Læknablaðið : fylgirit - 15.12.1994, Page 126
116
LÆKNABLAÐIÐ/FYLGIRIT 27
MÓTEFNASVAR HJÁ BÓLUSETTUM LAXI
V 73 (SALMO SALAR L.) GEGN VÆKJUM
KÝLAVEIKIBAKTERÍUNNAR AEROMONAS
SALMONICIDA UNDIRTEGUNDAR
ACHROMOGENES.
Bjarnheiður Guðmundsdóttir, Valgerður
Steinþórsdóttir, Sigríður Guðmundsdóttir og
Bergljót Magnadóttir, Tilraunastöð H. í. í
meinafræði að Keldum.
Stofnar Gram neikvæðu bakteríunnar
Aeromonas salmonicida valda kýlaveiki í
laxfiskum og hliðstæðum sjúkdómum í öðrum
fisktegundum, bæði villtum og öldum.
Aðalmarkmið verkefnisins var að bera
saman mótefnasvar gegn vækjum kýlaveiki-
bakteríunnar A. salmonicida undirtegundar
achromogenes og vörn gegn kýlaveikismiti hjá
bólusettum laxi.
Fiskurinn var bólusettur með fjórum
mismunandi bóluefnum, einu klæðskera-
saumuðu (autogenous) framleiddu af erlendum
bóluefnisframleiðanda (BioMed í USA) og
þremur tilraunabóluefnum, sem hafa verið
þróuð og framleidd á Keldum. Til viðmiðunar var
einn hópur bólusettur með saltdúalausn
íblandaðri ónæmisglæði (Freunds adjuvant,
incomplete) og annar aðeins með saltdúa-
lausn. Eitthundrað fiskar voru í hverjum
tilraunahópi. Fiskurinn var svæfður áður en
hann var bólusettur með sprautun í kviðarhol.
Sex og tólf vikum eftir bólusetningu voru
blóðsýni tekin úr 5 fulltrúum hvers flokks og
blóðvatn einangrað úr þeim með hefðbundnum
hætti. Á sama tíma var gerð tilraunasýking
með því að sprauta bakteríulausn í vöðva
bólusettu fiskanna. Vörn gegn kýlaveikismiti
var mæld sem hlutfall bólusettra fiska sem lifðu
af sýkingu miðað við viðmiðunarhóp (RPS=
relative percent survival). ELISA og Western
blotting próf voru notuð til að mæla mótefni í
blóðvatni gegn vækjum í seyti kýlaveiki-
bakteríunnar.
Niðurstöður sýndu að styrkur mótefna í
blóðvatni var mun hærri eftir 12 en 6 vikur frá
bólusetningu og hærri hjá fiskum, sem
bólusettir voru með tilraunabóluefnunum heldur
en bóluefni frá BioMed. Öll bóluefnin gáfu
góða vörn gegn smiti eftir 12 vikur þó að
smitmagn í sýkingartilraun væri mjög hátt. Eitt
af tilraunabóluefnunum gaf bestu vörnina í
tilraunasýkingum.
Meginniðurstöður rannsóknarinnar voru
að styrkur mótefna í blóðvatni bólusettra fiska
gegn vækjum í seyti bakteríunnar Aeromonas
salmonicida væri ekki í samræmi við þá
vörn, sem bóluefnin vejta gegn kýlaveikismiti.
AHRIF MÖTEFNAVAKA
w 7á KÝLAVEIKIBAKTERÍUNNAR,
V AEROMONAS SALMONICIDA UNDIRT.
ACHROMOGENES. Á HVÍTFRUMURÆKTIR
ÚR BÓLUSETTUM LAXI, SALMO SALAR L„
OG SAMANBURÐARHÓPUM.
Sigríður Guðmundsdóttir, Bergljót Magnadóttir
og Bjarnheiður Guðmundsdóttir. Tilraunastöð H.í. í
meinafræði. Keldum v/ Vesturlandsveg.
Bólusetningum, til varnar kýlaveiki af völdum
Aeromonas salmonicida undirt. achromogenes,
hefur verið beitt í fiskeldi hórlendis undanfarin ár. í
rannsókninni, sem hér er lýst, var frumubundið
ónæmissvar borið saman við vessabundið.
Tilraunahópar voru fjórir. Tveir hópanna voru
bólusettir. Samanburðarhóparnir fengu annars
vegar ónæmisglæði en hins vegar saltvatnslausn.
Áhrif mótefnavaka bakteríunnar á hvítfrumuræktir úr
framnýrum þessara hópa, voru könnuð í
örvunarprófum, með upptöku á geislavirku
thymidini. Prófuð voru áhrif utanfrumuafurða og
málmháðs próteasa (P-20). Utanfrumuafurðir
innihalda fjölda mótefnavaka sem bakterían seytir,
þar á meðal fitutengdar fjölsykrur og P-20, sem
hreinsað var úr slíkri blöndu. Mótefni gegn
utanfrumuafurðum voru mæld með ELISA-aðferð.
Bæði utanfrumuafurðirnar og P-20 sýndu
mítógeniska eiginleika, þ.e. örvuðu frumur úr
óbólusettum fiski. Þetta er í fyrsta skipti sem sýnt er
fram á mítógeniska eiginleika próteasa úr
fiskabakteríu. Líklegt er, að samspil þessa ensíms
og ónæmiskerfisins sé mikilvægt í
sjúkdómsmyndinni. Einnig kom í Ijós, að hár styrkur
utanfrumuafurða gat bælt frumubundna svörun.
Ekki er vitað hvaða þáttur utanfrumuafurðanna er
hér að verki, en þetta kann einnig að vera
mikilvægt í samspili hýsils og sýkils. Erfitt er að
fullyrða um sértæka frumubundna svörun í
bólusettum fiski, þar sem mítógenisku áhrifin eru
einnig til staðar í þessum ræktum. Auk þessa, voru
ósérhæfð áhrif ónæmisglæðisins til staðar er
tilrauninni lauk. Prýðileg mótefnasvörun var í
báðum bólusettu hópunum. Engin samsvörun kom
fram milli frumubundins svars og mótefnasvars við
samanburð gilda úr sömu einstaklingum.