Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira. - 01.04.1931, Side 5
LANDIÐ I AUSTRI
Inngangur.
Um Rússland hefir verið svo
mikið rætt og ritað, að óþarfi er
að fara ýtarlega yfir þróunarsögu
.>bolshevismans“. Þess nægir að
geta, að jarðvegurinn þar var
hentugur fyrir allar öfgar, fyrst
keisaravaldið með öllum þess
hörmungum og svo öreigavaldið
^aeð enn meira böli. Þjóðin í
beild var vön að hlýða, var og er
sinnulaus og dauf, þekkir ekki
betri kjör, en hún á við að búa,
°& lætur því hverjum degi nægja
sína þjáningu. Þar við bætist, að
öreigaflokkurinn sá svo um, að
allir þeir, sem höfðu snefil af
nienntun og þekkingu á umheim-
inum, og gátu því ekki sætt sig
við þrældómshelsið, voru tafar-
laust skotnir, reknir í útlegð til
Síberíu eða urðu landflóttar sak-
ir ofríkisins, en eftir sat höfuð-
iaus her, aðþrengdur af hörm-
nngum ófriðarins mikla og inn-
anlandsstyrjöldum. — Megn óá-
naegja gegn keisaraveldinu mun
einnig hafa stuðlað að því, að
öreigar gátu setið að völdum, án
nokkurs verulegs mótþróa, því
að andstæðingarnir náðu aldrei
að sameina svo krafta sína, sem
skyldi, og af því leiddi, að hin
nýja stjórn gat búið svo um
hnútana, að henni er ekki hætt}
við falli, fyrr en hún hefir drýgt
svo stórar syndir að óbærilegar
reynast heildinni, og hún kast-
ar í örvæntingu af sér okinu, eða
að þeir kraftar, sem nú halda
stjórninni uppi, snúá við henni
baki, og skal þetta skýrt nokk-
uð nánar.
Stjórnskipulag.
Til þess þarf að gefa yfirlit
yfir ástand Rússlands, og stjórn-
skipulag, en það er flókið og
margþætt. Stjóm og skipulag
hins rússneska ríkis er ákveðið
og að sumu leyti upphugsað af
Lenin, sem sló þeirri kenningu
fram, að svo skyldi ríkinu hag-
að, að allt gengi þar sinn gang
7*