Læknablaðið : fylgirit - 01.08.1978, Blaðsíða 67
65
Guðjón Lárusson
Ta — TOXICOSIS
Um 25 ár eru síðan menn komust að
raun um, að skjaldkirtillinn framleiðir og
lætur trijodothyronine ( T:í ) út í blóðrás-
ina, auk thyroxins(T4). Síðan hefur áhugi
manna aukizt á T:i-rannsóknum. Hlutverka-
skipting milli þess og Ti í skjaldkirtilbú-
skap líkamans hefur verið óljós, en ágæt
yfirlit yfir núverandi þekkingarástand
hafa nýlega verið birt(” u).
Byrjað var fljótlega að mæla T.i í blóði
sjúklinga, en þær mælingar eru fyrst tald-
ar verða áreiðanlegar eftir að farið var að
beita aðferðum, sem nefndar eru „Compete-
tive-Protein-Binding“ og þó einkum „Radio-
Immuno Assey“(3).
Síðan hefur komið í ljós, að sjúklingar
með thyrotoxicosu og aukið magn af Ti í
blóði, hafa alltaf aukið magn af T.i(91),
en undanfarin ár hefur verið lýst mörgum
sjúklingum, sem hafa einkenni thyrotoxi-
cosu, hækkun á T.i í blóði, en eðlilegt Ti.
Fyrirbrigði þetta hefur verið nefnt T.i-toxi-
cosis.
Til greiningar á því þarf að sýna fram
á hækkað T:i, eðlilegt Ti, eðlilega bindi-
eggjahvítu, Thyroxin-binding-Globulin
(TBG) og negativa Ta-suppression.
í þessari grein er lýst tveimur sjúkling-
um, sem uppfylla þessi skilyrði.
MÆLINGAR.
Sumar af þeim mælingum, sem gera
þurfti, voru annað hvort ekki gerðar hér
á landi eða ekki aðgengilegar íslenzkum
læknum og því varð stundum að senda
blóð til útlanda til rannsókna.
Mælingar þær, sem gerðar voru hjá þess-
um sjúklingum, voru því framkvæmdar á
ýmsum stöðum. Þess vegna eru mismun-
andi tölur gefnar upp fyrir samskonar
mælingu.
Geislajoðpróf var gert á Landspítalan-
um. Normalgildi eru 2—21% eftir 4 klst.
og 6—36% eftir 24 klst.
TBG var mælt hjá sjúklingi no. 1 á
Landakotsspitala með immunokemiskri að-
ferð og voru normalgildi 70—140 einingar.
TBG hjá sjúklingi no 2 var mælt á Mayo
Medical Laboratories, en normalgildi þar
eru 16—24 microgr%.
Með Ti er átt við „total thyroxin“ það
er bæði fritt og bundið eggjahvítu. Tr
var mælt á Landspítala í eitt skipti hjá
sjúklingi no 1. Notuð var aðferð, sem nefnd
er colum chromatography og normalgildi
voru 2,9—6,6, Ti mælingar á Mayo Medical
Laboratories eru gerðar með Competetive
Protein Binding og eru normalgildi 4—11
microgr%.
Frítt thyroxin var mælt á Mayo Medical
Laboratories með dialysu og eru normal-
gildi 0,6—2,6 nanogr%-
T:i var mælt á Mayo Medical Labora-
tories með Radio-Immuno-Assey, normal-
gildi 120—312 nanogr%.
SJÚKLINGAR.
1. sjúklingur. Þessi 26 ára gamla kona leitaði
heimilislæknis 1972 vegna titrings á höndum,
svita og hjartsláttaróþæginda. Hún taldi sig
hafa létzt um 10 kg. undanfarin 4—5 ár. Hún
var send til rannsóknar á Landspítalann og
revndist geislajoðupptaka vera 45 % eftir 4
klst. og 53% eftir 24 klst. Serum T.| mældist
3.6 microgr%. Niðurstaða var að „þrátt fyrir
normait T4 verður að teljast mjög grunsam-
legt að konan sé með hyperthyroidismus".
Við skoðun í Læknastöðinni hafði konan
mörg einkenni um thyrotoxicosu. Húðin var
heit og rök. áberandi titringur var á höndum,
púls 100/mín. Skjaldkirtill var þreifanlegur,
báðir lappar nokkuð jafnt stækkaðir en ekki
mikið. enga hnúta var hægt að finna. Það
heyrðist „bruit“ yfir kirtlinum. Augu voru eðli-
leg. Hún var á engum iyfjuni. Mæling á T4
var nú endurtekin tvisvar á Landakotsspítala
og revndist vera 4,3 og 4,0 microgr%. Bindi-
geta var mæld með því að mæla TBG, sem
var 91 eining. Jafnframt var blóð sent í mæl-
ingu á T:i til Mayo Medical Laboratories og
revndist vera 383 nanogr%.
Nú var gert suppressionspróf og gefið 100
microgr. af T:i á dag í töfluformi í 5 daga og
geislajoðunntaka gerð á fimmta degi. Reyndist
þá 4 klst. upptakan vera 37%, en 24 klst. upp-