Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira. - 01.01.1929, Blaðsíða 67
Stefnir]
Fréttabréf.
65
myndast, heldur gengur ágóðinn
til þess að vinna upp tap, enda er
áætlað tap hans komið h. u. b.
niður í 1 miljón (var áætlað 1926
kr. 3.700.000). Vottur um rýrmi
hag bankans er það, að hann fór
ekki fram á frestun á seðlainn-
drætti á síðasta þingi.
Bankarnir eru bezti mælikvarði
á hag atvinnuveganna, og því eru
reikningar þeirra jafnan mjög
eftirtektarverðir. Auk þess birtir
Landsbankinn jafnan mjög greini-
legt yfirlit yfir atvinnuvegina með
reikningi sínum. Sýnir það yfir-
lit mjög gott árferði. Landbúnað-
ur, fiskiveiðar og verzlun, alt í
blóma sakir góðs tíðarfars og
sæmilegrar sölu. Verðlag virðist
nú vera orðið nokkurnvegin fast,
enda peningagengið staðið kyrt
árum saman.
Eimskipafélag Islands er sjálf-
sagt það fyrirtæki, sem langflestir
menn hér á landi eiga eitthvað í.
Á aðalfundi þess 22. júní, gaf
stjórn þess skýrslu um allan hag
þess. Sýndi sú skýrsla að félagið
hefir haft mjög gott ár. Félagið á
nú 5 skip í förum og hefir orðið
reksturshagnaður á þeim öllum,
sem hér segir:
Á Goðafossi ....... kr. 217.395
- Gullfossi........ — 133.177
- Brúarfossi ,.;.. — 125.760
- Selfossi ....... — 75.705
- Lagarfossi ....... — 47.932
Samtals kr. 599.969
Tekjurnar voru að meðaltali 50
þús. kr. hærri á skip nú, en á
næsta ári á undan.
Þessum arði hefir verið varið
þannig:
Bókað eignarverð skipa og fast-
eigna fært niður um kr. 305.704.
Er þá búið alls að færa það niður
um 5.107.000 krónur, er það nú
talið mjög varlega reiknað, en við
síðustu áramót voru eignir félags-
ins taldar kr. 3.862.573.
í endurnýjunar- og varasjóð fé-
lagsins lagðar kr. 148.026.
Arður til hluthafa 4% eða kr.
67230.
Fært yfir til næsta árs kr.
26.223.
Horfurnar eru taldar góðar.
Það sem af er árinu hafa tekjurn-
ar af skipunum orðið meiri en á
síðasta ári.
Einhver þarfasti liður í starf-
semi félagsins er sá, að það hefir
tekið upp beinar ferðir til Ham-
borgar. Hefir það sýnt sig, að
þær ferðir þarf stöðugt að auka,
en við það kemst íslenzk verzlun í