Sagnir - 01.06.1997, Qupperneq 19
Yfirlitsritin Saga mannkyns, ritröð AB og Heimssögu-
atlas Iðimnargefa lesendum beinllnis rangar upplýs-
ingar um aðdraganda fyrri heimsstyrjaldarinnar.
6. júlí lofaði þýska stjórnin hinni aust-
urrísku skilyrðislausum stuðningi ef
Rússar réðust á Serbíu ... [sic] Þegar
... [úrslitakostunum] var hafnað lýsti
Austurríki-Ungveijaland stríði á hend-
ur Serbíu 28. júlí. Næsta dag fóru
Rússar af stað og það leiddi til þess að
1. ágúst sögðu Þjóðverjar Rússum stríð
á hendur og tveimur dögum seinna
bandamönnum þeirra, Frökkum.22
Höfundar bóka í þessari ritröð hafa greini-
lega ekki fylgst með umræðunni um aðdrag-
anda fyrri heimsstyrjaldar undanfarna ára-
tugi. Þeir telja orsakir stríðsins hafa verið þá
að serbneskir þjóðernissinnar hafi komið af
stað sprengingu i púðurtunnu sem öll stór-
veldi Evrópu bjuggu til og Þjóðverjar hafi
aðeins blandast í stríðið vegna þess að Rúss-
ar „fóru af stað“. Hér lifir gamla úrelta sögu-
skoðunin greinilega ennþá góðu lífi.
Þótt Heimssöguatlas Iðunnar sé að mínu
viti það yfirlitsrit i mannkynssögu sem
nýlegast hefur verið gefið út á íslensku er
hann því miður ekkert skárri en Saga
mannkyns, ritröð AB hvað varðar umræð-
una um aðdraganda fýrri heimsstyijaldar-
innar. I bókinni hafa höfundar ekki haft
fýrir því að endurskoða hugmyndir sínar
um aðdraganda stríðsins heldur setja
kenninguna um „sögulegt slys“ fram sem
almennt samþykkta söguskoðun. Þetta
sést t.d. vel á lokaorðum kaflans „Aðdrag-
andi heimsstyijaldarinnar fyrri“:
Gagnkvæm tortryggni í tíu ár hafði leitt
til þess að stórveldin höfðu eflt heri
sína, umborið ofstækisfullar stríðsæsing-
ar meðal þjóða sinna og flækt sig í
flóknu kerfi formlegra og óformlegra
skuldbindinga hvert við annað. Undir
slíkum kringumstæðum var hætt við að
staðbundin átök hefðu keðjuverkandi
áhrif sem ómögulegt yrði að stöðva ef
þau leystust úr læðingi. Ekki var að sjá
að stríð væri á næstu grösum, en hvor-
ugt stórveldabandalaganna var í aðstöðu
til að stöðva ófriðarskriðuna ef hún á
annað borð kæmist á hreyfingu.23
Þessi könnun hefur leitt í ljós að bæði í
Sögu mannkyns, ritröðAB og Heimssöguatlas
Iðunnar eru lesendum gefnar beinlínis
rangar upplýsingar um aðdraganda fyrri
heimsstyijaldar.
Lokaorð
Sú umfjöllun sem er hér að framan vekur
líklega upp fleiri spurningar en hún svar-
ar. Ljóst er að í flestum tilfellum er ekki
hægt að taka mark á því sem yfirlitsrit um
mannkynssögu segja um aðdraganda fýrri
heimsstyrjaldarinnar.
Af hverju höfundar yfirlitsrita um
mannkynssögu standa sig svona óásættan-
lega illa í að fylgjast með þeirri endur-
skoðun á mannkynssögunni sem sífellt á
sér stað er spurning sem hér gefst ekki
rými til að svara. Þessi spurning er þó svo
mikilvæg að vonandi gerir einhver tilraun
til að svara henni. Ein hugsanleg skýring
er sú að kenningin um fýrri heimsstyrj-
öldina sem „sögulegt slys“ auðveldi
mönnum að útskýra nasismann sem
„sögulegt slys“, einstaka uppákomu án
tengsla við þýska sögu að öðru leyti.
Onnur mikilvæg spurning er hvort það
eigi víðar við að sérfræðingar hafi hrakið
ríkjandi söguskoðun án þess að höfundar
yfirlitsrita um mannkynssögu hafi gefið
því gaum. Ef eins mikilvægur atburður í
mannkynssögunni og aðdragandi fyrri
heimsstyrjaldarinnar er útskýrður á jafn
úreltan hátt og raun ber vitni, er þá ekki
líklegt að kenningjn um „sögulegt slys“
sé ekki eina úrelta söguskoðunin í yfirlits-
ritum um mannkynssögu? Það hlýtur að
vera gífurlegt vandamál fýrir sagnfræðina
sem fræðigrein ef niðurstöður úr endur-
skoðun mannkynssögunnar ná seint og
illa að skila sér í þau rit sem venjulegir
áhugamenn um sögu lesa. Allir hljóta að
vera sammála um að þetta er vandamál
sem taka verður á. Augljóst er að endur-
skoðun mannkynssögunnar þjónar litlum
tilgangi ef hún nær ekki út fýrir filabeins-
turn sérfræðinga.
Tilvísanir
1 „The Allied and Associated Governments" í enska frumtextanum. Sigurvegararnir
skiptust í annars vegar Bandamenn (Allies) og hins vegar félaga þeirra (Associated)
þar sem smærri ríki í sigurliðinu fengu ekki jaína stöðu á við stórveldin.
2 Tlie Treaty of Peace Between thcAllied atid Associatcd Powers and Germany, Tlie Protocol
annexed thereto, the Agreement respecting the military occupation of the territories of the
Rhine, and theTreaty between Frattce and Great Britain Respecting Assistance to France in
tlie cvent of unprovoked aggression by Gertnany. Signed at VersaiUes,June 28th, 1919
(London, 1919), bls. 203.
3 Pogge von Strandmann, Hartmut, „Germany and the Coming ofWar“, bls. 95.
4 Sjá nánar í Fischer, Fritz, Germany’s Aims in the First World War (London, 1967).
[Gefin út á þýsku árið 1961].
5 Þeim sem hafa áhuga á Fischerdeilunni skal bent á eftirfarandi rit: The Origins of the
First World War. Great Power Rivalry and Gertnan WarAims. H.W. Koch ritstýrði.
Önnur útgáfa (London, 1984). — Moses, John A., The Politics oflllusion. The Fischer
Controversy in German Historiography (London, 1975).- Moses.John A., The War
Aitns of Imperial Gertnany: Professor Fritz Fischer attd his Critics (St. Lucia, 1968).
6 Þessi niðurstaða Fischers er mikilvæg í umræðunni um samfellt samræmi í þýskri
sögu þar sem sú staðreynd að hugmyndir af þessu tagi hafi verið útbreyddar í
Þýskalandi á þessum tíma auðvelda það verk að útskýra „ráðgátuna“ um af hveiju
hugmyndafræði nasismans fekk hljómgrunn hjá þýsku þjóðinni. Þeim sem hafa
áhuga á umræðunni um samfellt samræmi í þýskri sögu skal t.d. bent á t.d Röhl,
John C. G., Frotn Bistnarck to Hitler. The Problem of Continuity in German History
(London, 1970).
7 Þetta má sjá mjög greinilega í skeytasendingum til og frá Berlín ogVín fýrstu dag-
ana og vikurnar eftir morðin og ekki síður í fundargerð ráðherranefndar um sam-
eiginleg málefni Austurríkis-Ungveijalands, 7. júlí 1914. Umrædd skeyti, fundar-
gerð og margt fleira þessu viðkomandi má finna í Geiss, Imanuel,J«</y 1914.The
Outbreak of the First World War: Selected Documents (London, 1967). [Gefin út á þýsku
árið 1965].
8 Lýsa átti yfir „yfirvofandi stríðsástandi“ sem í raun þýddi alsheijar herútboð og
innrás í Belgíu, Frakkland og Rússland. - Fischer, Fritz, War of Illusions: German
Politics frotn 1911 to 1914 (London, 1975), bls. 498. [Gefin út á þýsku árið 1969].
9 í B.A. ritgerð minni Aðdragandi fyrri heimsstyijaldarinnar dreg ég til dæmis í efa að
fundur Þýskalandskeisara með yfirmönnum hers og flota 8. desember 1912 hafi
verið jafn mikilvægur og Fischer.John C. G. Röhl og fleiri sagnfræðingar hafa vilj-
að meina.Auk þess tel ég hlut Austurríkis-Ungveijalands í að koma stríðinu afstað
hafa verið meiri en margir hafa viljað vera láta.
10 Háger, Bengt Áke, Samferða utn söguna. Mannkynssaga fyrir eldri bekki gmnnskóla
(Reykjavík, 1987). [Gefin út á norsku árið 1985].
11 Sama heimild, bls. 147-8.
12 Nielsen, Niels Kayser o.fl., Mannkynssaga 2. Frá tniðri nítjándu öid til vorra daga. Erl-
ingur Brynjólfsson, Halldóra Jónsdóttir og Hrefna Arnalds þýddu (Reykjavík,
1993). [Gefin út á dönsku í tveimur hlutum árin 1989 og 1990].
13 Aastad, Svein A. og Asle Sveen, Hcitnsbyggðin 2. Mannkyttssaga cftir 1850. Sigurður
Ragnarsson þýddi (Reykjavík, 1994). [Gefin út á norsku árið 1994].
14 Nielsen, Niels Kayser o.fl., Mannkyttssaga 2, bls 37.
15 Sama heimild, bls. 41.
16 Aastad, Svein A. og Asle Sveen, Heitnsbyggðin 2, bls. 83.
17 Sjá m.a. Stefan Ásmundsson, Aðdragandi fyrri heiinsstyijaldarinnar. Óprentuð B.A.-
ritgerð í sagnfræði 1996 við Háskóla Islands, bls. 35-41.
18 Aastad, Svein A. og Asle Sveen, Hcitnsbyggðin 2, bls. 83.
19 Poulsen, Henning, Stríð á strið ofan. 1914-1945. Saga mannkyns, ritröð AB 13
(Reykjavík, 1985). [Gefin út á norsku 1982].- Simensen,Jarle, Vesturlönd vinna
heiminn. 1870-1914. Saga mannkyns, ritröð AB 12 (Reykjavík, 1987). [Gefin út á
norsku 1986].
20 Heimssöguatlas Iðunnar. PierreVidal-Naquet ogjacques Bertin ritstýrðu (Reykjavík,
1996). [Gefin út á frönsku árið 1992].
21 Simensen.Jarle, Vesturlönd vinna heiminn, bls. 142-3.
22 Poulsen, Henning, Stríð á stríð ofan, bls. 14.
23 Heimssöguatlas Iðunnar, bls. 244.
SAGNIR 17