Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira. - 01.01.1929, Side 25
Stefnir]
23
Milli fátæktar og bjargálna.
leynt eða ljóst. Þeir hugsa sér að
samkepnin sé í því fólgin, að
hver keppandinn reyni að hindra
hina frá því að ná settu marki
eða tilætluðum árangri. Eftir
þeirri hugsun ætti samkepni
íþróttamanna að vera fólgin í
hrindingum og hrekkjabrögðum,
samkepni nemenda í skólum að
fara fram með því, að hver reyndi
að glepja fyrir öðrum og trufla
og tefja nám hinna. Nú vita all-
ir, að ef eitthvað slíkt kemur fyr-
ir í íþróttakappleik eða skóla,
þá er það engin samkepni, held-
ur þvert á móti — brot á skráð-
um og óskráðum lögum samkepn-
innar á þeim sviðum.
Þá skulum vér næst líta á
samkepni í framleiðslu. í hverju
er hún fólgin? 1 því, að sérhver
hinna keppandi framleiðenda
reynir að fullkomna sig sjálfan
og sitt fyrirtæki, svo að fram-
leiðsla hans verði sem mest og
sem útgengilegust, svo að hann
geti selt hana fyrir sem lægst
verð, og borið þó sinn skerf af
öðrum framleiddum gæðum úr
býtum. Hitt væri ódæmi, ef ein-
hver framleiðandi vildi reyna að
komast sjálfur fram úr keppi-
nautunum með því að drepa bú-
fé þeirra eða mölva verkfæri fyr-
ir þeim; væri slíkt glæpir en eng-
in samkepni. Og þegar vér höf-
um nú í huga þá meginreglu, að
sérhver framleiðandi verður
sjálfs sín vegna að leggja alla
stund á að fullnægja sem bezt
þörfum annara (neytendanna og
notendanna), þá sjáum vér að
samkepnin í framleiðslu er í því
fólgin, að sérhver keppendanna
reynir að þroska sem bezt hæfi-
leika sína og getu til þess að full-
nægja þörfum annara.
Loks skulum vér líta á sam-
kepni í viðskiftum. Það er nú
fyrst og fremst hún, sem er and-
stæðingum frjálsrar samkepni
þyrnir í augum. I hverju er hún
þá fólgin? 1 því, að þeir, sem
hafa einhverja samkynja fyrir-
greiðslu viðskifta að starfi, keppa
eftir því hver fyrir sig, að reka
starfið svo, að þörfum skifta-
vinanna verði sem bezt fullnægt.
Sem dæmi til útskýringar skulum
vér taka samkepni í verzlun.
Kaupmaðurinn kaupir erlendar
vörur af erlendum framleiðend-
um eða sölumönnum þeirra, ann-
ast um að fá þær fluttar til
landsins, greiðir af þeim tolla,
og hefir þær til sölu handa inn-
lendum skiftavinum, með nokk-
urri álagningu á verðið fram yfir
útlagðan kostnað. Velgengnihans
sjálfs er nú undir því komin,