Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira. - 01.01.1929, Side 20

Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira. - 01.01.1929, Side 20
18 Milli fátæktar og bjargálna. [Stefnir stæðufé á vöxtum í bönkum, sparisjóðum eða annarsstaðar. Vér skulum þá hugsa oss mann, sem hefir haft afgang af arði vinnu sinnar eða atvinnu, segjum 1000 kr., og lagt þær í banka. Ef bankastjórnin lánar nú þess- ar 1000 kr. einhverjum atorku- manni, sem fær sér arðberandi verðmæti fyrir peningana, t. d. ræktar land fyrir upphæðina, eða kaupir ær fyrir hana, eða fiskibát, þá er verðmætið þar með komið í þessa fjármuni, þar geymist það, ber eiganda fjár- munanna arð, en hann greiðir af þeim arði vexti í bankann, og bankinn greiðir innstæðueigand- anum vexti. Þarna eru þá „pen- ingar“ innstæðumannsins geymd- ir í arðberandi fjármunum lán- takans. Fjármunimir eru hið raunverulega verðmæti, „pen- ingarnir" eru þama ekkert ann- að en krafa eins borgara (inn- stæðumannsins) á hendur öðrum (atvinnurekandanum). En hugsum oss nú að bank- anum væri ekki betur stjórnað en svo, að þessar 1000 kr. væru lánaðar einhverjum fáráðling eða óhappamanni, sem eyddi þeim til einskis gagns; þá er verðmæti þessarar innstæðu orð- ið að engu. Innstæðueigandinn á að vísu sína kröfu á bankann, en nú verður bankinn að grípa til einhverra annara verðmæta þjóð- félagsins, þegar innstæðan er heimtuð út, taka til þess af vara- sjóði sínum eða arði. Fyrir þjóð- félagið er innstæðan ekki lengur neitt verðmæti, hún getur ekki borið því neinn arð, af þ.ví að engir henni samsvarandi fjár- munir eru neinsstaðar til. 1 þriðja lagi gæti bankinn komið innstæðufénu, þessum 1000 kr., 1 ávöxtun og geymslu erlendis. Sé sú geymsla trygg, er unt að heimta innstæðuna .til baka hvenær sem er, án þess að skerða til þess nein innlend verð- mæti. Að svo stöddu skal ekki farið lengra í útlistanir á þessu, en niðurstaðan dregin saman í fám orðum: Efnaleg verðmæti eða eignir hvers þjóðfjelags eru fólgin í: 1. Verðmætum fjármunum í landinu og í eign lands- manna. 2. Kröfum á önnuar lönd eða erlendum innstæðum. Skuldir og kröfur milli inn- lendra manna og stofnana koma ekki til greina, þar gengur hvað upp á móti öðru, krafa á móti skuld, innstæða móti útláni. Aft-

x

Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira.

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira.
https://timarit.is/publication/1024

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.