Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira. - 01.01.1929, Page 32

Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira. - 01.01.1929, Page 32
30 Milli fátæktar og bjargálna. [Stafnir vörur og fjármuni til eigin neyzlu eða notkunar, þ. e. hafi sem hæst kaup. Þessi sannindi hafa dulizt tals- vert fyrir mönnum fram til síð- ustu ára, og ástæðurnar fyrir því liggja í augum uppi. Það er ekki von að útgerðarmaður á íslandi telji það hajgsmunamál fyrir sinn atvinnurekstur, að sjómenn og verkamenn í bygðarlagi hans hafi sem hæst kaup. En hann skilur það fljótt, að það er hagsmuna- mál hans, að verkafólk á Spáni og Italíu hafi sem hæzt kaup — tii þess að það geti keypt sér salt- fisjt. Almennur skilningur á því, hver velfarnan fylgir því, að at- vinnufyrirtækin geti greitt hátt kaup — og geri það — vaknaði fyrst í Bandaríkjum Norður- Ameríku, og það af þeirri eðli- legu orsök, að það land er svo stórt og mannmargt og hefir svo fjölbreytt náttúrugæði og marg- háttaða atvinnuvegi, að þjóðin getur sem næst verið sjálfri sér nóg, haldið efnahagsstarfsemi sinni út af fyrir sig, án þess að skifta verulega mikið við önnur lönd. Innlendi markaðurinn fyrir sérhverja framleidda vöru er svo geysilega mikill, hjá þessum 120 miljónum neyzlufrekra manna, að augun hlutu að opnast fyrir því, að mikil kaupgeta al- mennings er einn af hyrningar- steinunum undir velfarnan hvers þess fyrirtækis, sem framleiðir einhverja vöru til almennrar neyzlu; eða notkunar. Nú eru atvinnufyrirtæki þeirra í Bandaríkjunum því sama lögmáli háð, sem annara landa, að hvert þeirra fyrir sig þarf að gæta þess, að kaupgjaldstilkostnaðurinn verði ekki of mikill. Þeir hafa því lagt ótrauðir á þá leiðina, að umbæta vinnubrögðin svo að kom- izt verði af með sem fæst fólk, eða að framleiðslan á mann verði sem mest, en borga því fáa fólki vel. Þetta er nú ekki nýtt að því leyti, að mönnum hefir lengi verið Ijóst, að leiðin til aukningar á framleiðslunni og þar með aukn- ingar á mannlegum þörfum, er sú, að umbæta vinnubrögðin. Það er að sjálfsögðu mjög mismun- andi í einstökum atriðum, hverj- ar umbætur eiga við eftir því hver tegund framleiðslunnar er. En allar umbætur nútímans á vinnubrögðum eiga þó að miklu leyti sammerkt í því, að þær byggjast á aukinni notkun véla og vinnusparandi tækja, á upp- fyndingum og allskonar framför- um á sviði verkfræðinnar, á „vél-

x

Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira.

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira.
https://timarit.is/publication/1024

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.