Læknablaðið : fylgirit - 15.12.1994, Side 52

Læknablaðið : fylgirit - 15.12.1994, Side 52
48 LÆKNABLAÐIÐ/FYLGIRIT 27 ALGENGl OG NYGENGITYPI) II AK E 67 SYKURSÝKI MEÐAL ÍSLENSKRA KARLA OG KVENNA. Sigurjón Vilbergsson, Gunnar Sigurðsson, Helgi Sigvaldason, Astráður B.Hreiðarsson, Nikulás Sigfiisson. Læknadcild Háskóla Íslands, Rannsóknarstöð Hjartavemdar, Lyflækningadeild BSP, Göngudeild sykursjúkra LSP, Verkiræðiskrifstofa Helga Sigvaldasonar. Í þessari rannsókn var f.o.f. reynt að ákvarða algengi og nýgengi týpu II á Íslandi og meta hvort breyting hafi orðið á þessum tuttugu árum sem rannsóknin nær yfir. Einnig var skoðað hve mikill hluti var ógreindur á móti þekktum sykursýkisjúklingum og meðferðaformið meðal þeirra. Ekki hafa verið gerðar neinar sérstakar rannsóknir á algengi sykursýki týpu II á Islandi. Reynt hefúr verið að áætla algengið núna allra síðustu ár þar sem þessar upplýsingar hefijr nauðsynlega vantað. I öðrum vestrænum löndum virðist algengi sykursýki týpu II fara vaxandi og er forvitnilegt að sjá hvort svo eigi einnig við hér á landi. Þýðið i þessari rannsókn voru karlar fæddir 1907-1934 og konur fæddar 1908-1935 úr áfanga I-V úr hóprannsókn Hjartavemdar á árunum 1967-1991. Sykursýki týpa II var skilgreind sem jákvætt svar við sykursýki úr spumingakveri Hjartavemdar og/eða þeir sem höfðu fastandi blóðsykur (FBS) > 6.1 mmól/1 (110 mg/dl) og/eða 10.0 mmól/1 (180 mg/dl) á sykurþolsprófi (50 gr. gefin um munn og mælt eftir 1,5 klst ). Fyrir bæði greinda og ógreinda sykursýkisjúklinga í aldurshópnum 50-64 ára reiknast samtals aldursstaðlað algengi fyrir karla 3,9% en 2,6% fyrir konur, en ekki er marktækur munur milli karla og kvenna. Aldurstaðlað nýgengi reiknaðist 372/100.000 per/ár fyrir karla og 238/100.000 per/ár fýrir konur í aldurshópnum 55 ára. Ekki kom i ljós marktæk breyting á algengi né nýgengi ffá áfanga I (1967-’69) til áfanga V (1983-’9I), hvorki hjá körlum né konum. A töflum voru um 43% karlanna og 35% kvennanna en á sérstöku mataræði eða tiltóku enga meðferð voru 55% karlanna og 63% kvennanna. Algengi og nýgengi sykursýki týpu II virðist aðeins lægra eða svipað hér á landi og víða annars staðar og er það í samræmi við það sem áður hafði verið áætlað óbeint. en mjög erfitt er að bera saman niðurstöður milli landa vegna mismunandi greiningaaðferða. Ekki mældist vaxandi algengi ftá 1967-1991 í aldurshópunum 50-64 ára. Munurinn er ekki marktækur milli karla og kvenna bæði hvað varðar algengi og nýgfengi. SARKLÍKI OG MENGIIN KÍSILGÚRS Ólafúr Ingimarsson'), Ingimar Hjálmarsson^), Hólmfríður Gunnarsdóttir'>3), Vilhjálmur Rafnsson'>3). 1) Rannsóknarstofa í heilbrigðisfræði, Háskóla íslands, 2) Sjúkrahús Húsavíkur 3) Atvinnusjúkdómadeild Vinnueftirlits ríkisins INNGANGUR Sarklíki er sjúkdómur af óþekktum orsökum. Fyrir tíu árum höfðu greinst þrír sjúklingar með lungnasarklíki sem unnið höfðu við framleiðslu kísilgúrs. Þá þegar virtist þetta há tíðni sjúkdómsins í litlum hópi manna. A Heilsugæslustöðinni og Sjúkrahúsinu á Húsavík hafa fleiri greinst með sarklíki á undanfömum árum og var grunur um að einhverjir þeirra hafi áður unnið við kísilgúr. Markmið þessarar rannsóknar var að athuga hvort þeir sem orðið hafa fyrir mengun kísilgúrs við vinnu eru í meiri hættu að fá sarklíki en aðrir. EFNI OG AÐFERÐIR Þetta er tilfella-viðmiða rannsókn (case-control study). Tilfellin voru fúndin þannig að leitað var í röntgenspjaldskrá Sjúkrahússins á Húsavík að sjúklingum með greininguna lungnasarklíki og einnig vom læknar sjúkrahússins spurðir hvort þeir myndu eftir sjúklingum með sarklíki. Tilfellin höfðu öll fengið greininguna sarklíki og var hún í öllum tilvikum studd vefjagreiningu nema í eitt skipti. Hendingsúrtak viðmiða var fengið úr íbúaskrá Húsavíkurlæknisumdæmis árið 1988. Athugað var með samkeyrslu í tölvu hvort tilfelli og viðmið fýndust i starfsmannaskrá yfir þá sem unnið höfðu við framleiðslu kísilgúrs og útskipun hans. Skráin var gerð samkvæmt upplýsingum frá tveim fýrirtækjum sem höfðu haft þessa starfsemi. Starfsmannaskráin var færð af öðru tilefni en eru markmið þessarar rannsóknar. I henni voru upplýsingar um hvaða ár menn hófú störf og hættu og hversu margar klukkustundir menn höfðu unnið. Með tölvusamke>Tslunni fengust niðurstöður um hver tilfella og viðmiða höfðu orðið fýrir mengun kísilgúrs. NIÐURSTÖÐUR Atta sjúklingar höfðu greinst með sarklíki á Húsavík á árunum 1974 til 1993. Sex þeirra höfðu unnið í mengun kísilgúrs. Af 70 viðmiðum höfðu 13 unnið í mengun kísilgúrs. Þetta gaf áhættuhlutfallið 13.2 sem var tölfræðilega markmækt á 1% stigi. í öllum tilvikum hafði sarklíkissjúkdómurin góðkynja feril og ekkert tilfellanna hafði langvarandi klínisk einkenni. ÁLYKTANIR í læknisfræðinni eru nokkur dæmi um tilfelli þar sem fýrir koma hnúðóttar breytingar og sarklíkisbreytingar í húð og lungum sem tengd hafa verið mengun kristallaðrar kísilsýru en þar hefur þó ekki verið um að ræða kísilgúr. Við teljum sennilegt að mengun kísilgúrs eigi þátt í tilurð sarlíkis þar sem áhættuhlutfallið er eins hátt og raun ber vitni í þessari rannsókn.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128

x

Læknablaðið : fylgirit

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið : fylgirit
https://timarit.is/publication/991

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.