Læknablaðið : fylgirit - 01.08.1978, Qupperneq 49
47
atropin, en snarversnaði 10 dögum síðar. Var
lagður inn á augndeildina og hafði þá miklar
fellingar innan á hornhimnu, þétt frumurikt
ar og lágmarksaugnþrýsting, minni en 1 mm
Hg. Fékk dexamethason- og chloramphenicol
dropa á klukkustundar fresti og Cyclopentolat
dropa x4 og útskrifaðist 2 vikum síðar. Þá vai’
s.iónin 6/60, óverulegt ar og minnkandi sjón-
skekkja.
Fjórum mánuðum eftir aðgerð var sjón orð-
in 6/24 + með +0.9 + 3.0 cyl. ax. 125° og las
N8 með +4.0 add. Augnþrýstingur 8 mm,
cngin erting sýnileg. Notar áfram ultralan
dropa og scopolamin x 2. Er ánægður og bjarg-
ar sér ágætlega.
Þetta tilfelli leiðir hugann að því hve
mikla áherslu ætti að að leggja á það að
halda í alblint auga í þeirri von, að það
komi að gagni síðar á óbeinan hátt.
Margir verða fyrir þeirri bitru reynslu
að missa sjón á öðru auga vegna sjúkdóms
eða slyss. Venjan er sú, að reyna að halda
slíku auga, svo framarlega sem það veld-
ur ekki verulegum óþægindum. Alblindu
vegna gláku fylgja oft verkir í auganu og
er þá stundum eina úrræðið að fjarlægja
það. Reynslan hefur og sýnt, að blint auga
með sárum verkjum, sem augnlæknir sér
í fyrsta sinn, er grunsamlegt um illkvnjað
æxli (melanoma) og hefur þess vegna ver-
ið talin ástæða til að fjarlægja öll slík augu
sem fyrst.
í ljósi þessarar sjúkrasögu er ef til vill
ríkari ástæða til að fjarlægja ekki blint
auga, sem hefur lífvænlega hornhimnu, ef
hægt er að ganga úr skugga um, að það
ógni ekki lífi sjúklings eða sjón hins aug-
ans og verkjum verði haldið í skefjum, án
of mikilla fórna af hálfu sjúklings. Oft má
draga verulega úr eða eyða verkjum í
blindu glákuauga með vægari meðferð, en
nægja myndi til að halda augnþrýstingi
innan eðlilegra marka.
SUMMARY.
87-year-old nian with totally eroded cornea
caused by Mooren’s ulcer and an absolute
glaucoma of the other eye underwent an
uneventful combined corneo- scleral autotrans-
plantation and a cataract extraction. Three
months later he got uveal reaction, which
cleared up in a fortnight. Four months after
thc operation the visual acuity was 6/24+, the
reading ability N8 and the corneal astigmatism
was 3 dioptries.
The motive for enucleating painful blind eyes
and the stress of keeping a blind eye with
otherwise healthy anterior segment for even-
tually future autotransplantation is discussed.
Stigahús í Landakotsspítala nýja. Mére Hildegardis. Myndin tekin 1963.
L