Læknablaðið : fylgirit - 15.12.1994, Page 74
66
LÆKNABLAÐIÐ/FYLGIRIT 27
SÝKINGAR MEÐAL BARNA Á ÍSLANDI SEM
E 103 MEÐHÖNDLAÐAR ERU MEÐ SÝKLALYFJUM
Vilhjálmur A. Arason (l,2), Jóhann Á Sigurðsson (2),
Sigurður Guðmundsson (3).
(I) Slysa- og sjúkravakt Bsp., (2) Heimilislæknisfræði
HÍ , (3) Lyfjadeild Lsp.
Efri loftvegasýkingar barna eru algengar og er oftast
um að ræða veirusýkingar Stundum er grunur um
bakteriusýkingu og þá gjaman meðhöndlað með sýklalyfi.
Lítið er vitað um tiðni bakteriusýkinga i efri loftvegum
bama Eymabólga er þekkt vandamál i greiningu sem
oft er meðhöndluð með sýklalyfi. Sýklalyfjanotkun
islenskra barna er meiri en á hinum Norðurlöndunum
Tilgangur rannsóknarinnar var að kanna algengi og
nýgengi sýklalyfjameðferða og ástæður, fýrir mismunandi
aldur og búsetu svo og til samanburðar við önnur lönd.
Á tímabilinu okt.1992 - nóv. 1993 voru valin frisk
böm í leikskólum og í ungbarnaeftirliti svo og böm sem
leitað var með til læknis vegna efri loftvegasýkinga á
aldrinum l-6 ára. Úr sjúkraskrám og með
spurningalistum til foreldra var athugaður fjöldi og
ástæður sýklalyfjameðferða síðustu I2 mánuði. Valdir
vom 5 staðir á landinu
Alls völdust 832 börn í rannsóknina sem var um 20%
bama sem búsett vom á svæðunum á aldrinum l -6 ára.
Börn valin í leikskóla vom 491, böm í ungbarnaskoðun,
112 og böm með efri loffvegasýkingu 229.
62% barnanna höfðu fengið sýklalyfjameðferð á árinu
65% meðferðanna var vegna eyrnabólgu, 17% vegna
hálsbólgu, 8% vegna berkjubólgu, 3% vegna
lungnabólgu, 1% vegna skútabólgu og 1% vegna óljósra
loftvegasýkinga (kvef). Fimm prósent meðferða var
vegna annara ástæðna (húðsýkingar og
þvagfærasýkingar) Fyrirbyggjandi sýklalyfjameðferð
(meðferð > 3 vikur samfellt) fengu 4% barnanna, þar af
69% vegna endurtekinna eymabólgna og 31% vegna
þvagfærasýkinga. Meðferðarfjöldi (nýgengi) var frá 2.5
meðf/barn/ár hjá 1 árs gömlum bömum niður í 1.0
meðf./barn /ár hjá 6 ára gömlum börnum. Algengi
sýklalyfjameðferðar var einnig aldursháð, hæst hjá yngstu
börnunum, 08 meðf/ár/bam en 0.5 hjá þeim elstu.
Munur var á meðferðarfjölda i sama aldurshóp milli staða
eða 2.9 meðf./bam/ár fýrir börn yngri en 2 ára og 2 7 fýrir
2-6 ára þar sem notkunin var mest. Þar sem notkunin var
minnst var hún 1.5 og 1.2 meðf/barn/ár Meðferðarfjöldi
meðal leikskólabama var 1 1-1.7 meðfÆam/ár. Nýgengi
eymabólgu meðal leikskólabarna var einnig mismunandi
milli staða eða 0 6-1 lÆarn/ár en algengi 0.4-0.5 /barn
/ár.
Tiðni sýkinga meðal bama sem meðhöndlaðar em með
sýklalyfjum er há á Islandi. Aðallega er um að ræða
eymabólgur og er tíðnin aldursháð Um helmingur bama
til 6 ára aldurs er meðhöndlaður a.m.k einu sinni á hverju
aldursári vegna eymabólgu Munur er á milli staða,
sérstaklega hvað varðar nýgengi meðferða
SYKLALYFJANOTKUN BARNA Á ÍSLANDI
E 104 Vilhjálmur A. Arason (l ,2), Jóhann Á. Sigurðsson (2),
Sigurður Guðmundsson (3)
(l) Slysa- og sjúkravakt Bsp , (2) Heimilislæknisfræði
HÍ , (3) Lyfjadeild Lsp
Islendingar hafa notað meira af sýklalyfjum en hinar
Norðurlandaþjóðirnar. Eins höfum við notað meira af
breiðvirkum betalaktamlyfjum og trímetóprím.-súlfa Árið
1993 notuðu Íslendingar 22 DDD (defined daily
doses)/1000 íbúa /dag að meðtöldum sjúkrahúslyfjum
Mikil og breiðvirk sýklalyfjanotkun hefúr verið talin auka
hættu á sýklalyfjaónæmi baktería. Hvernig þessu er háttað
meðal barna er ekki eins Ijóst en fýrri kannanir benda til
meiri notkunar sýklalyfja meðal barna hér á landi en á
hinum Norðurlöndunum.
Úr söluskrám apóteka 4 staða á Íslandi, Hafnarfirði
/Garðabæ, Egilsstöðum, Bolungarvik og
Vestmannaeyjum, fengust upplýsingar um alla
sýklalyfjasolu (sjúkrahúslyf ekki meðtalin) á tímabilinu
okt. 1992- sept. 1993. Á aldrinum 0-6 ára áttu 4368 börn
lögheimili á svæðunum fjórum l.des 1993. Skráðar voru
sýklalyfjaávisanir samkvæmt norrænu vörunúmeri sem
síðan var umskráð í fjölda DDD samkvæmt skilgreiningu
WHO og ATC (anatomical, therapeutic, chemical)
flokkun. Eflir kennitölu og afgreiðsludegi var siðan
reiknaður út aldur Siðan var umreiknað i flólda
DDD/1000 ibúa/dag fýrir hvem lyfjaflokk og hvert
aldursár 0-6 ára bama
Lyfjaávísanir voru 6.223 fýrir böm á aldrinum 0-6
ára eða 14 meðfÆarn/ár sem var umreiknað i 13.6
DDD/1000 íbúa/dag Mest var notkunin á breiðvirkum
betalaktamlyfjum, 7.3 , trimetóprim -súlfa, 3 0, penicillín-
V, 2.5 og makróliðar 0.8. Mikill munur var á notkuninni
eflir aldri, mest hjá 1 árs gömlum börnum 23.9 DDD/
1000 íb./dag en minnst hjá 6 ára gömlum bömum, 7.2
DDD/1000 íb./dag Notkun sýklalyfja var lang mest í
Vestmannaeyjum og var notkun 1 árs bama þar 5.0
meðf/barn/ár og bama < 2 ára, 36.8 DDD/1000 íb. /dag,
en 16.3 þar sem hún var minnst Notkun breiðvirkra
betalaktamlyfja var frá 7 8 til 19.4 og trímetóprim-súlfa
3 8-12.4 DDD/1000 íb./dag Meðal barna á aldrinum 2-6
ára var notkunin mest 17.0 (Vestmannaeyjum) en minnst
6 9 DDD /1000 íb./dag Notkun breiðvirkra
betalaktamlyfja 2.9-5 3 og trimetóprim-súlfa 1 5-2.4
DDD/1000 ib./dag Hlutfallslega var notkun
trimetóprim-súlfa og makrólíða mest í Vestmannaeyjum
Tiltölulega litill munur var á hinum svæðunum
Sýklalyfjanotkunin er lang mest hjá yngstu bömunum
og notkunin er mest í Vestmannaeyjum Aðallega er um
að ræða mikla notkun á breiðvirkum betalaktamlyfjum og
trimetóprim-súlfa sem hlutfallslega er mest notað í
Vestmannaeyjum. Ef reiknaðir dagskamtar, DDD sem eru
fúllorðinsskamtar eru umreiknaðir i mg/kg þyngdar væri
munur milli aldursára miklu meiri