hvert bréf sem er sent í hús kostar sextíu krónur samkvæmt póst- stimplinum á umslagi því sem DV hefur undir höndum. Því kostar það hundrað og tuttugu þús- und krónur að senda bréf- in á tvö þúsund manns. Af innihaldi umslagsins sem DV hefur undir höndum er ekki að sjá að það falli und- ir almennar reglur Alþingis um notkun bréfsefnis og út- sendingu. Ef sú verður nið- urstaðan að það sé í lagi að senda slík bréf þá þurfa skatt- greiðendur að greiða kostnað kosningabréfs framsóknar- mannanna, Guðjóns Ólafs og Sæunnar. Skrifstofustjóri Alþingis, Helgi Benódusson, treysti sér ekki til að meta hvort bréfið félli und- ir þær skilgreiningar sem Alþingi hefur sett varðandi notkun á póst- þjónustu þingsins. Ekki náðist í Guðjón Ólaf við vinnslu fréttarinnar. „ég veit um fjölda slíkra dæma hjá þingmönnum á þessum vetri án þess að ég sé þannig gerð að gefa upp hverjir það eru.“ Kosningabréf framsókn sendi út tvö þúsund bréf til þess að auglýsa kosningaskrifstofu sína en bréfin eru merkt alþingi og send út af þeim. valuR GREttiSSon blaðamaður skrifar: valur@dv.is Sæunn Stefánsdóttir sendi bréf á kostnað alþingis til að auglýsa opnun kosningaskrifstofu framsóknarflokksins. Guðjón Ólafur Jónsson sendi bréf á kostnað alþingis til að auglýsa opnun kosningaskrifstofu framsóknarflokksins. Ljóslaust á Ísafirði Ísfirskir ljósastaurar hafa ekki lýst að undanförnu. „Ég var að koma akandi frá Patreksfirði seint um kvöld í vikunni og tók þá eftir því að ekki voru ljós á staurum á Eyrinni,“ segir Halldór Halldórsson bæjarstjóri. Hann segir að ekki sé um sparnaðarað- gerðir að ræða, staurarnir séu á könnu Orkubús Vestfjarða. Skúli Skúlason hjá Orkubúi Vestfjarða segist ekki hafa tekið eftir þessu, en ætlar að ganga strax í að athuga málið. „Mér finnst merkilegt að fólk hringi fyrst í blöðin áður en það hringir í okkur,“ segir hann. Eiríkur fæðist Ærin Botna sem aðsetur hefur í Fjölskyldu- og húsdýragarð- inum í Laugardal varð fyrst áa þar á bæ til að bera þetta árið. Fyrir eru allar huðnur garðsins bornar nema ein og því komnir 9 kiðlingar og tvö lömb, lamba- drottning og lambakóngur. Lambakóngurinn er mórauður botnóttur á litinn og hefur hlot- ið nafnið Eiríkur enda borinn nokkrum klukkustundum áður en Eiríkur Hauksson stígur á svið í Helsinki. Gimbrin sem er svart- botnótt heitir Arnveig. Greiddu út 100 milljónir króna Landgræðslufélag Biskups- tungna fékk hæsta styrkinn sem veittur var úr Pokasjóði verslunarinnar í gær. Alls fékk félagið 7,5 milljónir króna til uppgræðslu rofabarða og end- urheimtar landgæða í Biskups- tungum. Pokasjóður úthlutaði rúm- lega 100 milljónum króna í gær. Sú upphæð skiptist á milli 122 verkefna á sviði umhverf- ismála, mannúðarmála lista, menningar, íþrótta og útivistar. Um 900 umsóknir bárust. Stuttur kveikur á Árna Johnsen „Það er ansi stuttur kveikur- inn á honum Árna, það er ekki hægt að segja annað,“ segir Sig- rún Helga Sigurðardóttir. Starfs- menn Glitnis í Reykjanesbæ hafa frábeðið sig frekari kynningar- fundum stjórnmálaflokka eftir að Árni Johnsen, annar maður á lista Sjálfstæðisflokks í Suður- kjördæmi, missti stjórn á skapi sínu á fundinum sem haldinn var síðastliðinn mánudag. „Ég veit ekki til þess að það hafi nokkurn tímann fokið í mig,“ segir Árni um málið. Hann segir að vissulega nálgist fólk málin af nokkrum þunga í kosningabar- áttunni. Jónas Garðarsson dæmdur í þriggja ára fangelsi í Hæstarétti: Ætli ég fari ekki bara í steininn Hæstiréttur staðfesti þriggja ára fangelsisdóm yfir Jónasi Garðarssyni, fyrrverandi formanni Sjómannafé- lags Reykjavíkur, fyrir manndráp af gáleysi. Jónas þarf að greiða 2,6 millj- ónir króna í sakarkostnað. Dómur í máli hans féll í gær. Þar með staðfesti Hæstiréttur dóm Héraðsdóms Reykjavíkur þar sem Jónas var dæmdur fyrir að sigla skemmtibáti í strand við Skarfasker á Viðeyjarsundi, í septemberbyrj- un 2005, með þeim afleiðingum að Friðrik Hermannsson og Matthildur Harðardóttir létu lífið. Kona Jónasar var með í för ásamt syni þeirra. Þau voru bæði hætt komin þegar bátur- inn sökk. Jónas hefur ávallt haldið fram sak- leysi sínu og vildi meina að Matthild- ur hefði stýrt bátnum en ekki hann. Hvorki Héraðsdómur Reykjavíkur né Hæstiréttur féllst á sögu hans þegar kveðnir voru upp dómar. Jónas var undir áhrifum áfengis þetta kvöld þegar slysið átti sér stað. „Þetta kom mér verulega óvart,“ segir Jónas Garðarsson en hann mætti ekki sjálfur í Hæstarétt til þess að hlýða á dóminn. Loftið var spennuþrungið, skyldmenni Frið- riks og Matthildar voru í réttinum. „Ég er búinn að fá læknisskoðun sem staðfesti framburð minn, sem er að ég var ekki við stýrið,“ segir Jónas sem heldur enn fram sakleysi sínu þrátt fyrir að hann sé dæmdur í þriggja ára fangelsi óskilorðsbundið. Hann segir það koma sér spánskt fyr- ir sjónir að þeim framburði hafi ver- ið hafnað en tveir læknar staðfestu þetta mat. Aðspurður hvað taki næst við seg- ir Jónas: „Ég hef ekki hugmynd um hvað ég geri núna, ætli ég fari ekki bara í steininn,“ segir hann að lok- um. Þar með er ríflega árslöngum réttarhöldum lokið. valur@dv.is Jónas Garðarsson Hæstiréttur íslands staðfesti úrskurð héraðsdóms um að Jónas hefði orðið tveimur manneskjum að bana vegna gáleysis. dv mynd Gva

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.