Læknablaðið : fylgirit - 15.12.1994, Qupperneq 28
26
LÆKNABLAÐIÐ/FYLGIRIT 27
_ __ MEÐFERÐ HRÖRNUNAR I ALGNBOTNUM
t Zá MEÐ INTERFERÓNI ALFA-2a
Auöur Bjarnadóttir, Jóhannes Kári Kristinsson,
Einar Stefánsson, Ingimundur Gíslason.
Augndeild Landakotsspítala, Háskóli Islands.
Ellihrömun í augnbotnum (age related macular
degeneration, AMD) er algengasta orsök lögblindu (sjón
6/60 eða minna á betra auga) eða hjá 39.6% þeirra sem
blindir verða. Vot ellihrörnun veldur hratt versnandi
sjóntapi og sjónbjögun (metamorphopsia) en þá verður
nýæðamyndun undir sjónhimnu sem blæðir auðveldlega.
Stundum er unnt að beita leysigeislum á æðanetin en ef net
myndast undir fovea (subfoveal neovascularization) er _
leysigeislum sjaldnast beitt og sjón hrakar mjög hratt. Arið
1991 var fyrst beitt sprautumeðferð undir húð með
interferon alpha-2a við æðanetum undir fovea. Interferon
alfa-2a hindrar nýmyndun æða og innþekjufrumuflakk
(endothelial cell migration) auk þess að blokka viðtaka
fyrir vaxtarhórmón á innþekjufrumum. Skráðar
ábendingar fyrir notkun þess eru hárfrumuhvítblæði og
Kaposi sarkóm.
10 einstaklingar með æðanet undir fovea luku
a.m.k. 8 vikna meðferð með interferóni og var fylgt eftir í
a.m.k. 3 mánuði. Fjórir sjúklingar til viðbótar höfðu hætt
í meðferð vegna aukaverkana. Sjúklingar voru með nýtt
æðanet undir fovea staðfest með fluoresceinæðamyndatöku
eða með blæðingu undir fovea sem benti til æðanets. Sjón
var betri eða jöfn 1/60 í upphafi meðferðar. Til
samanburðar var farið í gegnum skrár frá 1990-1992 og
fundust 8 einstaklingar með sömu sjúkdómsskilmerki og
hópurinn sem fékk interferón.
Meðferðarhópurinn fékk 1.5 milljónirae interferón
alfa-2a undir húð þrisvar í viku. Til að minnka
aukaverkanir var gefið T. Paracetamól 500 mg í hvert sinn.
Tveir fengu 1.0 milljón ae þrisvar í viku vegna
aukaverkana. Æðamyndataka var gerð á flestum á fjögurra
vikna fresú á meðan meðferð stóð og 3 og 6 mánuðum
eftir að meðferð lauk. Blóðstatus var tekinn hjá öllum áður
en meðferð hófst.
Sjón var talin marktækt betri eða verri ef sjúklingur
fór upp eða niður um tvær línur á Snellentöflu. Við 6
mánaða eftirfylgni voru 6 í meðferðarhópnum (86%, n=7)
með óbreytta sjón en 1 sá ver (14%). í
samanburðarhópnum voru 2 (33%, n=6) með óbreytta
sjón 6 mánuðum eftir greiningu en 4 (67%) sáu ver.
Allir í meðferðarhópnum fengu væg flensueinkenni
eftir fyrstu sprautugjafirnar, hroll og beinverki. Aðrar
aukaverkanir voru slappleiki og aukin svefnþörf (31.5%),
ógleði og lystarleysi (26%), höfuðverkur (21%),
húðþurrkur (16%), niðurgangur (16%), kláði (10,5%),
svimi (5%).
Rannsóknir sem gerðar hafa verið hingað til á gjöf
interferóns alfa-2a við æðanetum undir fovea hafa verið
smáar í sniðum og flestar án samanburðarhóps.
Niðurstöðum þeirra um notagildi interferóns alfa-2a við
æðanetum undir fovea ber ekki sarrtan. Okkar niðurstöður
benda ótvírætt úl þess að gjöf interferón alfa-2a geti haldið
sjón óbreyttri í lengri tíma en ef ekkert er að gert. Gera
þarf stórar tvíblindar rannsóknir í langan tíma til að fá
glögga mynd af notagildi gjafar interferóns alfa-2a við
æðanetum undir fovea.
E 24
NOTKUN Á HYDROXYAPATITE SEM
FYLLINGU í AUGNTÓFT EFTIR BROTTNÁM
AUGA.
Haraldur Sigurösson, Stefán Baldursson.
Augndeild Landakots, Sjónstöð íslands..
Tileaneur:
1 meir en 100 ár hefur verið viðurkennd meðferð að
setja inn kúlu í augntóft þegar auga hefur verið
fjarlægt.Það eykur hreyfigetu gerfiauga, einnig getur
efra augnlok lokast betur yfir gerfiaugað. Gler-og
plastkúlur hafa verið vinsæl efni, á seinni árum
hulin einhverju sem hægt væri að sauma augnvöðva
í, líkt og gj!>fahvftu(donor scleru).Á fimmta
áratugnum voiu uotaðaðar kúlur sem voru huldar að
hluta í augntóft, framhluti þeirra skagaði fram að
gerfiauga. Fékkst góð hreyfing á gerfiaugað, en þau
sýktust öll og þurfi að taka. Hydroxyapatite líkist
beinfrauð, götótt kúla, ólífrænt salt kalsium fosfats.
Eigin vefur sjúklings getur vaxið inn f kúluna og
þannig hægt seinna meir að tengja gerfiauga við
kúlu.Fyrstu kúlurnar voru settar í sjúklinga á Islandi
1992, tilgangur rannsóknar er að kanna afdrif þeirra.
Aðferðir og niðurstöður:
All reyndust 15 sjúklingar hafa fengið hydrxyapatite
kúlu.Hjá 7 sjúklingum var kúlan sett inn strax eftir
brottnám auga, hjá 8 sjúklingum var kúlan sett inn
seinna.Fyrstu 5 tilfellin voru með gjafahvítu eins og
áður hafði verið lýst. Seinni 10 tilfellin höfðu aftur á
móti mersilene net umhverfis kúluna, sem hefur
ekki verið lýst áður. Þessir hópar eru bomir saman.
Æðamyndun í kúlu var metin með isotopaskanni,
reyndust allar hafa æðanýmyndun. Ljósmyndir og
myndbönd eru notuð til að meta hreyfingu
gerfiaugna. Bornir eru saman hópar sem fengu kúlu
strax eftir brottnám auga miðað við þá sem seinna
fengu. Eina kúlu þurfti að fjarlægja vegna
æxlisvaxtar í andliti, því tilfelli er lýst.