Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira. - 01.04.1931, Side 34

Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira. - 01.04.1931, Side 34
128 Feimnismálin. [Stefnir Hvar mundi nú vera Sigurður skurður, sem nafntogaður varð í Skúla-málinu fyrir aldamótin? — Þarna væri atvinnustarf handa honum. Þa'5 er utan við tilgang þessar- ar ritgerðar, að rökræða um skáldskaparfátækt Vefarans mikla og ólíkindi þess samsetn- ings. En það hefði þó verið rétt og þarft, úr því að þing vort hef- ir leitt þenna málóða mann að landsjóðsjötunni og tekið hann þar á gjöf. En á það vil jeg drepa, að ólíkindin í þessari bók — ólíkindi orða, athafna og mannlýsinga eru svo gegndar- laus, að engum manni kemur til hugar að kalla hann skáld, sem hefir óbrjálað vit á bókmenntum. Mælikvarðinn, sem er til þess fall- inn, að lagður sé á sagnagerð, er þessi, að sagan geti verið sönn. — Æfintýrasögur undanskildar. — Til dæmis um ólíkindin 1 Vefar- anum er þetta: Steinn Elliði dett- ur niður úr stórhýsi og „fer tólf sinnum gegnum sjálfan sig í fall- inu, kemur þó niður á lappirnar. FlestaJlar persónurnar eru víxl- aðar í gangi — í líkingum talað — og mæla í eintala-vaðli sínum tungumáli manna, sem eru ekki með öllum mjalla. Þess háttar vað- alsaska-eintöl voru mýmörg í bók- um útlendra skálda, sem spunnu lopann um lauslæti, trúleysi og geðveiki fyrir og um aldamótin. Þessi Vefara-stefna er gamalær og andrömm og nefglitið sem úr henni rennur, er grængult og gul- grænt, og ættað eða komið frá brjóstum, sema bera í sér og bor- ið hafa andlega tæringu. Enging- ar og emjanir kynóra-sálna eru ekki merkilegri fyrir það, að fresskettir láta líkum látum á sínu máli, þegar þeir leggjast út á vor- in í hraun eða skóglendi. Weininger þýzki er alræmdur fyrir ummæli sín um konur, og mun Halldór Laxness hafa dregið dáminn af honum. Þýzki kvenhat- arinn segir, að konunni hafi verið neitað um sálina, þegar hún var sköpuð. Halldór fæst meira við yfirborð þeirra: „. ... Konan er alls staðar eins. Eg hefi séð kornungar konur, sem voru svo safamiklar, svo hráar af ást og frjósemi, að maður varð löðrandi votur um hendurnar við að snerta þær“ .... Allar konur „eins“, „þær dansa á öðrum fæti“ „með hinn upp í loftið“. Eg hefi nú ausið úr nægta- brunni Vefarans, þ. e. a. s. Hall- dórs, fáeinum lúkum, án þess þó Framh. á bls. 170.

x

Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira.

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira.
https://timarit.is/publication/1024

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.