Læknablaðið : fylgirit - 01.08.1978, Side 86

Læknablaðið : fylgirit - 01.08.1978, Side 86
84 Óli Björn Hannesson SMÁSJÁRAÐGERÐIR VIÐ AUGNLÆKNINGAR Ný glákuaðgerð kynnt Á síðustu tveim áratugum hafa orðið miklar tækniframfarir í augnskurðlækn- ingum og þar á ég við smásjáraðgerðir (microsurgery), sem hafa verið að ryðja sér braut í vaxandi mæli. Við skurðlækn- ingar á augum hafa augnlæknar lengi not- að gleraugu með stækkunarútbúnaði (loupe), sem stækkar tvöfalt og jafnvel upp í fjórfalt, hefur þetta verið nauðsyn- legt vegna smæðar liffærisins, og eykur verulega nákvæmni við augnaðgerðir. Hins vegar hafa með aukinni tækni verið hannað- ar aðgerðarsmásjár (operating micro- scopes), sem hafa bætt enn mjög mikið þá möguleika sem felast í miklum mun ná- kvæmari vinnu við þetta viðkvæma líffæri, enda er stækkunin með aðgerðarsmásjá frá sexfaldri stækkun upp í um fimmtugfalda stækkun. Kemur þetta einkum að mjög góðum notum við innri aðgerðir á auga (intraocular) og við aðgerðir á meiðslum á fremri hluta augans. Ég kynntist þessari tækni árið 1967 í sérnámi mínu, og fannst mér hún strax mjög hagnýt, og þar sem við notuðum þar að staðaldri aðgerðarsmásjá við allar innri aðgerðir á auga, var auðvelt að öðlast staðgóða þjálfun í þessari nýju aðgerðar- tækni. Þegar ég hóf störf við Landakots- spítala árið 1972, hafði spítalinn nýverið fengið aðgerðarsmásjá að giöf og hef ég notað hana síðan við áðurgreindar aðgerðir. Eins og að framan er getið, hafa fram- farir á bessu sviði orðið miklar á síðustu tveim áratugum. Það var strax ljóst, að hér var kcmin tækni, sem bauð upp á möguleika á nýjum aðgerðum cg nákvæm- ari vinnubrögð við þekktar aðgerðir sérstaklega við slysasár á glæru (cornea), bannig að endanlegur árangur. m.t.t. sjón- hæfni augans. yrði betri en áður. f fyrstu mættu smásjáraðgerðir nokkrum andbyr og fannst ýmsum augnlæknum að tæknin væri of flókin og aðgerðir tækju of lang- an tima. Þessar raddir komu frá þeim, sem ekki höfðu reynt þessa nýju tækni að neinu marki, og höfðu ekki gert sér grein fyrir möguleikum smásjáraðgerða. Þeir, sem aðhylltust smásjáraðgerðir, tóku þessum mótbárum með skilningi og unnu ótrauðir áfram að sínum hugðarefnum með slíkum árangri, að fáum blandast nú hug- ur um, að þeir voru á réttri leið. Þrátt fyrir tæknilega þróun og framfarir í augn- skurðlækningum, má þó ekki gleymast, að það er hugur og hönd augnskurðlækn- isins, sem skiptir mestu máli. Og með þetta að leiðarljósi skulum við líta nokkru nánar á hin helstu tæknilegu vandamál, sem eru samfara þessarri nýju aðgerðar- tækni. Árið 1966 var haldin fyrsta alþjóðaráð- stefnan um smásjáraðgerðir við augnlækn- ingar. Hittust þá frumkvöðlarnir í Tubin- gen í Þýskalandi og var það fyrsta „Sympo- sium of the Ophtalmic Microsurgery Study Group“. Slíkar ráðstefnur hafa síð- an verið haldnar á tveggja ára fresti víðs- vegar um heim, m.a. einu sinni á Norður- löndum, það var árið 1972 í Lundi í Sví- þjóð. Á ráðstefnum þessum hafa viðfangs- efnin verið krufin til mergiar, menn miðl- að af reynslu sinni og gerðar tilllögur um tæknilegar endurbætur, bæði hvað varðar aðgerðarsmásjána og skurðáhöldin. Rædd- ar hafa verið nýjar aðgerðir og vandamál teim tengd með góðum árangri, og hefur því þessi nýia tækni tekið miklu meiri framförum á síðustu árum, en menn hafði órað fyrir. ÞFÓUN A ÐGERÐARSMÁSJÁRINNAR Um árið 1950 komu fyrst fram aðgerð- arsmásjár. Árið 1952 var framleidd aðgerð- arsmásjá, sem ætluð var til otologiskra að- gerða og colposcopiu. Þess má geta hér,

x

Læknablaðið : fylgirit

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið : fylgirit
https://timarit.is/publication/991

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.