Dagblaðið Vísir - DV - 11.05.2007, Blaðsíða 36
Föstudagur 11. maí 200736 Sport DV
Einn allra mikilvægasti leikurinn í ensku úr-
valsdeildinni á þessu tímabili verður á sunnu-
daginn á Bramall Lane þegar Sheffield United
mætir Wigan Athletic. Bæði lið vita það að til
að tryggja sæti sitt í deildinni á næsta tímabili
verða þau að ná sigri. Áætlað er að fall niður í
ensku 1. deildina kosti hvert félag milli 30 og
50 milljónir punda og því skiptir öllu máli að
halda sér í efstu deild.
Auk þessara tveggja félaga á West Ham Un-
ited á hættu að falla úr deildinni á sunnudag.
Hamrarnir eru með örlögin í sínum höndum
þar sem ljóst er að með því að ná stigi í lokaum-
ferðinni þá bjarga þeir sér frá falli. Þeir eiga þó
alls ekki auðveldan leik fyrir höndum, heim-
sækja Manchester United á Old Trafford. Eft-
ir leikinn fær United í hendurnar sjálfan Eng-
landsmeistarabikarinn.
Þrjú lið falla úr ensku úrvalsdeildinni eins
og venja er. Watford og Charlton Athletic eru
þegar fallin en þriðja liðið verður Sheffield Un-
ited, Wigan eða West Ham. Sheffield og West
Ham eru með 38 stig en Wigan 35.
Hrap Wigan
Ef Sheffield sigrar eða gerir jafntefli bjargar
liðið sér og Wigan fer niður. Þrjú stig til Wigan-
manna bjarga þeim frá falli og þá þarf Sheffield
að treysta á að West Ham tapi á Old Trafford.
West Ham ætti þó möguleika á að bjarga sér ef
liðið tapar naumlega á Old Trafford og Sheffi-
eld tapar með fjögurra marka mun eða meira á
heimavelli en það getur ekki talist mjög líklegt.
Paul Jewell, knattspyrnustjóri Wigan, hlýtur
að klóra sér í hausnum og hugsa um hvernig
lið hans getur verið í þessari stöðu fyrir loka-
umferðina. Tímabilið leit lengi mjög vel út fyrir
Wigan en svo hefur allt gengið á afturfótunum
og liðið aðeins krækt í þrjú stig af 24 möguleg-
um. Tap fyrir Middlesbrough um síðustu helgi
henti Wigan niður í fallsæti í fyrsta sinn á tíma-
bilinu.
Jewell lítur björtum augum á leikinn á
sunnudag. „Ef við vinnum þá höldum við okk-
ur uppi, ef við töpum förum við niður. Það er
ekki hægt að hafa þetta einfaldara. Ég þarf ekki
að treysta á úrslit úr öðrum leikjum og þannig
vill knattspyrnustjóri hafa þetta. Við erum með
örlögin í okkar höndum. Við horfumst í augu
við þessa áskorun. Þetta hefur verið ævintýri
og ég hef notið þess, það sama verður uppi á
teningnum um helgina,“ sagði Jewell.
Ef Warnock og félagar falla á prófinu verða
þeir að treysta á að Manchester United sé með
hugann við bikarúrslitaleikinn eftir viku og tapi
stigum gegn West Ham.
Hamrarnir vongóðir
West Ham vann hreint frábæran 3-1 sigur
gegn Bolton síðasta laugardag en það var sjötti
sigurleikur liðsins í átta leikjum. Félagið á nú
góða von um að bjarga sér frá falli eftir að staða
þess virtist algjörlega ómöguleg fyrir nokkrum
vikum. Önnur félög sem eru í botnbaráttunni
ásamt West Ham hafa krafist þess að stjórn úr-
valsdeildarinnar taki stig af West Ham vegna
ólöglegra kaupa á argentínsku landsliðsmönn-
unum Carlos Tevez og Javier Mascherano.
Leikmenn verða þó ekki með hugann við það
á sunnudaginn.
Það eina sem er óráðið á hinum enda töfl-
unnar er baráttan um sæti í UEFA bikarnum.
Everton hefur þegar tryggt sér eitt þessara sæta
og þarf litlar áhyggjur að hafa fyrir leik sinn
gegn Chelsea. Tottenham sem komst í átta liða
úrslit UEFA bikarsins á þessu tímabili ætti að
taka aftur þátt í keppninni næsta vetur en liðið
á leik gegn Manchester City.
Bolton var í lykilstöðu stærstan hluta tíma-
bilsins en er skyndilega komið upp við vegg
og verður að vinna Aston Villa til að sleppa
við tvöfalt áfall á stuttum tíma. Sam Allardyce
sagði upp sem knattspyrnustjóri liðsins og nú
gæti því mistekist að komast í Evrópukeppni.
Það verður hægara sagt en gert fyrir Bolton
að vinna Villa sem er í fínu formi um þessar
mundir.
Steve Coppell, knattspyrnustjóri Reading,
hefur sagt að hans lið sé ekki tilbúið fyrir Evr-
ópukeppni eftir hreint magnaðan árangur á
sínu fyrsta tímabili í ensku úrvalsdeildinni.
Hann segist ekki vilja skemma ævintýrið með
því að leikmenn missi einbeitinguna í ensku
deildinni.
SPENNAN ER
Í KJALLARANUM
Lokaumferðin í
ensku úrvals-
deildinni verður
á sunnudaginn. Á
meðan spennan á
toppi deildarinn-
ar er búin er
andrúmsloftið í
botnbaráttunni
rafmagnað. Tvö
lið eru þegar
fallin en þrjú lið
eru í hættu fyrir
lokaumferðina
LEIKIR LOKAUMFERÐARINNAR
Á SUNNUDAG:
(allir leikir hefjast kl. 14:00)
Blackburn - reading
Bolton - aston Villa
Chelsea - Everton
Liverpool - Charlton
man. utd. - West Ham
middlesbrough - Fulham
Portsmouth - arsenal
sheff utd. - Wigan
tottenham - man City
Watford - Newcastle
KJALLARINN Í ENSKU ÚRVALS-
DEILDINNI FYRIR LOKAUMFERÐINA
sæti - Lið - stig - (markatala)
16. sheff. utd. 38 (-22)
17. West Ham 38 (-25)
18. Wigan 35 (-23)
19. Charlton 33 (-26)
20. Watford 27 (-30)
Eggert og Tevez mennirnir tveir hjá West Ham sem mest hefur verið
rætt um. Eggert magnússon og sóknarmaðurinn frábæri Carlos tevez.
Spennan í algleymingi Neil Warnock
hrópar skipanir til sinna manna.
Á niðurleið síðustu vikur hafa verið mjög
erfiðar fyrir Paul Jewell og félaga í Wigan.
Úrslitaleikur rimma sheffield
united og Wigan verður í meira
lagi athyglisverð.