Sagnir - 01.06.1994, Side 24

Sagnir - 01.06.1994, Side 24
y /*"■ Ct /-7 ci n cx t-t'-v JflrfcA’r>í a-í Jl 1 >-ayi f-cjc,'fitr aj ■> ^í1 m/om ^ ^ív^* ftjsCijCnci-itvyi 4>d txj JcZKja fcr fr-nscvtrcJj f -0J s(>a* MS~Í-þn ^yd a.’ltlbcwhfl trbv-noU tv^-^Jcsí-Unýja Jaiiclv . Vcrfitífia.J lawi' irj fffjý™ yiccm, aUm'yilJa aJf>ggZ,'á Jforcý' 1fi-J>‘rw xraafta' drf-a-tt JOc\a c Cowi cti }fCrn tccpCi'7 ocb Jtya/icdcXocf 'flcirwi n^wr 'fjtv^Jí' yiyJc^a ÓroJíCf töYuJif f-iy a£l Jfwicl-ib crg g&lfC Ci n acvíalcyf fy^-C' JCvyyy'foci hr}' ci mciACjtXn Jjái- ykylcÍM-, 03 vy&YYCjA'kapvZr crvaj-iA-l tfm cUltm 'hclyrt-mcj ■'fici-r «m abeir.. 'hvoi-fy, ■lca/,yy a'kO/ct)cva 'CJ li > d ~hc,ma r f ftn1 lc{,s{"I c c-nff.,-^ ð íina c. -Jjtf-rttjA f ■óoojJí-Cy'L t. la/fCa " jj Ct-i.) Jcr /li ()>>'n t^m a/ tdti.fa c t>bm m ■óoncldvn , Jc/fC fnmif'þeirra/a.b tdcemnm Shfjt^s'. cj J-oin cli'. 'Jor f-in m JfJstay,Ui', fiia cci Jja.r hncvtín mtny, ncma f&ir'loricl crfreAjjo-ot'caj ónyftvty.&r OUtf- ua/t t>&tj.yjiymf } onoltx is&r-n ý'-f-c‘ -- -{a-i,d',,t\ t,,,, jV‘>i , r tttrtiíma {rth’if. J/titJ-nJJfieór fr'-r 'hclt /t'vc'íi cJtv fhv'fittnC , tnj. -éytjbn síScm SkývcAffvm , . n ’ i. cJcv cJmm j &r fCAnnaffo&mn y ■C'tanrí-naym fón-n . ./0>,rlud b,itfcrt?c Rithönd Jóns J. Aöils. cJ •’ ytnnn-%. Rithönd Jóns J. Aðils. Textinn er úr riti hans Gullöld Islendinga. um mjög frábrugðin „upplýsingar"- stefnu 18. aldarinnar. Þar sem upplýs- ingarstefnan var bygð á almennum mannúðargrundvelli, bygði róman- tíska stefnan á þjóðlegum grundvelli. Það er þjóðernislögmálið, sem ryður sér til rúms með þessari stefnu. . .Með rómantísku stefnunni beindist athygli þjóðanna aftur í tímann, að fortíðinni og sögunni, og þessi mök við fortíðina urðu alstaðar undirrót að nýrri þjóð- ernisbaráttu, af því að þau kveiktu al- staðar nýja og sterka tilfinningu í hjörtunum, — þjóðernistilfinninguna. Þar var hreyfiaflið, sem knúði til nýrr- ar og ötullar framsóknar. Þetta er og verður aðal afreksverk rómantisku stefnunnar.1’’ Alþýðufýrirlestrum Jóns var greinilega ætlað að vekja þjóðernisvitund Islend- inga og stappa í þá stálinu í sjálfstæðis- baráttunni. Því er ekki að undra þótt Jón tileinki sér áherslur rómantíkur i verkum sínum þar sem hann telur að rómantíkin hafi vakið þjóðernishyggjuna til lifsins. Eins og sjá má í tilvitnuninni hér að framan taldi hann þjóðernisvitundina lifna við vegna tengsla við fortíðina og þessi tengsl leggur Jón sig fram urn að efla og styrkja. I ritum hans birtist róm- antísk þjóðernishyggja í fyllstu merkingu þess hugtaks; þ.e. þjóðernisbarátta byggð á glæstri fortíð. I því sambandi leitaðist Jón við að sýna fram á sérstöðu íslensku þjóðarinnar, að hún hefði orðið til í hræringum miðalda og hefði sín sérstöku einkenni. Ekki einungis að hún hefði sín sérstöku einkenni, heldur væri þjóðin rjóminn af því besta i menningu Norð- urálfuþjóða. Til að sýna fram á að svo væri lagði Jón ríka áherslu á keltneska þáttinn í „blöndun" islensku þjóðarinnar, en hann taldi að þeim þætti hafi ekki verið gefinn nægilegur gaumur fyrr. Hann komst að þeirri niðurstöðu að þjóðernið á Islandi á söguöld hafi hvorki verið norskt né keltneskt, „heldur ís- lenskt, þ. e. blöndun af hvorutveggja“.16 Þessa blöndun telur Jón tilkomna vegna víkingaferða til Vesturhafseyja og vegna þess að margir Norðmanna er flúðu Har- ald konung hafi fýrst farið til Vesturhafs- eyjanna og þaðan til Islands. Flóttamenn þessir hafi engir aukvisar verið, flestir stórmenni, enda hafi fáir af göfugri mönnum gengið Haraldi á hönd. Afleið- ingin af fundum Norðmanna og Kelta varð því eftirfarandi: A Islandi ílendist að lokurn blóminn af norrænum ættum úr Vesturlöndunum, einmitt þeir mennirnir, sem ætla má að sérstaklega hafi verið nærnir fýrir menningaráhrifum. En ekki nóg með það. Hér á Islandi blönduðu þessir tveir kynþættir blóði. Hér rann saman i eitt andlegt §ör, hugvit og snild Kelt- anna, og djúpskygni, staðfesta og vilja- þrek Norðmannanna, og fæddi af sér þjóðlíf, sem varla hefur átt sinn líka i sögunni. Þessir erfðakostir beggja þjóðanna koma bezt í ljós í tveim sér- stökum hliðum þjóðlífsins, sem heita má að hvor fýrir sig svari nákvæmlega til einkenna þessara tveggja kynþátta, en þessar tvær hliðar eru: fomíslenzkar bókmentir ogfomíslenzk stjórnarskipun.'7 Þessi tilvitnun er úr íslenskit þjóðerni, en það rit var fýrst i röðinni af fýrirlestr- um Jóns. Tekið er sterkt til orða eins og tilvitnunin sýnir glögglega, en í næsta riti, Gullöld Islendinga, er ekki jafn fast að orði kveðið varðandi keltneska þáttinn. Þar er niðurstaða Jóns þessi: „Má því telja það víst, að Islendingar séu talsvert blandaðir keltnesku blóði, þótt megin- kynstofninn sé norrænn."18 Talsverð áherslubreyting er orðin í ályktunum Jóns, enda er að jafnaði öllu fastar að orði kveðið í Islensku þjóðerni en í hinum rit- ununr tveimur þótt fjallað sé um sama efni. Megin inntakið i verkum Jóns er frelsi og sjálfstæði íslensku þjóðarinnar. Bæk- urnar, eða fýrirlestrarnir, eru alfarið rit- aðar frá þessu sjónarhorni og íslandssagan verður í meðförum hans ein samfelld barátta um frelsi og viðhald þjóðernis. 22 SAGNIR

x

Sagnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.