Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira. - 01.01.1929, Blaðsíða 34
32
Milli fátœbtar og bjargálna.
[Stefnir
taka við þeim hluta arðsins, sem
ætlaður er sérstaklega til þess
að bæta óhöpp eða töp, og er
það hentug tilhögun til þess að
tryggja tilveru fyrirtækisins.
Vegna þeirra umbóta á vinnu-
brögðum, sem framfarir nútím-
ans krefjast, og getið var um
hér að framan, verður nú á tím-
um að gjöra kröfur til meiri og
margbreyttari hæfileika hjá
stjómendum fyrirtækja ennokkru
sinni áður. Það er tiltölulega
auðvelt fyrir hvern meðalgreind-
an mann að afla sér á æskuárun-
um þeirrar þekkingar, sem þarf
til þess að veita forstöðu fyrir-
tæki í þeirri atvinnugrein, sem
hann stundar, ef hann má halda
öllu áfram óbreyttu eins og hann
vandist því. Nái hæfileikar hans
ekki lengra, verður fyrirtækið
kyrstöðúfyrirtæki undir stjórn
hans. En á skeiðvelli framfar-
anna dragast kyrstöðufyrirtækin
aftur úr og eru dauðadæmd. Aft-
ur þarf býsna mikla hæfileika
til þess að fylgjast svo vel með
öllum nýjungum í atvinnurekstr-
inum sem þarf til þess að skera
rétt úr því í hverju einasta til-
felli, hvaða umbætur séu fyrir-
tækinu til eflingar og þó ekki
kostnaðarsamari en það getur
risið undir. Fjölbreytni náttúr-
unnar og mannlífsins er svo mik-
il, að naumast eru til nokkur tvö
atvinnufyrirtæki, sem búa að öllu
leyti við alveg sömu skilyrði.
Þess vegna nægir alls ekki að
hver atvinnurekandi hermi í
hugsunarleysi eftir öðrum. Allir
þurfa þeir að hafa hæfileikann
til að velja rétt og hafna rétt,
þó að þeir einir geti orðið reglu-
legir brautryðjendur, sem eru
framúrskarandi hæfileikum gædd-
ir að einhverju leyti. Af þessum
ástæðum verður líka að leggja
töluvert annan mælikvarða á
vinnu stjórnanda eða formanns
fyrirtækis, en á vinnu þeirra
verkamanna, sem aðeins eiga að
framkvæma ákveðin verk eftir
gefnum fyrirmælum.
[Í næsta heftl kemnr greln eftlr
sama höfnnd i framhaldi
af þessarl greln].