Dagblaðið Vísir - DV - 11.05.2007, Page 62
föstudagur 11. maí 200762 Síðast en ekki síst DV
veðrið ritstjorn@dv.is
laugardagurföstudagur
sýndarmennska í jafnrétti
Ragnhildur Sverrisdóttir fyrrver-
andi blaðamaður Morgunblaðsins
lýsir yfir megnri
óánægju með
meint ójafn-
rétti í umfjöllun
Morgunblaðs-
ins um fyrir-
liða karla- og
kvennafótbolta-
liða á bloggsíðu
sinni. Fyrst lýsir
hún yfir ánægju með að mynd af
karlahópnum sé jafn stór mynd af
kvennahópnum. En þegar kem-
ur að umfjöllun um liðin breyt-
ist tónninn. „Undir myndinni af
körlunum tíu voru talin upp nöfn
þeirra allra og liða þeirra.
Undir myndinni af konunum
átta stóð: Hér eru fyrirliðarnir hjá
félögunum sem skipa Lands-
bankadeild kvenna í knattspyrnu
í sumar.
Þetta er ekkert nema anskotans
virðingarleysi og sýnir að „jafnt
vægi“ í forsíðuumfjölluninni er
ekkert nema sýndarmennskan,“
segir Ragnhildur frekar ósátt.
afnema iPod-tollinn
Apple á Íslandi sendi nýlega fyr-
irspurn á alla flokka á landsvísu
til að kanna
afstöðu þeirra
til tolla og vöru-
gjalds á hinum
sívinsæla iPod.
Verð á iPod hér
á Íslandi er að
meðaltali 35%
hærra en í ná-
gránnaríkjum
sökum þessara tolla. Spurning-
in sem Apple varpaði fram var:
„Hyggist þið endurskoða þessa
frægu iPod-tolla komist þið í rík-
isstjórn?“
Þeir sem svöruðu fyrirspurn
Apple voru Birkir Jón Jónsson
Framsóknarflokki, Guðlaugur
Þór Þórðarsson Sjálfstæðisflokki,
Magnús Þór Hafsteinsson og
Sigurjón Þórðarson Frjálslynda
flokknum, Jakob Frímann Magn-
ússon Íslandshreyfingunni, Ágúst
Ólafur Ágústsson Samfylkingunni
og Paul F. Nikolov Vinstrihreyf-
ingunni - grænu framboði. Allir
eru þessir ágætu menn á þeirri
skoðun að afnema eigi þessa tolla
eða skoða það að minnsta kosti
vel. Menn eru þó með misjafnar
hugmyndir varðandi málið. Til
dæmis segir Paul Nikolov að á
sama tíma og hann vilji afnema
tollana vilji hann sjá Apple iPod-
framleiðslu á Íslandi. Jakob Frí-
mann segir orðrétt í svari sínu:
„Ég hef beitt mér fyrir því að fá
þessi gjöld felld niður allt frá ár-
inu 2004 og mun halda því áfram.
Þessi gjöld eru alger tímaskekkja
og til þess eins fallin að beina
viðskiptum úr landinu.“ Þá segist
Magnús Þór Hafsteinsson vera
mikill aðdándi iPod og að það sé
merkasta nýjung í tónlistarmiðl-
un síðan Emile Berliner fann upp
grammófóninn árið 1887. Það
ætti því að vera nokkuð öruggt að
iPod-tollarnir verði felldir á kom-
andi kjörtímabili ekki nema um-
ræddir frambjóðendur séu á já-
kvæðnifylleríi rétt fyrir kosningar.
leitar ofbeldismanna
Á blogsíðunni www.blog.central.
is/blindur leitar ungur maður
nokkurra ódæðismanna sem
slógu hann með bjórglasi í andlit-
ið á skemmtistað í miðbæ Reykja-
víkur aðfaranótt sunnudagsins
29. apríl. Þar
eru myndir
sem eru mjög
óskýrar úr ör-
yggismynda-
vélum stað-
arins þar sem
ódæðismönn-
unum bregður
fyrir. Hin slas-
aði skarst illa
á auga og telst lánsamur ef hann
fær 50% sjón aftur á vinstra auga.
Sandkorn Tengsl
Eiríkur Hauksson á það
sameiginlegt með...
...Ómari ragnarssyni að vera
rauðhærður.
...Ómar á það sameiginlegt með
Margréti Vilhjálmsdóttur að vera
rauðhærður.
Margrét á það sameiginlegt með
steingrími J.sigfússyni að vera
rauðhærð.
steingrímur J. á það sameiginlegt
með sólveigu arnarsdóttur að vera
rauðhærður.
sólveig á það sameiginlegt með
agli Helgasyni að vera rauðhærð.
Egill á það sameiginlegt með Þór-
unni sveinbjarnardóttur að vera
rauðhærður.
Þórunn á það sameiginlegt með
Halldóri gylfasyni að vera rauð-
hærð.
Halldór á það sameiginlegt með
lillý Valgerði Pétursdóttur að vera
rauðhærður.
lillý Valgerður á það sameiginlegt
með Eiríki Haukssyni að vera
rauðhærð.
Veður til að kjósa
„Það bendir allt til þess að á laug-
ardag verði hér nokkuð svöl NA-átt
ríkjandi,“ segir Einar Sveinbjörnsson
veðurfræðingur. „Hitinn ekki nema 2
til 5 stig norðan- og austanlands, en
syðra mun sólin sýna sig og hitastigið
verður því 7 til 10 stig yfir miðjan dag-
inn. Norðaustan- og austan til er gert
ráð fyrir rigningu, en slyddu eða snjó-
komu á heiðum og til fjalla. Sem segt
fremur svalur kjördagur, ekki ósvip-
aður undanförnum dögum.
Á kjördag fyrir fjórum árum, 10.
maí 2003, var veður ágætt á landinu,
milt og vorlegt. Reyndar rigning suð-
austanlands. Kjörsóknin var þá 87,7%
eða mun betri en í kosningunum
1999. Í þeim kosningum var þátt-
taka sú lélegasta í alþingiskosn-
ingum frá stofnun lýðveldisins
eða 84,1%. Það merkilega var
að á kjördag það ár (8. maí) var
veðrið jafngott eða ívið betra en
2003. Að vísu rigndi lítilsháttar í
höfuðborginni yfir miðjan dag-
inn,“ segir Einar.
„Ég held að veðrið á kjör-
dag hafi lítil áhrif á það hvað
menn kjósi og eins hver kjörsóknin
verður á endanum. Það hefur verið
kosið á þessum árstíma til Alþingis,
það er síðari hlutann í apríl eða
um og fyrir miðjan maí alveg
frá 1983. Þar á undan var kjör-
dagur yfirleitt síðasta sunnu-
dag í júní. Væri kosið um það
leyti nú væri ég ansi hræddur
um að sumarferðalög landans
bitnuðu á kjörsókn og
þá sér í lagi samfara
góðu veðri og mikl-
um ferðahug.“
Mæðradagurinn er á sunnudaginn og margar mömmur geta átt
von á því að fá kaffi í rúmið og jafnvel fallegan blómvönd. Börnin
á íslenskum heimilum eru færri nú til dags en þau voru hér áður
fyrr en samt eru konur enn að eignast fleiri en eitt og fleiri en tvö
börn. Til dæmis hún sigrún thorlacius.
„Ég á fjórar dætur, sú elsta er átján
ára, sú næstelsta er níu ára, sú næst-
yngsta fimm ára og sú yngsta er eins
árs,“ segir Sigrún og tekur fram að
mæðradagurinn sé ekki haldinn há-
tíðlegur á heimilinu. „Það er engin
hefð fyrir því í minni fjölskyldu að
halda upp á þennan dag. Vissulega
kysstum við systurnar mömmu ef við
mundum eftir deginum og nú eftir að
við urðum fullorðnar hringjum við í
hana. En vissulega er þetta skemmti-
legur siður og vel þess virði að fara að
taka hann upp.“
Stelpugenið er ráðandi í fjölskyldu
Sigrúnar sem sjálf er miðjubarnið í
fimm systra hópi.
„Við erum ekki allar jafndugleg-
ar að framleiða stelpur, tvær yngri
systur mínar eru barnlausar, elsta
systirin á eitt barn og sú næstelsta á
fjögur börn. Við erum því tvær sem
sjáum aðallega um barneignirnar.
Annars stóð aldrei til að ég eignað-
ist mörg börn en nú þegar þau eru
öll komin í heiminn er ég ekki í vafa
um að ekkert sé skemmtilegra en
að eiga mörg börn. Í gamalli kerl-
ingabók stendur: Eitt sem ekkert,
tvö sem tíu, og þá er átt við það að
ef að börnin eru orðin tvö þá skipti
ekki máli hversu mörg fylgi í kjölfar-
ið því þeim fylgdi alltaf sama vinn-
an. Ég er alls ekki sammála þessu.
Eftir því sem börnunum fjölgar því
meiri tíma þarf maður að eiga fyrir
fjölskylduna því öll börn þurfa á at-
hygli og hlýju að halda.“
Nútímamóðir
Sjálf er Sigrún hin dæmigerða nú-
tímamóðir, hún er í fullu starfi sem
aðstoðarforstöðumaður í Fjölskyldu-
og húsdýragarðinum.
„Starfið mitt er svolítið árstíða-
bundið. Á þessum árstíma er mikið að
gera en það er rólegra á veturnar. Það
koma toppar og dalir í vinnutörnun-
um og þá er um að gera að nota dalina
til þess að vinna upp toppana þegar
ég er mikið í burtu frá heimilinu. Elsta
dóttirin hefur verið ótrúlega dugleg
að hjálpa mér í gegnum tíðina og gert
mikið af því að passa yngri systur sín-
ar. En nú er hún auðvitað á allt öðru
þroskastigi en þær. Ég þekki þetta vel
sjálf, það er mikill aldursmunurinn á
okkur systrunum og það komu tíma-
bil þegar maður fjarlægist þær sem
voru yngri og eldri en maður sjálfur. Í
dag, þegar við erum orðnar fullorðnar
erum við allar góðar vinkonur.“
Ástæðulaus ótti
Sigrún var ekki nema tvítug þeg-
ar hún eignaðist fyrstu dótturina þótt
hún hafi verið ákveðin í því að geyma
barneignir þangað til hún væri orðin
töluvert eldri.
„Þegar ég eignaðist hana hafði ég
efasemdir um sjálfa mig og ég verð
að viðurkenna að ég var hrædd um
að vera ekki þessu starfi vaxin. En
ég komst fljótt að því að sá ótti var
ástæðulaus, ég hef alltaf ráðið vel við
móðurhlutverkið og finnst það alveg
frábært. Þegar ég varð ófrísk aftur átti
ég fyrir þessa einu dóttur, sem ég elsk-
aði út af lífinu, og þá læddist að mér sú
hugsun að það væri örugglega ómögu-
legt að elska annað barn jafnmikið.
Þessi hugsun olli mér samviskubiti. En
svo hef ég komist að því að það bæt-
ist alltaf við ástina, maður getur elskað
öll börnin sín jafnmikið, maður deilir
ekki ástinni sem fyrir er, heldur bætist
stöðugt í ástarbrunninn.“
Margir sem hafa alist upp með
mörgum systkinum öfunda þá sem
eiga fá eða engin systkini. Vilja fá að
sitja ein að ást og aðdáun foreldranna.
Sigrún kannast ekki við slíkar hugsan-
ir.
„Mér fannst alltaf frábært að eiga
svona margar systur. Við vorum og
erum samheldinn hópur og við hitt-
umst oft með börnin okkar. Elsta syst-
ir mín á líka stelpu sem er átján ára og
við höfum átt börnin okkar í „settum“.
Yngri börnin þrjú eru á svipuðum aldri
og dætur mínar og börnin okkar eru
öll ótrúlega góðir vinir. Elstu dæturnar
hafa alltaf haldið saman og eru miklar
vinkonur.
Foreldrar mínir eru duglegir við að
bjóða öllum hópnum heim. Þau eru
miklar barnagælur og kunna að meta
þennan stóra barnahóp. Nú er bara að
bíða eftir næstu kynslóð og sjá hvort
hún haldi barneignamerkinu uppi.
Ég hlakka mikið til að verða amma
og held að það hljóti að vera mjög
skemmtilegt hlutskipti,“ segir Sigrún
að lokum. Hver veit nema hún fái kaffi
í rúmið á sunnudaginn.
7
4
7
2
3
4
3 7
5
15
1
6 4
2
7
65
7
7
7
7
7 1
1
7
7
4
7
3
3
7
6
8
10
5
3
4
3
7
Bætist stöðugt
í ástarbrunninn
sigrún thorlacius.
„Ég hlakka mikið til að verða amma og held
að það hljóti að verða mjög skemmtilegt.“