Dagblaðið Vísir - DV - 11.05.2007, Page 34
Milos Glogovac kom hingað til lands
árið 2005 eftir samtal við Mihaj-
lo Bibercic, fyrrverandi markvarða-
hrelli hér á landi bæði með ÍA og KR.
Milos kom ásamt þeim Igor Pesic
og Jovan Kuc til reynslu til ÍA en þar
höfðu menn ekki not fyrir hann. Þá
hafði ÍA landsþekkta vörn, þá Gunn-
laug Jónsson og Reyni Leósson. Því
var Milos ekki boðinn samningur.
Úr varð að hann fór til Víkings, sem
hafði þá fallið úr Landsbankadeild-
inni og var að hefja leik í fyrstu deild.
Þar hefur hann slegið í gegn og skrif-
aði nýverið undir samning til loka
ársins 2009.
„Ég kem frá Novizad í Serbíu sem
er önnur stærsta borgin þar í landi.
Ég spilaði þar í átta ár, frá fimmta
flokki og upp í meistaraflokk,“ sagði
Milos í samtali við DV.
„Ég fékk tilboð frá hollenska lið-
inu AZ Alkmaar þegar ég var 18 ára
en félagið mitt setti 100 þúsund evra
verðmiða á mig. Það er erfitt að kom-
ast burt frá Serbíu því lið þar setja
oft háa verðmiða á leikmenn þegar
erlend lið sækjast eftir kröftum leik-
manna þar.
Ég kláraði samninginn minn og
var að tala við Mihajlo Bibercic sem
sagði góða hluti um landið og úr varð
að ég kom.“
Vildi ekki spila á miðjunni
Ég fór fyrst til ÍA en Óli Þórðar
vildi að ég spilaði á miðjunni en ég
hafði alltaf spilað í hjarta varnarinn-
ar. Mér líkaði það illa að hann ætlaði
að láta mig spila á miðjunni.
Síðan fór ég til Víkings og Sigurð-
ur Jónsson, sem þá var þjálfari, sagði
eftir fyrsta leikinn gegn Fram að ég
væri góður leikmaður og vildi semja
við mig. Við gerðum samning og við
fórum upp, ég var valinn besti leik-
maður Víkings ásamt Höskuldi Ei-
ríkssyni og ég var einnig í liði ársins.
Ég samdi við Víking því mér lík-
ar vel að vera hér á landi og spila
fótbolta. Ég þjálfa líka, ásamt Birni
Bjartmarz, fjórða flokk Víkings. Síð-
an verð ég í fótboltaskóla Víkings í
sumar þannig að mér líkar vel hér á
Íslandi. Það er mjög fínt að búa hér.“
Milos sló strax í gegn á sínu fyrsta
tímabili með Víkingi þegar liðið var
í fyrstu deild. Hann staðfesti svo í
fyrrasumar að þarna fer frábær mið-
vörður. Víkingur var með gríðarlega
sterka vörn þar sem Milos og Grét-
ar Sigurðsson fóru fremstir í flokki
ásamt Höskuldi Eiríkssyni og Herði
Bjarnasyni.
„Við náðum nokkrum góðum
úrslitum í fyrra og við hefðum get-
að lent í 4. til 5. sæti en vorum oft
óheppnir. Við vorum að tapa þrem-
ur til fjórum leikjum á síðustu mínút-
um. Tvisvar á móti KR, einnig á móti
Grindavík þar sem þeir jöfnuðu á 92.
mínútu og í Keflavík var staðan 1-1
en þeir skoruðu í uppbótartíma og
tryggðu sér sigur.
Ég og Grétar höfum náð vel sam-
an og það er mjög gott að spila með
honum. Við fengum á okkur næst-
fæst mörk í fyrra. Aðeins Valur fékk
færri mörk á sig. Við skiljum hvor
annan mjög vel, en ásamt Höskuldi
og Herði Bjarnasyni spiluðum við oft
vel saman. Við töpuðum aðeins ein-
um leik stórt á móti FH 4-0. Ég held
að það sé erfitt fyrir framherja að
spila á móti okkur.“
Vonar að Víkingur
verði við toppinn
Í ár er Víkingum ekki spáð góðu
gengi. Þeir hafa misst töluvert af
leikmönnum, meðal annars besta
leikmann Landsbankadeildarinnar
í fyrra Viktor Bjarka Arnarsson sem
fór í atvinnumennsku til Noregs.
„Við söknum auðvitað Viktors og
Höskulds, Daníels Hjaltasonar og
Davíðs Rúnarssonar en höfum feng-
ið sterka leikmenn í þeirra stað, Kek-
ic, Björn Viðar og fleiri þannig að við
höfum nýtt lið og ég er jákvæður fyr-
ir tímabilið. Við vonum að við náum
góðum úrslitum og verðum meðal
efstu liða.“
Víkingur verður 100 ára á næsta
ári og segir Milos að félagið stefni
hátt á aldarafmælinu. Þá verði meira
lagt í liðið og reynt að ná góðum ár-
angri.
„Félagið verður 100 ára á næsta
ári og við vonumst til að berjast á
toppnum á aldarafmælinu. Klúbb-
urinn vill að við verðum með gott
lið á næsta ári.“
Magnús Gylfason er þjálfari Vík-
ings. Hann náði góðum árangri með
liðið í fyrra þrátt fyrir að vera með
ungt lið í höndunum en það hefur
oft verið sagt um Magnús að hann
nái miklu fram í ungum leikmönn-
um. Milos segir að það sé gott að
vinna með Magnúsi og hann hafi
kennt sér margt.
„Það er gott að vinna með hon-
um, hann er mjög hæfur og ég held
að við náum góðum úrslitum í sum-
ar.
Hann er atvinnumaður fram í
fingurgóma, mjög góður þjálfari og
er alltaf tilbúinn til að ræða fótbolta.
Hann á góða möguleika að gera eitt-
hvað gott úr þessu liði. Hans þjálf-
unaraðferð er mjög góð, hann er
óhræddur við að setja ungu strák-
ana inn í liðið og það er jákvætt.“
Föstudagur 11. maí 200734 Sport DV
Milos Glogovac leikmaður Víkings kom til
Íslands árið 2005. Hann fór til reynslu til ÍA
en þar höfðu menn ekki not fyrir krafta
hans. Víkingar tóku fegins hendi á móti
Milos þegar þeir fréttu að hann væri að
leita sér að liði og sjá væntanlega ekki eftir
því enda fer þar einn besti miðvörður
Landsbankadeildarinnar.
Að brjóta sóknarlotu á bak aftur
milos glogovac þykir ákaflega snjall miðvörður.
Líkar vel við
land og þjóð