Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira. - 01.01.1929, Blaðsíða 23
Stefnir]
Milli fátæktar og bjargálna.
21
-að. Þar næst bitnar þetta á fiski-
mönnum, sem- vegna óveðurs-
ins fara á mis við þá fullnægingu
þarfa sinna, sem þeir hefðu get-
að veitt sér fyrir fiskinn, sem
aflast hefði, ef óveðrið hefði
ekki hindrað. En svo geta afleið-
ingarnar náð miklu lengra.
Hugsum oss að einn af sjómönn-
unum hafi vanhagað um flík
handa barni sínu, ámóta verð-
mæta og eins dags hlut. Hann
fær landlegudag og getur ekki
ieypt flíkina. Einhversstaðar —
máske í fjarlægu landi — er
verksmiðja, sem býr til bama-
föt, og á erfitt með að selja alla
framleiðslu sína. Hún missir af
sölu á þessari flík, sem sjómað-
urinn ætlaði að kaupa, og fyrir
það missir einn af verkamönn-
um hennar atvinnuna hálfan
eða heilan dag. Hann vanhagar
máske um skó handa einu barni
sínu — getur ekki keypt þá af
því að verksmiðjan hafði ekki
þörf fyrir vinnu hans þennan
daginn. Sama sagan getur svo
endurtekið sig í einhverri verk-
smiðju fyrir barnaskó o. s. frv.
Hin ályktunin, sem nú þegar
verður dregin, er sú, að sérhver
hindrun á viðskiftum nytsamra
gaeða er skaðleg, dregur úr full-
nægingu mannlegra þarfa á
sama hátt og hindrun fram-
leiðslu. Tökum t. d. sveitaheimili,
einangrað af vegleysum og snjóa-
lögum á vetrardag. Heimilið hef-
ir mjólk aflögum, í næsta kaup-
túni er fjölskylda, sem vantar
mjólk, en viðskiftin eru hindruð.
Aftur vantar sveitaheimilið kol
til hitunar — getur ekki keypt
þau, af því að viðskiftin með
mjólkina eru hindruð. En úti
í Englandi eru atvinnulitlir kola-
námumenn — einn þeirra verður
af eins dags vinnu, af því að
bóndinn norður á lslandi getur
ekki selt mjólk til þess að kaupa
eitt tonn af kolum. Alveg sömu
afleiðingamar af hindrun við-
skifta og af hindrun framleiðslu.
Skaðsemi þessara hindrana fyr-
ir efnahagsstarfsemina verður
öldungis hin sama, hvort sem
hindrunin stafar af völdum nátt-
úrunnar, eins og í dæmunum sem
nefnd voru, eða af völdum mann-
anna. Verkfall eða vinnuteppa á
fiskiskipum hefir sömu efnahags-
verkun og veðurhindrun. Sölu-
bann eða innflutningsbann verk-
ar eins og hver önnur viðskifta-
hindrun. I sömu átt verka allar
tálmanir, sem eru hálfgerðar
hindranir, hvort heldur á fram-
leiðslu eða viðskiftum. Grasbrest-
ur og fjármagnsskortur geta