Sagnir - 01.04.1985, Side 93

Sagnir - 01.04.1985, Side 93
KRAFA UM RÁÐHERRAÁBYRGÐ stjórnarinnar. Hún var orðin laga- lega ábyrg fyrir danska þinginu. Þingræðisreglan var hins vegar ekki viðurkennd fyrr en 1901. Það ár valdi konungur ráðherrana í fyrsta sinn úr hópi vinstri manna sem þá voru í yfirgnæfandi meirihluta í neðri deild þingsins. Á 5. áratugnum, um það leyti sem stjórnskipunarmál í Danmörku voru mest til umræðu, setti Jón Sigurðs- son fram kröfur sínar um innlenda stjórn er færi með framkvæmda- valdið. Hún átti að vera óháð dönsku stjórninni og danska þing- inu um allt sem varðaði sérmál landsins. Alþingi átti að hafa lög- gjafarvald með konungi. Hugmyndir Jóns Sigurðssonar um ábyrgð ráðherra og þingræði Veltum því aðeins fyrir okkur áður en lengra er haldið hvers vegna hugsanlegar þingræðishugmyndir Jóns Sigurðssonareru forvitnilegar. Odd Didriksen er á því, í áður- nefndri grein í Sögu, að Jón hafi um miðja síðustu öld vonast til að þing- ræðisstjórnarhættir kæmust á hér- lendis. Hann bendir jafnfram á að það sé eftirtektarvert hvað Jón er snemma á ferðinni með þirigræðis- hugmyndina: Jón Sigurðsson tekur að boða ágæti þingræðisstjórnar þegar á 5. tug aldarinnar. Um þær mundir var krafa um þingræði óþekkt annars staðar á Norðurlöndum, enda þótt einstaklingar í Noregi og einkum í Danmörku væru á svipaðri skoðun og Jón Sigurðs- son um þetta efni.... Jón Sig- urðsson var í hópi þeirra, sem höfðu frjálslyndastar skoðanir á stjórnskipunarmálum á Norður- löndum um miðja 19. öld.4 Það var ekki fyrr en á 8. tugi aldar- innar að vinstri menn í Danmörku hófu markvisst upp kröfuna um þingræði. íhaldssöm hægri stjórn þvældist fyrir framgangi þessa bar- áttumáls fram yfir aldamót og stjórnaði landinu lengi vel með bráðabirgðalögum. í Noregi varð talsmönnum þingræðis fyrr ágengt en í Danmörku því þar komst þing- ræði á 1884. Þingræðið á upphaf sitt í Englandi og þangað hefur Jón sótt hugmyndina um það en einnig að einhverju leyti til þjóðfrelsis- manna í Danmörku og rita frjáls- lyndisstefnunnar (liberalismans). En hvað var það sem Jón vildi íslendingum til handa? Afstaða hans til þingræðisins kemur fram í eftirfarandi tilvitnun úr grein í Nýj- um félagsritum 1846: Jens Sigurðsson, bróðirJóns. í þeim löndum - sem hafa lög- gjafar-þíng, koma stjórnarherr- arnir sjálfir fram á þíngunum af stjórnarinnar hendi, og eru þar til andsvara fyrir fulltrúum þjóðar- innar um sérhvað það, sem þeir gjöra, sem æðstu embættismenn til að framkvæma allsherjar-vilj- ann. Þeir hafa sjálfir ábyrgð em- bættis síns og aðgjörða sinna, og geti þeir ekki fengið meira part fulltrúanna til að fallast á álit sitt í merkilegum málefnum, geta þeir ekki verið lengur í völdum.5 Jón lýsir því yfir að þetta fyrirkomu- lag þyrfti að taka upp hér á landi og gerist þar með talsmaður þingræð- is. Það verður þó að hafa í huga að hann minnist ekki beinlínis á að rík- isstjórn ætti að fara frá vegna van- traustsyfirlýsingar þingsins, eins og þingræðisreglan gerir ráð fyrir í sinni hreinræktuðustu mynd. Hann tekur hins vegar skýrt fram að ríkis- stjórn ætti að fara frá ef henni tekst ekki að afla merkilegum málum stuðnings meðal þingmanna. Þessa merkingu leggur hann einnig í orðin ,,parlamentarisk stjórn“ sem hann notar í tveimur bréfum frá ár- inu 1850.6 Það má því segja að Jón gangi nokkru lengra en þingræðis- reglan gerir ráð fyrir. Jón nefnir ekki þingræði í tilvitn- uninni hér að ofan heldur talar hann um að ráðherrarnir hafi sjálfir ,,ábyrgð embættis síns og aðgjörða sinna“. Hvað átti hann við með þessum orðum? Þegar hann setti þau á blað hafði hann fyrst og fremst í huga að ráðherrarnir yrðu ábyrgir fyrir öðrum en konunginum. Af samhenginu sýnist mér að hann geri ráð fyrir stjórnmálalegri ábyrgð fyrir þinginu. Það fór afar mikið í taugarnar á Jóni að ekki skyldi vera hægt að láta ráðgjafa konungsins sæta ábyrgð fyrir embættisverk sín.7 Konungurinn sjálfur var hafinn yfir það að þurfa að standa þjóð sinni reikningsskil athafna sinna eða athafnaleysis. í öðru bréfanna frá 1850 kemur fram athyglisvert mat á ráðherra- ábyrgðinni. Jón segir: Það er meira form en realitet með þessa ábyrgð ministranna, og eg held að parlamentarisk stjórn ... og suspensivt veto geti gjört mik- ið að verkum. En ef það yrði ekki, þá yrði að eg held jurydómar að verða grundvöllurinn fyrir dómum yfir stjórnarherrum einsog öðrum. Það er að minni meiníngu réttast að setja í grundvallarlögin ekki annað en ábyrgðarprincipið ..., en skuldbinda stjórnina til að leggja fyrir frumvarp um hvernig það yrði framkvæmt.8 Jón er þarna að lýsa yfir vantrausti á ráðherraábyrgðina ef hún styðst ekki við þingræði eða ef neitunar- vald þjóðhöfðingjans er ekki jafn- framt takmarkaó. Það kemur reynd- SAGNIR 91
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Sagnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.