Læknablaðið : fylgirit - 01.08.1978, Blaðsíða 61
59
Þorkell Bjarnason, Sigurgeir Kjartansson og Óiafur Gunnlaugsson
ANDSTREYMIS SMOKRUN SMÁGIRNIS I MAGA.
(Retrograde jejunogastric intussusception.)
INNGANGUR.
Andstreymar, innhverfingar eða smokr-
anir eru nauðasjaldgæfir, oft síðbornir
fylgikvillar við magaskurði og er forsenda
þeirra maga-smágirnistenging (Billroth II)
af einhverju tagi. Innan við 200 tilfellum
hefur verið lýst (4) og enginn höfundur
hefur fleiri en tvö tilfelli.
Fyrstu maga-smágirnistengingu gerði
Anton Wöffler um 1881 (5) og 33 árum
síðar lýsti Bozzi(r’) fyrstur þessum fylgi-
kvilla þeirrar aðgerðar. Aleman(4) greinir
mlli þriggja meginflokka, eftir því hvern-
ig smágirnismagasmokrun ber að.
A. Forstreymis, þar sem aðfærandi
lykkja tengingar hverfist inn í magann.
B. Andstreymis, þar sem fráfærandi
lykkja tengingar gengur upp í maga, og
C. smokrun á báðum lykkjum upp í
maga samtímis.
Um 75% þeirra tilfella er lýst hefur
verið til þessa heyra til flokks B. Sjald-
gæfastur er flokkur C. eða um 10%.
Von Brunn gerði fyrstur manna röntgen-
greiningu á þessu fyrirbæri 1924, (2) en
yfirleitt varð nokkur bið á greiningu, og
fram að 1944 höfðu aðeins 4 tilfelli verið
greind fyrir uppskurð, en í 30% tilfella
beið greining krufningar.
Algengustu einkenni voru blóðug upp-
köst og fengu sjúklingar yfirleitt meðferð
eins og um blæðandi tengingarsár væri að
ræða, það er vökvagjöf og magaskolun
fyrstu 24—48 klst. Reynslan hefur sýnt
að skjótrar greiningar er þörf, en dánar-
tíðni þeirra sjúklinga sem skornir eru inn-
an 48 klst. um 10,5%, en eftir 48 klst. er
hún komin upp í 53,8% (2).
ORSAKIR.
Um orsakir er fátt eitt vitað. Lýst hefur
verið hækkuðum magasýrum, slöppum
Fig 1 —Schematic drawings of anatomic types of jejunogastric intussusception.
In A, B and C the antecedent operation was partial gastric resection, with Billroth II
anasitomosis- In A the afferent loop is involved; in B the efferent loop; in C both
loops are affected. The same three types may occur although at operation only gastro-
enterostomy is preformed. Example not shown.