Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira. - 01.01.1929, Blaðsíða 12
10
Fréttabréf.
[Stefnir
höfn í byrjun júnímánaðar. Var
íslenzki flokkurinn lang fámenn-
astur, en gat sér ágætis orð, eins
og blaðaummæli sýna. Enginn ger-
ir lítið úr honum. Sumir telja
söng hans með því bezta á mótinu.
Er þetta alveg aðdáunarvert þeg-
ar gætt er tilefnisins. Hér varð
flokkur þessi að standast saman-
burð við það bezta, sem Norður-
lönd hafa á boðstólum, og sum
þau félög, gömul og þaulæfð.
Einkum þykir finska söngfélagið
afbragð, enda hefir það Evrópu-
frægð. — Tónsmíðar Sigfúsar,
sem þarna var farið með, fá og
hið mesta lofsorð.
Þeir Sigfús Einarsson, sem
stjórnaði flokknum og Sigurður
Birkis, sem kendi söngfólkinu í
allan vetur mega vera glaðir og
stoltir yfir árangrinum,
Hinn flokkurinn, sem hefir gfjt-
ið sér frægð erlendis, er glínhu-
flpkkur stúdenta, sem fór á nor-
ræna jnótið í Kiel, undir farar-
stjórn GufSjpundar K. Péturssonar
stúd, med, Höf§u þeir notið til-
sagnar híns ágæta glímumanns
Guðm. Kr. Guðmundssonar. Vakti
glíma þeirra svo mikla athygli á
mótinu, að varla var eftir öðrum
íþróttum meira tekið.
Þessar frægðarfarir íslenzkra
flokka eru, rétt á Utið, meira virði
en margan grunar. Því sannleik-
urinn er sá, að það er bezta leiðin
til virðingar í augum annara
þjóða, og þá um leið vissasta leið-
in til sjálfstæðis út á við, að
sýna að Islendingar geti eitthvað.
Flokkarnir báðir, og þeir, sem að
því hafa unnið, að gera þá svo
vel úr garði, eiga því þjóðar-
þakkir skilið fyrir afrek sín.
Það er ekki nema eðlilegt, að
talsverð athygli fylgi þeim, sem
eru að reyna að komast flugleið-
ina yfir Atlanzhafið um ísland..
Enginn vafi er á því, að flugferðir
milli heimsálfanna verða afar tíð-
ar áður en langt um líður, og þá
er það engan veginn ómerkilegt
fyrir okkur, hver leiðin sigrar og
verður talin bezt. — En að svo,
komnu sýnast æði miklir örðug-
leikar á þessu. Heyrist um ýmsa,
gen) ráðgera að koma hér við á
þessarí leið, en alt gengur seinna’
en ætlað var.
Lengst hafa þeir komizt sænsku
flugmennirnir, Ahrenberg, Flodén
og Ljunglund, því að þeir komust
hingað til Iandsins 10. júní. En
síðan hefir þeim gengið lakar, því
að nú eftir nærri mánuð eru þeir-
ekki farnir enn.
Amerískur flugmaður, Cramer
Framhald á bls. 64.