Læknablaðið : fylgirit - 01.08.1978, Blaðsíða 8

Læknablaðið : fylgirit - 01.08.1978, Blaðsíða 8
6 Svo myndarlega var að því staðið, að það er enn notað og tekur við frárennsli frá þeirri byggð, sem risið hefur á túnunum norðan spítalans. Var þá ekki einasta, að systurnar væru forgöngumenn um spítalabyggingu með þeim myndarbrag, að allir undruðust sem sáu, heldur voru þær líka brautryðjendur í holI- ustuháttum og hreinlæti með vatnsleiðslu inn í spítalann og skolpleiðslu frá honum. ------- • ------- Spítalinn varð brátt of lítill. Var þá horfið að því ráði að taka herbergi starfsfólks fyrir sjúkrastofur. 1911 voru rúmin orðin 60, en 1931 voru þau 70. 1933 var byrjað á við- byggingu við spítalann, eftir teikningu Sig- urðar Guðmundssonar. Erum vér stödd í þvi húsi nú og var þessi salur kapella systranna. Á hausti 1935 var þeirri byggingu lokið og rúmaði hún 30 sjúklinga. Auk þess var í hús- inu Röntgendeild og vistarverur systra. Enn var þar eldhús í kjallara og birgðageymslur, þvottahús, straustofa og saumastofa, svo og stofur fyrir Ijóslækningar og matstofa systra. Var fyrsti sjúklingurinn vistaður þar 22. sept- ember, en næsta dag voru öll rúm fullskipuð. Eftir þessa viðbót var hægt að nýta íbúðir systra, sem verið höfðu í rishæð gamla hússins, fyrir sjúklinga og bættust þar við 20 rúm. Árið 1950 var bætt við 18 sjúkrarúmum í vesturálmu. Hafði verið reft yfir flatt þak á húsinu og fengu systurnar íbúð þar, en híbýli þeirra á 2. hæð voru tekin fyrir sjúkra- stofur. 1960 var tekin í not barnadeild á 3. hæð þessarar sömu byggingar. Höfðu áður verið þar íbúðir starfsfólks. Á ofanverðu ári 1956 var enn tekið til við byggingar og byrjað á austurálmu spítalans, sem koma skyldi í stað timburhússins gamla. Að þessu sinni var ekki ætlun að fjölga sjúkrarúmum. Systurnar höfðu lofað því 1902 að byggja spítala í samræmi við kröfur tímans. Þær efndu það og höfðu lengst af haldið í horf- inu við auknar kröfur. En nú var svo komið, að starfsemi spítalans var búin að sprengja utan af sér stakkinn og auk þess lá eldhætt- an í gamla timburhúsinu eins og mara á stjórn spítalans. Nýbyggingin kom í gagnið í áföngum. Var fyrst flutt í sjúkradeild á 1. hæð í janúar 1962. Var síðan smáflutt úr gamla spítalan- um eftir því sem fram vatt innréttingu nýja hússins og síðast var flutt í skurðstofur í mars 1963. Þegar gamla húsið hafði verið rifið var reist einnar hæðar bygging á hluta af gamla hússtæðinu og eru þar skrifstofur og aðalinngangur. Því var lokið á jólaföstu 1966. Nú eru 180 sjúkrarúm í spítalanum. Það tók áratug að fullgera þessa byggingu. Hún var teiknuð af Einari Sveinssyni og Gunnari Ólafssyni en Gunnar féll frá áður en byggingin var komin á rekspöl. Við stór- hýsi af þessu tagi koma ætíð upp mörg vandamál, sem þarf að leysa jafnótt og bygg- ingin gengur fram. Allt mæddi það á Einari Sveinssyni. Það var mikil fyrirhöfn og stórar fjárhæðir, sem hann sparaði systrunum. Og launin, sem hann tók fyrir alla þessa vinnu voru ekki nema nafnið tómt. Án hans hefði spítalabyggingin orðið systrunum enn þyngri róður. ------- ® -------- Nú fannst öllum, bæði læknum og systr- um, að nóg væri olnbogarúm og myndi verða svo nokkuð lengi. Svo mikil voru viðbrigðin að komast úr spennitreyjunni. En það var stutt gaman. Spitalavinna hefur breyst svo á undanförnum áratugum, að er með ólíkindum. Stoðdeildir aukast og stækka og þurfa orðið meira rúm í nýtísku spítala, en sjúkradeildir. Ekkert lát er á þeirri þróun. Elfur tímans streymir fram óstöðvandi. Aukning rannsóknastofuvinnu hefur aukist svo, að ekki verður líkt við annað en spreng- ingu. Má geta þess, að 1936 þegar ég byrjaði mína læknisæfi í þessu húsi voru rannsókna- stofustörf unnin af kandidat með annarri vinnu og sama máli gegndi um Landspítal- ann, sem þá hafði starfað í hálfan tug ára. Nú vinna á rannsóknastofum Landakotsspít- ala 33 menn allan daginn. Og þó annað þætti hlýða þá um lengd vinnudags en nú er títt og þó sjúkrarúm séu nokkuð fleiri, þarf ekki frekar vitna við um aukninguna. Nú eftir áratug frá síðustu viðbót er veru- lega farið að þrengja að starfseminni, þó ekki sé tii vandræða enn. Má þó segja, ad hver smuga í spítalanum sé gjörnýtt. Hefur því þegar verið nokkuð um það hugsað hvern veg mætti bregðast við þeim vanda þó ekki sé nú stund til þess að segja frá því. Það bíður síns tíma.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Læknablaðið : fylgirit

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið : fylgirit
https://timarit.is/publication/991

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.