Dagblaðið Vísir - DV - 11.05.2007, Blaðsíða 4
Jón Bjarnason þingmaður vinstri
grænna í Norðvesturkjördæmi, leigir
íbúð af Blönduósbæ, á meðan um
tuttugu manns eru á biðlista eftir
íbúð hjá bænum. „Þessar íbúðir eru
ekki félagslegar sem slíkar og þeim er
ekki úthlutað eftir félagslegum gild-
um eins og út frá grundvelli tekna.
Núverandi staða og langur biðlisti
gæti þó breytt því,“ segir Jóna Fanney
Friðriksdóttir, bæjarstjóri Blönduós-
bæjar.
Var nóg af lausum íbúðum
Jóna Fanney segir ekki stefnu bæj-
arins að segja upp fólki leigu á með-
an leigjendur uppfylla húsaleigu-
samning. Jón hefur búið í íbúðinni
í átta ár eða síðan hann varð þing-
maður og flutti frá Hólum þar sem
hann var skólastjóri áður. „Þegar
ég fékk þessa íbúð leigða var fullt af
lausum íbúðum sem ekki voru einu
sinni í útleigu. Ég hef verið að reyna
að finna mér íbúð á Blönduósi til að
kaupa en framboðið er lítið,“ segir
Jón Bjarnason. Hann segir sveitarfé-
lagið ekki hafa rætt við hann um að
finna sér annað húsnæði enda fáar
íbúðir í boði. Jón segist leigja íbúð-
ina, sem er fjögurra herbergja, á 52
þúsund krónur á mánuði en hún er
hans annað heimili en sjálfur á hann
eina íbúð í Reykjavík. „Við erum mik-
ið hérna á sumrin, í jólafríum, páska-
fríum og oft um helgar og börnin mín
hafa unnið hér í bænum á sumrin,“
segir Jón.
Fær 120 þúsund í húsnæðis-
kostnað
Alþingismenn kjördæma fyr-
ir utan Reykjavíkurkjördæmi og
Suðvesturkjördæmi fá mánaðar-
lega greiddar 86.200 krónur á mán-
uði í húsnæðis- og dvalarkostnað
sem bætist við ofan á þingfararkaup
þeirra. Þeir þingmenn sem halda að-
alheimili utan höfuðborgarsvæðis-
ins og halda annað heimili í Reykja-
vík geta óskað eftir 40 prósenta álagi
ofan á húsnæðiskostnaðinn, svo
framarlega sem viðkomandi beri
kostnað af íbúð utan Reykjavíkur
sem hann nýtir allt árið og nýtir til
búsetu.
„Ég man ekki hvort ég óskaði eftir
þessu en hafi ég átt rétt á því hef ég
vafalaust gert það. Það er bara sam-
kvæmt reglum Alþingis,“ segir Jón
og bendir á að það kosti sitt að reka
tvö heimili því það feli meðal annars
í sér tvö innbú. Hann fær 120 þús-
und krónur frá Alþingi til að standa
straum af þeim kostnaði. Jón segir
mikilvægt að eiga heimili í sínu kjör-
dæmi því þar þurfi að sinna ýmsum
verkefnum. „Ég held að Blönduós-
búar séu ánægðir með mig eins og
ég er ánægður með þá. Það er gott
að búa á Blönduósi og þar
ætla ég áfram
að búa,“
segir Jón.
hrs@dv.is
föstudagur 11. maí 20074 Fréttir DV
InnlendarFréttIr
ritstjorn@dv.is
Tvær milljónir renna í lögreglusjóð eftir uppboð á óskilamunum:
Óskilahjól styrkja lögreglumenn
Allur ágóði af hjólauppboði lög-
reglunnar á höfuðborgarsvæðinu
rennur í sérstakan lögreglustjóð sem
nýttur er til að styrkja lögreglumenn
með ýmsum hætti og auka félagsstarf
þeirra. Lögreglukórinn fær iðulega
fjárstyrk úr lögreglustjóðnum og allir
lögreglumenn hafa aðgang að kórn-
um. Í ár söfnuðust tæpar tvær milljón-
ir í sjóðinn er ríflega 350 reiðhjól seld-
ust, reiðhjól sem lögreglan fékk í sína
vörslu eftir að eigendur þeirra týndu
þeim eða skildu eftir, ellegar óprúttnir
einstaklingar höfðu tekið þau ófrjálsri
hendi og skilið þau eftir víða um borg-
ina.
Halldór Halldórsson, fram-
kvæmdastjóri höfuðborgarlögregl-
unnar og umsjónarmaður sjóðs-
ins, segir bráðabirgðauppgjör nærri
tveimur milljónum. Hann ítrekar að
ekki sé um starfsmannasjóð að ræða
sem styrki samkomur beinlínis. „Þetta
eru hjól sem einhver grípur ófrjálsri
hendi skilur eftir á gagnstéttum eða
inn í görðum hjá fólki. Um sjóðinn
gilda ákveðnar reglur. Lögreglufélagið
úthlutar úr sjóðnum og allir lögreglu-
menn njóta góðs af. Það er ekki verið
að nota sjóðinn í skemmtanir,“ segir
Halldór.
Óskar Sigurpálsson, formaður Lög-
reglufélags Reykjavíkur, segir sjóðinn
ævafornan. „Sjóðurinn var stofnaður
með konungsbréfi árið 1938. Lögregl-
unni ber að halda utan um óskilamuni
og andvirði sölu þeirra rennur í sjóð-
inn. Sjóðurinn er eyrnamerktur menn-
ingar- og félagsstarfi lögreglu. Úthlut-
unin hefur að mestu farið í sjúkrasjóð,
íþróttamál og lögreglukórinn,“ segir
Óskar. trausti@dv.is
Öflugur lögreglusjóður andvirði uppboð lögreglunnar á óskilamunum rennur í
lögreglustjóð til styrktar lögreglumönnum.
Vinstriflokkar
bæta við sig
Vinstrihreyfingin - grænt
framboð og Samfylkingin bæta
við sig fylgi, en stjórnin heldur
ekki velli, samkvæmt skoðana-
könnun Capacent Gallup sem
birtist í gær.
Samfylkingin mælist með 26%
fylgi, en var með 25% á miðviku-
dag. Vinstri græn mælast með
16% fylgi en voru með 14,5% í
fyrradag.
Fylgi Framsóknarflokksins
mælist lægra en í fyrradag og
er tæp 14% í stað tæpra 15% á
miðvikudag. Sjálfstæðisflokkur
stendur nánast í stað og mælist
með 36% fylgi. Frjálslyndir mæl-
ast með tæpra 7% fylgi og Ís-
landshreyfingin með 2%, en var
með rúm 3% í fyrradag.
Þrjátíufalt
dýrara á Íslandi
Það kostar sitt að styðja Eirík
Hauksson með símakosningu í
Finnlandi samkvæmt nýrri verð-
könnun Neytendasamtakanna á
Íslandi. Hvert símaatkvæði kost-
ar Íslendinga 100 krónur en til
samanburðar kostar það frændur
vora Dani þrjár krónur. Því voru
Íslendingar krafnir um 3.200 pró-
sentum hærra gjald en Danir.
Meðalverð í tíu löndum Evr-
ópu sem könnunin tekur til er
um 45 krónur. Símtalið er næst
dýrast í Póllandi þar sem Eurov-
ision-aðdáendur þurfa að greiða
56 krónur fyrir símtalið.
Í ratleik eftir
próflok
„Þau eru búin að fara í ratleik
út um allan Hveragerðisbæ,
undir stjórn Arctic Rafting.
Svo fóru þau í sund og
fengu hamborgaraveislu
í lok dags,“ sagði Magnea
Magnúsdóttir foreldri og
einn af skipuleggjendum
óvissuferðar 10. bekkinga úr
Breiðholtsskóla. Magnea segir
ferðina vera árvissan atburð sem
foreldrar skipuleggi helst sjálfir.
Ferðin tekur tvo daga og síðari
daginn var krökkunum boðið í
flúðasiglingu niður Hvítá.
„Ég var að fá SMS frá einum
nema og hann var uppgefinn og
ánægður eftir átök dagsins.“
Vara við hruni
Varað er við hruni úr íshelli
á Sólheimajökli.
Innan við ár er síðan ferða-
maður lést þegar hluti úr íshelli
í Hrafntinnuskeri hrundi yfir
hann. Íshellirinn í Sólheima-
jökli breytist daglega. Greini-
legar sprungur eru í hellinum
og ísinn er þunnur. Björgun-
arsveitarmaður í Víkverja kom
upp skilti fyrir framan hellinn
þar sem lesa má á fimm tungu-
málum um hætturnar sem þar
leynast.
Jón Bjarnason, þingmaður vinstri grænna, leigir íbúð af Blönduósbæ á 52 þúsund
krónur á mánuði. Um tuttugu eru á biðlista eftir íbúð hjá bænum. Jón segir ekki hafa
verið biðlista þegar hann flutti í íbúðina fyrir átta árum. Jón fær greiddar 120 þúsund
krónur í húsnæðiskostnað ofan á þingfararkaup.
ÞINGMAÐUR Í BÆJAR-
ÍBÚÐ Á BLÖNDUÓSI
HJÖrdís rut sigurJónsdóttir
blaðamaður skrifar: hrs@dv.is
Húsnæðis- og
dvalarkostnaður
- alþingismaður fyrir kjördæmi
utan reykjavíkurkjördæma suður
og norður og suðvesturkjördæmis
fær mánaðarlega greiddar [86.200
kr.] í húsnæðis- og dvalarkostnað.
- Haldi alþingismaður, sem á
aðalheimili utan reykjavíkurkjör-
dæma suður og norður og
suðvesturkjördæmis, annað
heimili í reykjavík getur hann
óskað eftir að fá greitt álag, 40%, á
fjárhæð skv. 1. mgr. með „aðal-
heimili“ þingmanns er átt við skráð
íbúðarhúsnæði sem er aðsetur
þingmannsins í kjördæminu og
hann á eða leigir, hefur kostnað af
allt árið og nýtir til búsetu.
„Þegar ég fékk þessa íbúð leigða var fullt af lausum
íbúðum sem ekki voru einu sinni í útleigu. ég hef verið
að reyna að finna mér íbúð á Blönduósi
til að kaupa en fram-
boðið er lítið“
Blokkin sem Jón býr í Jón segist nýta íbúðina
mikið á sumrin og í öðrum fríum enda finnst
honum gott að vera á Blönduósi.
dV-mynd reglur um þingfararkostnað
Jón
Bjarnason
Þingmaður-
inn býr í
bæjaríbúð sem
hann leigir af
Blönduósbæ.