Sagnir - 01.06.1997, Blaðsíða 29
frásögnin um kattarmorðin sem fengin er
ur ævisögu prentsmiðjuverkamannsins
Nicolas Contants sem vann í Saint-Séver-
in hverfmu í París um 1730.
Sögunni um kattarmorðin beinir
Ilarnton gegn þeirri hugmynd ýmissa
kollega sinna að fyrir iðnbyltingu hafi
„Það er eins og kötturinn í
sögu Níelsar sé ígildi skáld-
skaparins sem þarf að tukta
til hlýðni ..."
prentsmiðjur í Frakklandi verið reknar í
miklu bróðerni verkamanna og eigenda.
IDarnton telur það fráleitt og segir stöðu
prentsntiðjuverkamanna hafa verið
otrygga. Eigendur voru fáir og prent-
sntiðjurnar stórar því með stuðningi
stjórnvalda á 17. öld hafði auður safnast á
hendur fárra og minni prentsmiðjur lagt
upp laupana. Prentsmiðjueigendurnir
voru því í sterkri stöðu og gátu hæglega
ráðið ófaglærða menn og borgað fagfólki
lægri laun. Þetta staðfestir saga Contants,
hann segir frá hörmulegum aðbúnaði
verkamannanna og hörðu lífi þeirra, þar
sem drykkja, slagsmál og erjur voru dag-
legt brauð. Meira að segja kettir borgar-
anna áttu náðugri daga. Kokkurinn, sent
sjá átti um að færa Contant og félögum
hans leifarnar af
THEŒBff
mmm
MASSACRE
and other episodes
• IN FRENCH • ■
■ CULTURAL HISTORY •
robertdarnton
nr
borði eigandans,
seldi matinn öðruni
og bar þeint í stað-
inn úldna kjötbita
sem kettirnir höfðu
hafnað.
Hatur verkamann-
anna magnaðist en í
stað þess að ráðast
beint að prent-
smiðjueigandanum
beindist það á tákn-
rænan hátt að kött-
um. Einn þeirra var
góð eftirherma og klifraði upp á húsþak
uni nætur og líkti eftir breimandi ketti svo
prentsmiðjueigandanum og konu hans
kom ekki dúr á auga. Eigandinn gaf því
skipun um að þessum köttum yrði útrýmt
en kona hans bað verkamennina sérstak-
lega að varast að hræða hennar eigin kött,
þann gráa. Grái kötturinn var sá fyrsti sem
var drepinn og á eftir fýlgdu grimmilegar
blóðsúthellingar þar sent fjöldi katta á
storu svæði endaði ævi sína ofan í ræsi. Að
því búnu upphófst mikill hlátur og gleði
Skrif sagnfrœðingsins
Robcrts Dantons utn katt-
armorðin miklu urðu
tilefni spcnnandi wnræðu
innan sagnfræðinnar.
„ Var í kringum mig köttur sem hálfvegis fipaði fyrir mcr, þangað til að eggafhotium bragð af skortm tóbaki. “ -
Teikning höfundar.
meðal verkamannanna sem höfðu aldrei
skemmt sér jafn vel.
Darnton taldi sögu Contants vera annað
og meira en einfalda frásögn af kattardrápi.
Út úr morðunum las hann táknræna upp-
reisn og tengdi þau við hugmyndir
Mikhails Bakhtins uni hlátur hjá franska
16. aldar rithöfundinum Rabelais. Sá hlát-
ur var sprottinn frá undirokaðri alþýðunni
og veitti útrás um stund þegar öll lög sam-
félagsins voru brotin og gildum þess snúið
á haus, í karnivalinu.5 Úr orðunt hans má
einnig lesa að frönsku byltingunni svipi til
kattarmorðanna, að uppreisnin hafi lifað í
hugmyndaheinti Frakka og leitað upp á
yfirborðið að nýju árið 1789.
Töluverð greinaskrif spruttu af bók
Darntons og mætti hann mikilli gagnrýni
annarra sagnfræðinga. Aðferðir hans þóttu
of róttækar og glannalegar, hann þótti
einfalda táknlestur sinn um of og að
merking textanna væri margslungnari en
hann vildi vera láta. Þrátt fyrir það gat
sagnfræðingurinn Dominick LaCapra
ekki annað en hrósað honum fyrir
skemmtigildi bókarinnar. Darnton tækist
að færa lesandann aftur á vit hins liðna en
þó mætti varast tælandi áhrif textans sem
ætti jafnvel meira skylt við skáldsögu en
sagnfræðirannsókn.'1
Þessurn orðum LaCapra varð Harold
Mah til að andntæla og taldi þau bera
vitni unt gamalt viðhorf sagnfræðinga
sent höfnuðu nýlegri aðferðafræði og
teldu sitt eigið hyggjuvit geta fleytt sér
lengra.7 Þrátt fýrir að Mah tæki þar upp
hanskann fýrir Darnton vildi hann túlka
texta Contants um kattarmorðin á annan
hátt. Harold Mah benti á að Darnton
sleppti mikilvægum hlutum úr frásögn-
inni svo hún félli betur að kenningunni
en vísaði einnig í hugmyndir Derrida unt
margslungna merkingu tákna. Hæpið
væri að líta á merkingu tákna sent sant-
eign allra í samfélaginu. Harold Mah túlk-
aði því söguna að nýju og gerði nteira úr
því samfélagslega ástandi sem ríkti þegar
sagan var skrifuð og velti því fyrir sér
hver hugsanlegur tilgangur skrifanna
hefði verið.“
Þrátt fýrir alla gagnrýni og mismunandi
túlkunarmöguleika sögunnar um Kattar-
morðitt miklu er ljóst að ritið markar
ákveðin þáttaskil ogjafnvel að einhverju
leyti afturhvarf til alþýðlegrar sagnaritun-
ar, í það ntinnsta hvað heimildir og við-
fangsefni snertir. Samhliða því sem sagn-
fræðin hefur þróast sem vísindagrein hef-
ur bilið sífellt breikkað milli lærðra sagn-
fræðinga og áhugasamra leikmanna, sem
lögðu stund á alþýðlega sagnaritun, og
um leið hafa viðhorf manna til áreiðan-
leika heimilda breyst. Þjóðsögur, persónu-
leg skrif, sagnaþættir og styttri frásagnir,
SAGNIR 27