Læknablaðið : fylgirit - 15.12.1994, Side 114
104
LÆKNABLAÐIÐ/FYLGIRIT 27
ÓMEGA-3 FITUSÝRUR í VÖÐVAVEF
V 49 ÍSLENSKS SAUÐFJÁR
Sigrún Guðmundsdóttir Vera Guðmundsdóttir 1,
Guðrún Skúladóttir 2, Stefán B. Sigurðsson 1 og Jóhann
Axelsson 1
1) Rannsóknastofa H.í. í lífeðlisfræði , 2) Raunvísinda-
stofnun Háskólans
A Rannsóknastofu H.í. í 1 ífeðlisfræði hafa um
nokkurt skeið staðið yfir samanburðarrannsóknir á
Vestur-Islendingum og íbúum á Fljótsdalshéraði.
Opinberar heimildir sýna að dánartíðni af völdum
hjarta- og æðasjúkdóma er mun hærri meðal
Vestur-íslendinga en Héraðsbúa. Nýlega lauk
þeim verkþætti er varðar fitusýrusamsetningu í
fósfólípíðum í blóðplasma þessara hópa. Komið
hefur í Ijós að hlutur fjölómettaðra ómega-3 (co-3)
fitusýra í blóðplasma Héraðsbúa er þrefalt hærri en
í blóðplasma Vestur-íslendinga. Niðurstöðurnar
benda til þess að muninn í dánartíðni megi rekja til
mismunandi umhverfis og mataræðis. co-3 fitu-
sýrur í blóðplasma fást úr fæðu (sjávarfangi og
lýsi) og eru taldar vernda gegn hjarta- og
æðasjúkdómum. í rannsókn Manneldisráðs 1990
kom í Ijós að landbúnaðarafurðir en ekki fiskur eru
uppistaðan í fæðu bænda og fbúa í strjálbýli fjarri
sjó. Hinn hái hlutur (0-3 fitusýra í blóði Héraðsbúa
var því að hluta til óútskýrður og því var talið
nauðsynlegt að kanna hvaðan þessar hollu fitusýrur
kæmu. Akveðið var að rannsaka fitusýrur í
vöðvavef sauðfjár framleiddu á Fljótsdalshéraði,
því mcirirhluti kjötneyslu landsmanna er lambakjöt.
Tekin voru sýni úr lærvöðva ungra lamba sem
misfórust í burði (unglömb), lamba sem slátrað var
að hausti á venjulegum sláturtíma (haustlömb) og
úr fullorðnum ám.
Niðurstöður sanna tilvist co-3 fitusýra í
talsverðum mæli í íslensku lambakjöti, þrátt fyrir að
hingað til hafi verið talið að kjöt af landdýrum
innihaldi óverulegt magn þessara fitusýra. Mesta
magn þeirra fannst í unglömbum (8-13%), sem
tengja má notkun fiskimjöls og lýsis f fóðrun
sauðfjár á fengitíma og fyrir burð. Þótt hlutur co-3
fitusýra lækki í 3-6% við sumargöngu lambanna á
fjalli þá teljum við að hlut co-3 fitusýra í blóðplasma
Héraðsbúa megi rekja til neyslu lambakjöts.
ÁHRIF KAFFEINS Á Ca2+ BÚSKAP í
V 50 BERKJUVÖÐVUM
Hilmar Björgvinsson1, Jenny Wingerstrand2,
Elisabet Sager2 og Stefón B. Sigurösson'.
1 Rannsóknastofa í Lífeðlisfrœði, Háskóla íslands,
2Fysiologiska Institutionen, Lunds Universitet
Fersk svínalungu voru tekin úr nýslátruðum svínum
og sett í kalda Krebslausn. Hluti af berkjutréinu
var einangraður úr hœgra lunganu. Skornir voru
3-4 mm breiðir hringir úr berkjunum, þeir opnaðir
þannig að ferhyrndur strimill fékkst. Undir smásjá
voru síðan brjóskflögurnar fjarlaegðar úr
berkjubitanum þannig að eftir var sléttur vöðvi
með epitheli og einhverjum bandvef. Vöðvinn
var festur við tognema í líffœrabaði. Þar er hœgt
að raferta vöðvann og tilheyrandi taugar með
rafsviðsertingu. Vöðvinn var rafertur á 5-10
mínútna fresti og fékkst alltaf samdráttarsvar af
svipaðri staerð.
í Ijós kom að berkjuvöðvinn er mjög háður Ca-
jónum I sínu umhverfi. Það sést á því að ef Ca2+
er fjarlœgt þá minnkar smám saman það
samdráttarsvar sem fœst við rafertingu og er
horfið eftir 40 mínútur í Ca-snauðri Krebs lausn. Ef
EGTA (sem fellir út Ca2+) er haft í lausninni
gengur þetta mun hraðar fyrir sig og ekkert svar
fœst eftir 12-15 mínútur. Ef Ca2+ styrkurinn er
fœrður aftur í eðlilegt horf sýnir vöðvinn fulla
svörun að nýju.
Ef Kaffein í vaxandi styrk er sett út í Krebs lausnina
koma fram tvenns konar áhrif. I lágum styrk (
0,lmM - 1,0 mM) eykst samdráttarsvar við
rafertingu lítillega. Þetta stafar sennilega af
auknum Ca2+ styrk innanfrumu. í hœrri styrk ( 1.3
mM - 32 mM) hefur Kaffein öfug áhrif þ.e. dregur
úr samdráttarstyrk vöðvans við rafertingu og við
32 mM fœst enginn samdráttur. Þetta stafar
líklega af lcekkuðum Ca2+ styrk innan frumu
og/eða að Kaffein hindrar verkun Ca2+ innan
frumu. Kaffein hindrar í háum styrk einnig
samdrátt sem vakinn er með Karbakólíni og
einnig þann samdrátt sem fœst ef vöðvinn er
afskautaður með háum kalíum styrk.
Þœr niðurstöður sem fengist hafa í rannsóknum á
áhrifum efna eins og Kaffein á vöðvasamdrátt
sýna aukinn samdráttarkraft. Okkar niðurstöður
sýna að Kaffein í háum styrk hindrar samdrátt.
Frekari rannsökna er þörf til að athuga á hvern
hátt Kaffein hefur þessi áhrif