Læknablaðið : fylgirit - 15.12.1994, Page 103

Læknablaðið : fylgirit - 15.12.1994, Page 103
LÆKNABLAÐIÐ/FYLGIRIT 27 93 hita- og saltkæra bakterían rhodo- thermus og ættingjar hennar Ólafur S. Andrésson, Sólveig Pétursdóttir og Jakob K. Kristjánsson. Tilraunastöð Háskóla íslands í meinafræði að Keldum og Iðntæknistofnun. Nýr flokkur baktería, sem eru hita- og saltkærar, ófrumbjarga og loftháðar, hefur nú fundist á nokkrum stöðum hérlendis og á Azoreyjum og hafa bakteríurnar hlotiö aattkvíslarnafnið Rhodothermus. Bakteríur þessar eru að ýmsu leyti frábrugðnar þeim tegundum sem lýst hefur verið áður og hefðbundnar greiningaraðferðir benda til að þarna sé á ferðinni nokkuð vel afmarkaður hópur. Var því talin ástæða til að beita nýjum aðferðum, sem byggjast á sameindaerfðafræði, til að komast að stöðu Rhodothermus í þróunartrénu og skyldleika þeirra stofna sem einangraðir hafa verið. Nákvæm greining á ætterni eins af þessum bakteríustofnum hefur nú verið birt (Journal of Bacteriology, október 1994) og er þar leitt í Ijós að Rhodothermus er aðskilin frá helstu fylkingum baktería og er skyldust fylkingu þeirri sem inniheldur Flexibacter, Bacteroides, Cytophaga o.fl. ættkvíslir. V 27 Nú hafa verið skoðaðir 24 stofnar í viðbót, 17 af Reykjanesi, 5 úr ísafjarðardjúpi og 2 frá Azoreyjum. Beitt var hefðbundnum svipgerðar- prófum ásamt aðferð sem sýnir breytileika í erfðaefni (RAPD), og loks hefur hluti af 16S ríbósómgenum nokkurra stofna verið raðgreindur og borinn saman við raðir úr Rhodothermus marinus og fleiri bakteríutegundum. Engin samsvörun er sýnileg milli þeirra þriggja aðferða sem notaðar voru til að flokka stofna, en raðgreining á ríbósómgenum bendir til að þeir skiptist í a.m.k. tvær ættkvíslir. leit að renibacterium SALMONINARUM í URRIÐA (S A L M O V 28 TRUTTA) OG BLEIKJU (SALVELINUS ALPINUS) úr tíu íslenskum vötnum. Halla Jónsdóttir, Sigurður Helgason og Sigríður Guðmundsdóttir. Tilraunastöð Háskóla íslands í meinafræði að Keldum. Nýrnaveiki er af völdum bakteríu sem ber heitið Renibacterium salmoninarum. Hér á landi hefur verið reglubundið eftirlit með nýrnaveikismiti hjá öllum klakfiskum síðan 1987, í fyrstu með ræktunaraðferð en frá 1991 með ELISA aöferð. ELISA, sem er fljótlegri og næmari aðferð en ræktun, leiddi árið 1991 í Ijós háa smittíöni í klakfiskum frá Veiðivötnum og Kvíslárveitu árið 1991. Ræktunaraðferðin nam ekki þetta smit. Sumarið 1992 var smittíðni nýrnaveiki könnuð 1 urriðum og bleikju frá Veiðivatnasvæðinu. Þessi athugun staðfesti háa tíðni nýrnaveikismits í silungum í þessum vötnum og varð til þess að sftirfarandi verkefni, sem miðar að úttekt á 100 'slenskum vötnum, var hrundið af stað. Megintilgangur verkefnisins er að komast að því hvort nýrnaveikismit sé algengt í laxfiskum í íslenskum vötnum og ef svo er hver sé meðaltíðni smits innan stofnanna og hvort smittíðnin sé tengd gerð vatnanna. Sumarið 1993 var þessi rannsókn framkvæmd á fiskum úr 10 af þessum 100 vötnum í samvinnu við eftirfarandi stofnanir: Fiskeldisbraut Hólaskóla, Hólum í Hjaltadal; Líffræðistofnun Háskóla íslands; Náttúrufræðistofu Kópavogs og Veiðimálastofnun. Nýrnaveikismit fannst í silungum úr 5 af þessum 10 vötnum og var smittíðnin í silungastofnunum á bilinu 3-13 %. Þessari rannsókn var fylgt eftir á þessu ári. Helsta niðurstaða er að nýrnaveikismit er talsvert algengt í vötnum hérlendis en smittíðnin nokkuð mismunandi. Ætlunin er að leita skýringa á því. (Rannsóknin er styrkt af Líf og læknisfræðideild Vísindasjóðs).
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128

x

Læknablaðið : fylgirit

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið : fylgirit
https://timarit.is/publication/991

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.