Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira. - 01.01.1929, Blaðsíða 56
54
Frá Alþingi 1929.
[Stefnir
þjóðarinnar." Síðan nefndi hann
aðeina eitt mál, og hitti á eitt
hið varhugaverðasta: Ábúðarlaga-
frumvarpið.
1 ruslakistuna varð forseti að
fara, leita meðal þeirra frum-
varpa, sem þingið afgreiddi ekki,
til þess að finna „vorhug“ þess.
En bezt þykir þó venjulega vora,
þegar nýgræðingurinn fær að lifa
og dafna.
Dómur forseta sameinaðs þings
er því rétt á litið óskaplegur áfell-
isdómur.
En það var forseti neðri deild-
ar einn, sem hafði mannrænu í
sér til þess að segja alveg eins
og honum bjó í brjósti og allir
fundu. Hann sagði meðal annars:
„Eg býst við, að það verði nú
svo, sem oft áður, að mjög orki
tvímælis um störf þessa þings. Er
ekki trútt um, að mér komi í hug
orð þau, er höfðingi nokkur, Þor-
varður Þórarinsson, sagði síðla á
Sturlungaöld, er hann skrifaði
brjef Magnúsi konungi lagabæti,
og mælti á þessa leið: „Höfðu þeir
þing skamt, ok meðallagi skil-
víst." — Nú munu fáir menn
segja, að þetta þing hafi verið
skamt um of, en á því myndi
meiri tvímæli leika, hve skilvíst
það hefði verið að sumu leyti."
öll þingsagan staðfestir þessi
ummæli forseta. Það má ekki skil-
víst þing heita, sem afgreiðir fá
mál og ómerk, en lætur eftir
lig^ja óunnin flest megin störfin.
Yfirlit um störf Alþingis.
Skrifstofa þingsins hefir gefið
yfirlit um störf þess, og er þetta
helzta efni þeirrar skýrslu:
Þingfunðir hafa verið haldnir:
i neðri deild.........73
- efri —............. 76
- sameinuðu þingi . . 7 alls 156
Lagafrumvörp:
1. Stjórnarfrumvörp
lögð fram......... 31
2. Þingmannafrumv.
borin fram.......85 alls 116
Þar af:
1. Afgreidd sem lög:
Stjómarfrumvörp ... 23
Þingmannafrumvörp . 30 alls 53 lög
2. Feld voru....... 7 frv.
3. Visað frá með rökst.
dagskrá........... 4 —
4. Vísað til stjórnar . 3 —
5. Óútrædd.......... 49 — alls 63
Þingsályktanir:
Bornar fram......... 29
Afgreiddar.......... 18
Feld................. 4
Vísað frá með rökst.
dagskrá.............. 1
Vísað til stjórnar ... 2
Óútræddar........... 7=29
Fyrirspurnir:
Bornar fram.......... 2
Hvorugri var svarað.