Læknablaðið : fylgirit - 01.08.1978, Page 76
74
eða ampicillinmeðferð fyrir komu, með litl-
um árangri. Líkamshiti var eðlilegur eða
lítið hækkaður. Skemmdur jaxl hafði ver-
ið dreginn úr einum þeirra 3 vikum fyrir
bólgumyndun, en hinir tveir voru með lé-
legan tannstatus, þar af annar með rótar-
abscessa. Blóðhagur sýndi nokkra leucocy-
tosu hjá þeim síðast nefnda, en hinir tveir
höfðu eðlilegan fjölda hvítra blóðkorna.
Sökk var aðeins hækkað hjá sjúklingi
þeim, sem lýst er í sjúkrasögu II, sem hafði
stystu söguna og enga meðferð fengið.
Sjúkdómsgreining byggðist á vefjaskoðun
hjá einum, ræktun hjá öðrum og á fistil-
myndun hjá þeim þriðja.
Fyrsti sjúklingurinn og eina stúlkan í
þessum hópi, var hins vegar harla óvenju-
legur actinomycosissjúklingur og hefur
e.t.v., vegna eftirminnilegrar sjúkrasögu,
átt óbeinan þátt í greiningu seinni sjúk-
linganna. Hér var um að ræða thoracal
actinomycosis, þar sem sýkingin réðst að
hjarta og pericardium, en slík staðsetning
er mjög sjaldgæf, eða hjá innan við 2%
actinomycosis tilfella. Hefur færri en 90
hjartaactinomycosis sjúklingum verið lýst
til þessa.(4).
Yfirleitt er hér um að ræða beina út-
breiðslu frá lungum, en haematogen út-
breiðsla frá fjarlægari íocus talin afar
sjaldgæf. Stúlkan hafði í 8 vikur fyrir inn-
lögn haft einkenni um pericardial effusio,
svo sem substernal óþæffindi. hósta og
dysphagiu. Hér virtist sýkingin primert
bundin við hjarta og pericardium, þar sem
ekki tókst að sýna fram á upphafs focus
í lungum með venjulegum röntgenmynd-
um. Fljótlega komu þó fram samvextir
milli pericardium og pleura. Ekki tókst að
ná í pericardial vökva til rannsóknar, þar
sem pericardial effusio minnkaði tiltölu-
lega flictt. Hins vegar kom seinna fram á-
berandi pleural effusio og náðist vökvi það-
an, sem revndist neikvæður við ræktun.
Hin Gram-iákvæðu, mislöngu, þráðlaga seg-
ment, er sáust við smásjárskoðun, hefðu
þó átt að vekja grunsemdir um mycelia-
hræði. úttútnaða vegna þunnfijótandi um-
hverfis. Hvort sterameðferðin hefur átt
þátt í að flýta fyrir húðmeinvörpum skal
ekkert fullyrt, en haematogen útbreiðsla
thoracal actinomycosis til húðar, subcutis
og vöðva hefur verið lýst nokkrum sinn-
um hjá fullorðnum, einkum í seinni
tíð(:!814).
Af hinum fáu actinomycosis tilfellum hjá
börnum, sem greint er frá á síðustu ára-
tugum, er aðeins vitað um eitt annað barn,
sem sýnt hefur fjarlæg actinomycosis
meinvörp. Var það 13 ára stúlka, sem í
heilt ár hafði kennt vaxandi mæði og
þreytu og lést um 13 kg. Mánuði fyrir
innlögn var tekið eftir þrota á vinstri
fæti og 2 vikum fyrir innlögn bólgu undir
kjálkabarði. Við innlögn fannst einnig fyr-
irferðaraukning á hægra læri og röntgen-
mynd sýndi infiltrat í lobus inferior pulm.
sin. Hún var upphaflega grunuð um lymph-
oma eða einhverja sveppasýkingu og
grunsemdir um actinomycosis vöknuðu
ekki, fyrr en sulfur granulur sáust í pus
frá útgrafinni laesio á fæti(14).
Hjá þessum tveimur börnum voru það
því húðmeinvörpin, sem komu til hjálpar
og leiddu til réttrar greiningar, áður en i
verulegt óefni var komið.
Actinomycosisgreining er erfið og oft
ekki gerð, nema ákveðinn kliniskur grun-
ur sé fyrir hendi og sérstaklega sé beðið
um anaerobe-actinomycosisræktanir og sér-
stakar litanir á vefjasýnum.
Ástæða er til að senda mörg, endurtekin
pussýni í ræktun, enda þótt actinomycosis
meðferð sé hafin, eins og vel kom fram
hjá fjórða sjúklingnum, þar sem 11. sýnið.
eftir margra daga i.v. penicillingjöf, var
hið eina, er sýndi hreinræktun af actino-
myces.
Vænlegast til árangurs er að finna sulfur
granulur. Þetta er þó oft erfiðara en ætla
mætti og best hefur reynst að blanda
fersku pus, teknu djúpt úr ígerð, saman
við sótthreinsað vatn og hella í þunnu lagi
á hreina Petri-skál. Þá má greina með ber-
um augum hin hnoðróttu, gulhvítu korn
og taka þau upp með glerpípu og útbúa
annars vegar strok til Gram-litunar og hins
vegar setja beint í anaerobe-ræktun á 5%
hrossablóðsagar(3). Einnig má leita að
sulfur granulum í sótthreinsuðum umbúð-
um, sem hafa legið á opinni laesio yfir
nótt(14).
Sjúkdómsgreiningin byggist fyrst og
fremst á ræktun, en í flestum tilvikum er
smásjárskoðun og vefjaskoðun einnig af-
gerandi, enda þótt Nocardia asteroides geti