Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 11.05.2007, Qupperneq 37

Dagblaðið Vísir - DV - 11.05.2007, Qupperneq 37
Menning Roni Horn Listakonan Roni Horn kom fyrst til Íslands árið 1975 og hefur komið hingað oft síðan, en landslagið og einangrunin hér á landi hafa haft djúp áhrif á listsköpun hennar. Roni Horn fæddist í New York árið 1955 og býr og starfar þar í borg. Hún lauk Barchelor of Fine Arts prófi frá Rhode Island School og De- sign og Master of Fine Arts frá Yale. Horn notar skúlptúrform- ið til að rannsaka síbreytilegt eðli listarinnar, en vinnur einnig með pappír, ljósmyndun og bækur. Rori Horn hefur haldið einkasýningar víða og tekið þátt í samsýningum, m.a. Feneyjatví- æringnum árið 1977. Hún hefur hlotið verðlaun og styrki, þar á meðal styrk frá Guggenheim- stofnuninni. Sýning Rori Horn er í Listasafni Reykjavíkur. Gosbrunnur á bílastæði Royal de Luxe er óvenjulegt götuleikhús frá Frakklandi sem ferðast um allan heim og færir fólki stórkostleg ævintýri. Sem dæmi um hugvitsamlegar uppfinningar Royal de Luxe eru píanófallbyssa, klósettmótorhjól, vél til að borða epli frá Catherine Deneuve, vél til að ganga eins og Egypti, súkkulaðibúðingsdreifari, fögnuðarvél og kökuskot- pallur. Eina uppfinninguna er að sjá á bílastæði við Trygggvagötu; goshver sem á upptök sín að rekja undir götum borgarinnar. vetrarhátíð DV Menning föstudagur 11. maí 2007 37 Risessan í Royal de Luxe götu- leikhúsinu þrammar um götur borgarinnar í dag og á morgun. Inntak sýningar götuleikhússins er eitthvað á þessa leið: Fornleifa- stofnun Frakklands uppgötvar í leiðangri sínum goshver undir göt- um Reykjavíkurborgar. Leiðangurs- menn rekast hins vegar líka á sof- andi risa sem hefur legið í dvala undir Laugaveginum í hundrað ár og lætur öllum illum látum. Yfir- völd setja sig í samband við dóttur risans, litlu risessuna og biðja hana um aðstoð. Hún dvelst í borginni í tvo daga og reynir að tæla föður sinn í átt að höfninni. Í dag verður í Hafnarhúsinu opn- uð yfirlitssýning á verkum banda- rísku myndlistarkonunnar Roni Horn, sem ætlað er að endurspegla sterk tengsl hennar við Ísland, en einnig að gefa skýra heildarmynd af listamannsferli hennar. Í tengslum við sýninguna kemur út ný bók um Roni Horn og list hennar, en meðal höfunda efnis eru Linda Norden og Fríða Björk Ingvarsdóttir. Olivier Charlier, fiðluleikari leikur á tónleikum með Sinfóníu- hljómsveit Íslands í Háskólabíói í kvöld kl. 19.30. Hæfileikar hans komu snemma í ljós og á ferli sín- um hefur hann sópað til sín sín verðlaunum í alþjóðlegum tónlist- arkeppnum, verið eftirsóttur ein- leikari hjá mörgum af bestu hljóm- sveitum veraldar og unnið með mörgum af þekktustu hljómsveit- arstjórum samtímans. Efnisskrá tónleikanna er eftirfarandi: Hector Berlioz: Roman Carnival - forleik- ur, Camille Saint-Saëns: Fiðlukons- ert nr. 3, Claude Debussy: Síðdegi skógarpúkans og Maurice Ravel: La Valse. Kunz-fjölskyldan skemmtir börnum og fullorðnum með trúð- slátum í Þjóðleikhúsinu í kvöld og annað kvöld og á Akureyri á sunnu- dag. Meðlimir hennar eru sérkenni- legt fólk sem er eilítið utangarðs; fólk sem ferðast um og skemmtir öðrum rétt eins og gert var í eina tíð á furðufuglaskemmtunum þar sem gert var grín og sýndar sjónhverf- ingar. Vatnadansmeyjafélagið Hrafnhildur leiðir í kvöld sýningu um borð í elsta skipi Landhelg- isgæslunnar, Óðni. Áhorfendur ferðast utan frá og inn; ofan frá og niður. Með því að stíga um borð er komið inn í nýjan heim í tíma og rúmi. Í sýningunni er brugðið upp táknmyndum af konunni gegn- um árþúsundir og saga hennar og samhengi viðrað á nýstárleg- an hátt. Konono N°1 er stórskemmti- leg og óvenjuleg hljómsveit frá Kinshasa, höfuðborg Afríkuríkis- ins Kongó, sem heldur tónleika Hafnarhúsinu í kvöld. Konono N°1 hlaut BBC verðlaunin árið 2006 sem bestu nýliðarnir í heimstónlist og spilar með Björk á nýjustu plötu hennar, Volta. Bandaríski listamaðurinn Spencer Tunick opnar sýningu á nýjum verkum í gallerí i8 á morg- un, laugardag. Verk hans hafa vak- ið mikla athygli undanfarin ár. Frá árinu 1992 hefur hann staðið fyr- ir gjörningum á opinberum vett- vangi þar sem hann safnar saman fjölda sjálfboðaliða í einn hóp, rað- ar nöktum líkömunum þeirra sam- an og ljósmyndar þá undir berum himni. Í Vatnasafninu í Stykkishólmi verður á laugardag upplestur Roni Horn og Guðrúnu Evu Mínervu- dóttur. Með þessum upplestri verður Vatnsbókasafn Roni Horn formlega opnað og verkefninu Gestarithöfundur Vatnasafnsins hleypt af stokkunum, en að þessu tilefni kemur einnig út bókin Veðr- ið vitnar um þig, safn frásagna 75 íbúa Snæfellsness af veðri og tíða- fari. Tónamínútur er verk fyrir ein- leiksflautu og flautu og píanó eftir Atla Heimi Sveinsson sem frum- flutt verður í Þjóðleikhúsinu á sunnudaginn kl. 15. Flytjendur eru Áshildur Haraldsdóttir flauta, Anna Guðný Guðmundsdótt- ir píanó og Atli Heimir Sveinsson píanó. Listahátíð í Reykjavík hófst formlega með opnunarhátíð í Hafnarhúsinu í gær. Þetta er í 21. sinn sem Listahátíð er haldin, en hún stendur til 26. maí. Um helg- ina er fjöldi atriða á dagskrá: risaprinsessa, gjörningur í Óðni, trúð- slæti, nýtt íslenskt tónverk og margt fleira. Napoleon Dynamite tölvuleikur Tölvuleikjaframleiðandinn Crave Entertainment er að fara gefa út leik byggðan á hinni geysi vinsælu mynd Napoleon Dynamite frá árinu 2004. Crave hefur lítið gefið upp um verk- efnið annað en að í leiknum bregður fyrir lykilpersónum eins og Kip, Rico frænda, Pedro og lamadýrinu Tinu. Þetta verð- ur ekki í fyrsta skipti sem leikur er gerður eftir mynd leikstjór- ans Jared Hess sem gerði Nap- oleon Dynamite. Þegar er búið að gera leik eftir myndinni hans Nacho Libre fyrir Nintendo DS. Tónamínútur Atla Heimis Atli Heimir Sveinsson, sem samdi verkið Tónamínútur fyrir einleiksflautu, flautu og píanó, hefur verið leiðandi afl í íslensku tónlistarlífi í áratugi og samið fjölda tónverka. Hann hefur um áratugaskeið staðið í fremstu röð íslenskra tón- skálda og verk hans hlotið verðskuld- aða athygli bæði hér á landi sem og erlendis. Atli hefur samið afar fjöl- breytta tónlist og mörg sönglaga hans eru fyrir löngu orðin að ástsælum söng- lagaperlum. Verk fyrir flautu eru áberandi á verkaskrá hans, hann dregur fram eðli eða karakter flautunnar og skrif- ar tónlist þar sem syngjandi flaututónninn jafnt sem lipurð hljóðfærisins fær að njóta sín á tónsviðinu öllu. Árið 1976 hlaut Atli Tónskáldaverðlaun Norð- urlandaráðs fyrir flautukons- ert sinn. Listahátíð um helgina Nakinn mannfjöldi spencer tunick er þekktastur fyrir að ljósmynda stóra hópa af nöktu fólki. Gyðjan í vélinni Vatna- dansmeyjafélagið Hrafnhildur sýnir um borð í varðskipinu Óðni.. Royal de Luxe mikil eftirvænting ríkir vegna sýningar franska götuleikhússins.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.