Læknablaðið : fylgirit - 01.08.1978, Page 23

Læknablaðið : fylgirit - 01.08.1978, Page 23
21 Kristján Jónasson HRYGGÞÓFARANNSÓKNIR MEÐ SKUGGAEFNI Bakþreyta, þursabit og þjótak eru sjúk- dómseinkenni, sem oft gefa tilefni til röntgenmyndatöku á mjóbaki. Algengasta orsök þessara sjúkdómseinkenna er hrörn- unarsjúkdómur í hryggþófum í mjóbaki. Aðeins í u.þ.b. 20% tilfellanna er getið á- verka í sjúkrasögu.5 Þessi sjúkdómur veldur mestum einkenr.- um hjá fólki á besta aldri, 30—50 ára og gerir það oft óvinnufært um lengri eða skemmri tima. Sjúkdómurinn hefur því ekki aðeins alvarlegar afleiðingar fyrir sjúklingana heldur og fyrir þjóðfélagið. Vegna þessa sjúkdóms tapast árlega mikil verðmæti í glötuðum vinnudögum. Hrörnunarbreytingarnar byrja í hrygg- þófakjarnanum, sem þornar, springur og fúnar. Fúinn í kjarnanum veldur því að trefjabaugurinn þolir ekki eðlilegt álag. Hann springur, fúnar og eyðist á sama hátt og kjarninn. Hryggþófinn getur þá bungað aftur í hrygggöng og þrýst á mænu og taugarætur. Verði brestur í trefjabaugnum pressast kjarnahlutar út úr þófanum, oftast aftur í hrygggöng, undir eða í gegnum aft- ara langband. Þessi fylgikvilli hryggþófa- hrörnunar kallast hryggþófahlaup (pro- lapsus disci intervertebrales). Sjúkdómseinkenni eru stundum svo skýr að röntgenrannsókna gerist nánast ekki þörf. í öðrum tilfellum er greiningin erfið og geta þá röntgenrannsóknir komið að miklu gagni. Nákvæmnin við kliniska greiningu á hryggþófahlaupi er talin vera um 80%. Klinisk hæðarstaðsetning á hryggþófa- hlaupinu er erfið og þar er nákvæmnin ekki talin nema 65—70%.2 Bakmyndir af sjúklingum með hrygg- þófahrörnun í mjóbaki sýna í 50% tilfell- anna lækkaða hryggþófa, stundum með beinasporamyndun á liðbolsbrúnunum í kringum þófann. Þegar sjúkdómurinn hef- ur staðið lengi þykkna endaplöturnar, sem liggja að hinum hrörnaða hryggþófa. Hryggþófahlaup er ekki hægt að greina á yfirlitsmyndum. Röntgenmyndin getur verið alveg eðlileg en hún getur einnig sýnt einn eða fleiri lækkaða hryggþófa og þann- ig vakið grun um hryggþófahrörnun. Með skuggaefni er hægt að sýna fram á hryggþófahlaup. Það má gera óbeint með því að sprauta skuggaefninu í mænusekk- inn, en einnig má sprauta því beint í hrygg- þófakjarnann. Fyrri rannsóknaraðferðin kallast myelografia en sú síðari discografia eða nucleografia. Myelografian er mikið notuð til þess að sýna fram á dældir í mænusekk og rótar- vasa. Líkurnar á því að slíkar dældir orsak- ist af hryggþófahlaupi eru miklar, einkum ef dældin er staðsett í sömu hæð og hrygg- þófi. Rótarvasar eru oft stuttir og þá vant- ar stundum alveg. Taugarnar geta því orð- ið fyrir þrýstingi frá hryggþófahlaupi án þess að það greinist á myelografiu. Séu notuð olíuleysanleg skuggaefni er ná- kvæmni myelografiunnar við greiningu á hryggþófahlaupi talin vera 60—80%. Mye- lografia gefur engar upplýsingar um hrörn- unarbreytingar í hryggþófanum. Discografian er bein rannsóknaraðferð, sem gefur mynd af hryggþófanum og sýnir hrörnunarbreytingar á hinum ýmsu stig- um. Myndirnar gefa hins vegar ekki upp- lýsingar um hvort ákveðin einkenni, sem leitað er skýringar á, stafi frá hryggþófa- hlaupi, eða hvort hryggþófahlaup, sem greint er á röntgenmynd, þrýsti á taugarót. Slíkar upplýsingar gætu hins vegar fengist ef gerð væri myelografia og discografia samtímis á sama sjúklingi. Innspýting á skuggaefni í hryggþófa framkallar sársauka. Sársaukatilfinningin er talin hafa greiningargildi. Framkalli innspýting samskonar rótarverki og sjúk-

x

Læknablaðið : fylgirit

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið : fylgirit
https://timarit.is/publication/991

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.