Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira. - 01.01.1929, Qupperneq 5
TIL LESANDANNA.
Stefnir ætlar ekki að hafa mörg formálaorð til þess að
kynna sig. Er meira undir því komið, að hann kynni sig vel
með starfi sínu.
En þó mun ekki veita af, að færa rök fyrir því með
fáeinum orðum, hvaðá erindi hann á, vegna þess, hve mikið
er fyrir af tímaritum í landinu. Tilgangur Stefnis er sem
sé alls ekki sá, að taka frá neinu þeirra, eða ganga inn
á þau svið, sem þau hafa helgað sér.
En það er nú svo, að þrátt fyrir allan tímaritafjöldann,
eru ákveðin verkefni, alveg nægileg fyrir stórt og öflugt
tímarit, sem ekkert þeirra vinnur, nema þá að mjög litlu
leyti. Skal nefna hér þau verkefni, sem Stefnir vill vinna.
1. Stefnir vill ræðá þjóðmál og fræða um þau, frá sjón-
armiði einstaklingsframtaks og athafnafrelsis. Þetta er nú
sú stefna, sem ráðið hefir undanfarandi- Sú stefna hefir á
fremur skömmum tíma borið mannkynið áfram til stór-
stígari framfara í verklegum efnum og meiri auðsældar og
velmegunar, en nokkur önnur stefna hefir gert. Það mætti
því ætla, að hana væri óþarft að ræða. Hún sæti föst í sessi
•og þar væri ekki fræðslu þörf.
. En sannleikurinn er sá, að hér er langt frá að svo sé.
Mennirnir eru breytingagjarnir. Þegar eitthvað hefir
staðið um tíma, vilja menn skifta um og fá annað. Er þá