Nýjar kvöldvökur - 01.09.1918, Page 68

Nýjar kvöldvökur - 01.09.1918, Page 68
194 NÝJAR KVÖLDVÖKUR. Svo uppgötvaði hann, að þarna í klúbbn- um voru fleiri tegundir af hákörlum. Fram- koma hans við Holdsworty, var þó líkari því, að hann væri bróðir hans og bar hann meira traust til hans, en annara klúbbsfélaga. Gaf hann honum oft góð ráð og kom honum stundum á framfæri, ef tækifæri gafst. Pessi vinur hans átti skrautlegt og ágætt heimili í nánd við Menlo-garðinn, var Harnish þar tíð- ur gestur og dvaldi þar stundum yfir helgar, frá laugardegi til mánudags. Vinur hans lifði þar með fjölskyldu sinni, í svo mikilli einingu og friði, að Harnish hafði ekki áður dreymt um, að svo ástríkt og indælt heimilislíf gæti átt sér stað. Holdsworty ræktaði mikið af bióm- trjám og fékst og við fuglarækt. Pessi tvö viðfangsefni tóku mjög upp tíma hans, og Harnish var það og mikil ánægja að taka öðru hvoru þátt í þessari starfsemi hans, sem trygði vinasarnbandið á milli þeirra. »Hann er vel efnaður verslunarmaður, sem gerir sig ánægð- an með smávinninga, en er ekki svo ágjarn, að hann hafi hvöt til að velta sér út í stór- vægilegt fjárglæfrabrall,* var dómur Harnish um hann. Einu sinni þegar Harnish sat heima hjá honum, í góðu yfirlæti, vakti Holdsworty máls á því við hann, að það myndi vera gróðavæn- legt fyrir hann, að leggja nokkurt fé í tígulsteina- verksmiðju í Cylen Hallen. Harnish hlustaði með eftirtekt á skýringar vinar síns um þetta mál, og honum skildist svo, að gróðavænlegt mundi vera að taka þátt í þessu fyrirtæki, það einasta, sem hann hafði við þetta að athuga, var, að þetta væri svo óverulegt, og lægi eig- inlega fyrir utan það verksvið, sem hann hafði hugsað sér að vinna á, það var því einungis fyrir vináttu við Holdsworty,[að hann lofaði að leggja fje í þetta fyrirtæki, eftir að hinn hafði skýrt honum, frá að hann ætti sjálfur fje þarna standandi og hann áliti fyrirtækið mjög arð- vænlegt. Harnjsh lagði þegar fram 50,000 dollara, sem var það fje, sem vinur hans ósk- aði eftir, að hann legði til. Síðar sagði hann brosandi: »Eg var gabbaður, á því er enginn efi, en það var eiginlega ekki Holdsworfy sem gerði það, heldur bölvaðir ungarnir hans og blómsturtrén.« Af þessu gat hann lært, að fáum myndi treystandi í viðskiftaheiminum, gestgjafa vinátt- an var ekki mikils metin gagnvart ónýtri tígul- steinaverksmiðju og 50,000 dollurum í pen- ingum. Eftir þetta komst sú skoðun inn hjá honum, að allir þessir margkynjuðu hákarlar, syntu einungis á yfirborðinu, en niður í djúp- inu mundi mega finna tállaus viðskifti og áreiðanlega menn. Hinir stóru iðnaðarkongar og peningabur- geisar mundu því vera þeir menn, sem eitt- hvað væri eigandi við, þar mundi ekki vera rúm fyrir smásmyglis fjárdrátt og svik. Af smá mennum, væri aðeins hægt að eiga von á því, að í vináttuskyni væru menn narraði til að kaupa verðlausar verksmiðjur, en í viðskiftum miljónamæringanna, mundi slíkt ekki þykja ó- maksins vert. Þar væri allur. hugurinn við að bæta landið og auka verðmæti þess, með því að rækta það og vinna málma úr skauti þess, bæta vegi og auka járnbrautir. Peir menn, sem við þetta fengjust, mundu spila hátt, en heið- arlega. Afleiðingar af þessari skoðun hans, var sú, að hann einsetti sér að Iáta þessa smáu fjár- málamenn, eins og Holdsworty, sigla sinn eig- in sjó og eiga ekkert við þá í framar. Yfir- borðsvináttu hélt hann þó við suma þeirra, en vildi þó engan þált taka í fjármálaspilum þeirra. Svo fór hann að skygnast eftir tækifæri til að komast inn í stórbrall miljónamæringanna. var það af hendingu, að hann hitti hinn mikla mann, Jón Dowsett. Hann hafði ferðast til eyjanna Catalina í fjármálaerjndum, og komst þaríkynni við Jón Dowsett, sem hvíldisigþar nokkra daga á ferð sinni vestur að Kyrrahafinu. Dowsett hafði heyrt getið um Klondyke konung- inn og hinar þrjátíu miljónir, sem fregnirnar sögðu, að hann myndi hafa handa í milli. Það var nóg til þess að þessi mikli maður kom því svo fyrir, að vinátta hófst milli hans og Hamish. Dowsett hafði jaegar komið til hugar

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.