Læknablaðið : fylgirit - 01.08.1978, Síða 27

Læknablaðið : fylgirit - 01.08.1978, Síða 27
25 Mynd 3: — C: Hryggþófahlaup. D: Hrygg- þófahlaup og hryggþófarifa. þófahlaup, 4) Hryggþófarifa (myndir 2 og 3). í sama hryggþófa geta allar hinar sjúklegu breytingar farið saman. Erfitt getur verið að greina hrörnun á byrjunarstigi. Eins og áður er sagt getur kjarnmn verið mismunandi að stærð og mitti er ekki alltaf til staðar. Sjúkdóms- greiningin hryggþófahrörnun er ekki örugg nema hryggþófinn sé lægri en eðlilegt er.1 Hryggþófarnir afmarkast af línum sem tengja saman aðliggjandi liðbolsbrúnir. Ef skuggaefnið fer út fyrir þau mörk, sem afmarka hryggþófann, er greiningin hrygg- þófahlaup. Algengast er að hlaupið verði posterolateralt í hrygggöng, en það getur einnig orðið beint aftur á við, til hliðanna eða fram á við. Hlaupin geta einnig orðið lóðrétt í aðliggjandi endaplötur. Ef skugga- efnið fer aftur í hrygggöng og dreifir úr sér fyrir framan mænusekk og myndar þar rák, samsíða hrygggöngum, gefur það til kynna rifu í trefjabaug og aftara langband. Greiningin er þá hryggþófarifa. Röntgengreiningin hryggþófahlaup felur í sér bæði bungandi hryggþófa og hlaup undir eða í gegnum aftara langband. Stund- um má greina eyður í skuggaefnið, sem safnast fyrir aftan mörk hryggþófans, og þá draga þær ályktanir, að þófahlutar hafi far- ið gegnum trefjabaug og aftur í hrygggöng. Þegar hryggþófahlaup hefur verið greint á röntgenmynd á eftir að gera sér grein fyrir hvaða klíniska þýðingu það hefur. Ef hlaupið bungar meira en 3,5 mm aftur í hrygggöng, telur Collis það gefa til kynna, að kjarnahlutar hafi gengið út úr hryggþóf- anum. Líkurnar fyrir þrýstingi á taugaræt- ur eru þá miklar. Ef útbungunin er minni vill hann notfæra sér sársaukasvörun sjúk- lingsins. Hún er af öðrum talin óáreiðan- leg, eins og tekið er fram hér að framan. I vafatilfellum verður læknir sá er annast sjúklinginn að draga ályktanir af klínisk- um einkennum sjúklingsins og haga með- ferð með tilliti til þeirra, ekki síður en af niðurstöðum röntgenrannsókna. Skurðaðgerð var gerð á 14 sjúklingum. sem höfðu verið rannsakaðir með disco- grafiu og voru 29 hryggþófar athugaðir, en á 27 þeirra hafði verið gerð discografia. í aðeins einu tilfelli var hryggþófi athugað- ur, sem var eðlilegur við discografiu. Þessi hryggþófi var eðlilegur við innankönnun. Við aðgerð á áðurnefndum 27 hryggþóf- um komu í ljós 4 frí hryggþófahlaup og 5 bungandi hryggþófar, sem þrýstu að tauga- rótum. f 8 tilfellum fundust sjúklegar breytingar í hryggþófum, sem ollu þó ekki þrýstingi á taugarætur. Þessir hryggþófar voru ýmist bungandi, mjúkir eða mjúkir og bungandi. Botninn undir taugarót var í 8 tilfellum sléttur og hryggþófaflöturinn að aftan virtist eðlilegur. Við discografiu greindust 8 af 9 hrygg- þófahlaupum, sem þrýstu á taugarætur. Hrörnunarbreytingar á discografiu voru oftast augljóslega meiri í þeim hryggþóf- um, sem voru mjúkir, bungandi eða mjúkir og bungandi en í hinum, sem höfðu slétt- an bakflöt. í einu tilfelli var röntgengrein- ingin stórt hryggþófahlaup, þar sem innan- könnun sýndi aðeins bungandi hryggþófa. Discografian gaf i 25 tilfellum af 27 rétta mynd af ástandi hryggþófanna. Þar sem greiningin reyndist ekki rétt, var um að
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Læknablaðið : fylgirit

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið : fylgirit
https://timarit.is/publication/991

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.