Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira. - 01.01.1929, Side 98

Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira. - 01.01.1929, Side 98
96 Cavalier höfuðsmaður. [Stefnir foringjarnir inni í höllinni biðu eftir skipun frá foringjanum að brjótast fram úr fylgsnunum. Sú skipun kom aldrei. Marskálkurinn sté á bak, kvaddi Cavalier með virktum og hélt af stað. En þegar hann sá, að hinn hafðist ekkert að og að gat- an var greið fram undan honum, sneri hann alt í einu hestinum við. „Cavalier höfuðsmaður", sagði hann glaðlega og íbygginn. „Hér eru skjöl, nákvæmlega samhljóða þeim, sem voru inni hjá yður á borðinu, að því er eg bezt veit. Þau eru öll undirskrifuð með eig- in hendi minni í nafni hans há- tignar konungsins. Hann fór ofan í vasa sinn og dró upp þykkan skjalabunka og rétti hann að Ca- valier. „Undirskrifuð!“ æpti Cavalier, og trúði ekki. „Er gengið að skil- málum okkar? Hvenær voru þau undirskrifuð?" „Áður en eg fór að heiman, frá Versölum", svaraði de Villars. „Eg setti það upp, að mega ganga að skilyrðum yðar ef eg teldi yður þess verðan, og þættist mega treysta því, að þér hélduð alla skilmála." Uppreisnarforinginn greip skjalaböggulinn, og vissi ekkert hvaðan á sig stóð veðrið. „Und- irskrifuð áður en þér fóruð að heiman! Og þér sögðuð mér þetta ekki — ekki einu sinni þó að þér mættuð eiga von á bráðum bana með því að neita að skrifa undir. Eg er alveg ruglaður í þessu!“ „Þér áttið yður fljótt á því þegar þér hugleiðið málið betur, herra höfuðsmaður. Og nú — góða nótt!“ Svo sneri de Villars við hest- inum og hvarf út í myrkrið. Uppreisninni í Languedoc var lokið. Friður var kominn á, og farið að vinna að því að koma landinu í lag. Marskálkurinn de Villars var kominn heim, til Ver- sala, og hafði unnið sína þús- und gullpeninga í veðmáli. Caval- ier höfuðsmaður var kominn í liðsmannasveit de Villars, og barð- ist þar í skotmannaliðinu fyrir konunginn og föðurlandið. Þá spurði einhver hertogann de Villars um það, hvemig hann hefði farið að því að koma því í kring á skömmum tíma og án orustu, sem margir aðrir hefði verið að berjast við árum saman án þess að það tækist. En marskálkurinn de Villars svaraði rólega: „Með því að breyta við foringjann eins og prúðmenni og jafningja."

x

Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira.

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira.
https://timarit.is/publication/1024

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.