Dagblaðið Vísir - DV - 11.05.2007, Síða 45

Dagblaðið Vísir - DV - 11.05.2007, Síða 45
Meistarinn Matgæðingurinn DV Helgarblað Föstudagur 11. maí 2007 45 Berghildur Magnúsdóttir var mat- gæðingur síðustu viku. Hún skoraði á vinkonu sína, Eddu Sveinsdóttur, að vera matgæðingur þessarar viku. „Ég hef óneitanlega mikinn áhuga á mat og matreiðslu og er mjög dug- leg að prófa hina og þessa rétti, sér- staklega rétti sem aðrir hafa prófað og mæla með,“ segir Edda. „Ég er líka gjörn á að nota uppskriftir frá öðrum og útfæra þær á minn hátt. Við eldum mikið kjöt og fugla, en villibráð hef- ur verið mikið á borðunum hjá okk- ur síðast liðin ár þar sem maðurinn minn, Jóhann Tómas, er mikill skot- veiðimaður. Gæsir, rjúpur og ýmsir sjófuglar, ásamt hreindýrakjöti, er al- gengur matur hjá okkur en fiskurinn er líka mjög vinsæll, sérstaklega með- al dætra okkar. Í miklu uppáhaldi er skötuselurinn sem við eldum oft fyrir gesti og þegar við viljum skemmtileg- an fiskrétt sem hvíld frá öllu kjötinu.“ Innvafinn skötuselur í parmaskinku með kartöflumús, hrísgrjónum og salati skötuselur ca. 250-300 gr. á mann í 150-200 gr. bitum 1 krukka sólþurrkaðir tómatar ¾ búnt af ferskri basiliku Parmaskinka (ca 2 sneiðar af erlendri fyrir hvern 150 - 200 gr. bita því þær eru stærri en sú íslenska) ristaðar furuhnetur maldon salt Nýmalaður svartur pipar Balsamic fyrir þá sem vilja Setjið sólþurrkuðu tómatana og um það bil helminginn af olí- unni með basilikunni í matvinnslu- vél og maukið. Maukið á að vera laust í sér en þannig að hægt sé að smyrja því. Má bæta við restinni af olíunni úr krukkunni ef þykja þarf. Notið smjörpappír og leggið parma- skinkuna á hann og smyrjið með maukinu. Stráið svo furuhnetun- um yfir. Leggið skötuselinn í miðju og kryddið með salti og pipar. Rúll- ið inn í skinkuna og leggið í smurt eldfast mót. Gerið eins við allan fiskinn. Hitið svo ofninn í 200°C og bakið í 15 - 20 mínútur. Það er hægt að gera þetta tilbúið fyrirfram og geyma í ísskáp og skella þessu svo í ofninn þegar gestirnir koma ef svo ber undir. Með þessu er lang best að hafa kartöflumús en einnig er hægt að vera með hrísgrjón. Kartöflumús: 1-2 kg. kartöflur vel soðnar, skrældar og stappaðar niður Blandið út í vel af smjöri og ólífuolíu og hrærið í 1-3 marðir hvítlauksgeirar eftir smekk 1 lúka ristaðar furuhnetur salt og pipar eftir smekk Hrærið vel og setið í eldfast mót og hitið í ofninum með fiskinum Ferskt salat: ½ poki spínat eða annað ferskt salat Jarðarber gróft skorin avacado smátt skorinn rauðlaukur Fetaostur kryddaður eða ferskur mozzarella smá sletta af ólífuolíu og balsamic ristaðar furuhnetur Með þessu er að sjálfsögðu best að drekka ískalt þurrt eða milli þurrt hvítvín.Fiskipaté 6 dl. fiskur (lúða, lax, silungur, ýsa) 3 dl. þeyttur rjómi 2 dl. mayones 2 dl. sætt sinnep ¾ dl. chilli sósa 1 tsk. raspaður laukur matarlím (Buljong gel í pakka frá Toro) 1 tsk. Italian seasoning 1 tsk. dill salt og pipar Öllu blandað saman nema rjómanum og fiskinum. Matarlím brætt og sett í blönduna. Fiski og rjóma bætt út í. Öllu er komið fyrir í formi og kælt vel. Gott er að bera réttinn fram með ristuðu brauðið og graflaxsósu. „Ég ætla að skora á vin- konu mína og nágranna Ka- reni Bjarnhéðinsdóttur, sjúkra- þjálfara. Hún er einstakur matgæðingur og býr til spenn- andi og góðan mat. Hún frum- leg og óhrædd við að prófa nýja rétti.“ Líftími víns „Vín er lifandi vökvi sem inniheldur engin aukaefni. Líftími þess samanstendur af æsku, fullorðinsárum, elli og dauða. Ef ekki er annast um það af skynsemi og virðingu mun það veslast upp og deyja.“ Julia Child, frægur bandarískur kokkur aðFErð Sjóðið spínatið í smá vatni, sigtið vatnið frá og kælið, þegar spínatið er orðið kalt er allt vatn kreist frá, setjið spínatið í matvinnsluvél og maukið fínt, setjið í skál og kryddið til með salt, pipar, múskat og blandið vel saman ásamt ricotta, smakkið til og setjið í sprautupoka og geymið. aðFErð Rúllið pastadeigið út mjög þunnt á hveitistráð borð, sprautið spínat-ric- otta maukinu í 4 hringi, leggið eina eggjarauðu í hvern hring, penslið með vatni í kring og leggið aðra past- aplötu ofan á og pressið vel sam- an. Pastað er svo soðið í miklu söltu vatni í ca, 2 mínútur. á meðan setj- um við ca 100 ml. af pastavatninu í pönnu og sjóðum smjörið saman við, þegar pastað er soðið er það veitt upp í pönnuna og sett á diska og smjörsoðinu dreift á milli. Parmesan rifinn yfir og dassað með jarðsveppa- olíunni. Innvafinn skötuselur og ferskt salat Edda Sveinsdóttir

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.