Sagnir - 01.06.1997, Blaðsíða 47
Maður lærir í kristinfræði að guð hafi skapað allt og alla og svo lærir maður í sögu að
maður sé kominn af fornaldarmönnum sem hafi þróast í menn. Þannig að svar
mitt er að ekkert eitt sé rétt, en útfrá mörgum vísbendingum geta menn dregö
ályktanir og myndað sér eigin skoðanir á hlutunum.
Viðbrögd fjórtán ára stúlku sem var spurð að því hvort hún fengi eitthvað að vita um það í skólanum hver hún væri og hvaðan hún kæmi.
Tilvísanir
1 Um samband fortíðar og nútídar og afstæði sannleikans í sagnfræði fjallar Keith
Jenkins á mjög skýran og aðgengilegan hátt í bókinni Re-thinking History. Sú bók
hefur átt þátt í að móta hugsun mína um eðli sannleikans í sagnfræði.Jenkins hefur
því sett töluvert mark á þessa ritgerð þó ekki sé vitnað beint í bækur hans, Rc-
thhiking History og On „ W'hat is History? “ Frotn Carr and Elton to Rorty and Whitc
(London, 1995).
2 Um þetta fjallar Gunnar Karlsson í greininni „Sagnfræðin, sannleikurinn og lífið.“
Skírnir 167 (vor 1993), bls. 199.- Sjá einnig Chris Husbands, What is History
Tcacliing. Languagc, Idcas and Meaning in Lcarning about thc Past, bls. 3-4 og 80-81.
2 Frege, Gottlob, „Skilningur og merking." Hcinispcki á tuttngustu öld. Safn mcrkra rit-
gcrða úr lieiinspeki aldarinnar. Guðmundur Hreiðar Frímannsson þýddi ritgerðina
(Reykjavík, 1994).
4 Husbands, What is History Tcaching, bls. 75.
5 Breski sagnfræðingurinn Chris Husbands fjallar um þetta í bókinni What is History
Tcacliing. Sjá einkum bls. 133.
6 Riisen.Jörn, Lifandi saga. Framsetning og hlutvcrk sögulegrar þekkingar. Ritsafn Sagn-
fræðistofnunar 34. Gunnar Karlsson þýddi (Reykjavík, 1994), bls. 82.
7 Rúsen, Lifandi saga, bls. 87.
8 Þessi hugmynd tengist hugmyndum Friedrich Nietzsche en hann hélt því fram að
til þess að maðurinn gæti orðið raunverulega fijáls þyrfti hann að afhjúpa öll þau
frumgildi er samfelagið hefur innrætt honum. Sjá ritgerð Geirs Sigurössonar, Sið-
ustu tnennimir. Nietzsche og Wcbcr um sannlcika sannlcikatis og gildi gildanna. Óprentuð
B.A.-ritgerð í heimspeki 1994 við Háskóla Islands. Sjá einkum bls. 45 og 80.- Sjá
einnig grein Vilhjálms Árnasonar, „Er maðurinn fijáls?“ Skírnir 170 (vor 1996). Þar
fjallarVilhjálmur um kenningar Jean-Paul Sartre um frelsi mannsins.
^ Páll Skúlason, „Nokkur hugtök og úrlausnarefni í túlkunarfræði." Mál og túlkun
(Reykjavík, 1981), bls. 197-200.
10 Gunnar Karlsson, Að lcvra af sögu. Creinasafn um sögunám. Ritsafn Sagnfræðistofnun-
ar 30 (Reykjavík, 1992), bls. 40.
11 Gunnar Karlsson, Að lcvra af sögu, bls. 90.
12 Sjá m.a. grein Lofts Guttormssonar, „Sagnfræði og felagsfræði. Sambúðarvandamál
þeirra skoðuð í sögulegu ljósi.“ Saga (1978 og 1979).
13 Geir Sigurðsson, Síðustu mettnimrir, bls. 45 og 80. — Vilhjálmur Árnason, „Er maður-
inn fijáls?“ - Jörn Rúsen, Lifandi saga, bls. 27.
14 Sjá greinVilhjálms Árnasonar, „Lífsgleði njóttu. Hugmyndir um hamingjuna.“
Hcilbrigðistnál (1995).
15 Guðmundur Finnbogason, Lýðmenntun. Hugleiðingar og tillögur (Reykjavík, 1903),
bls. 30.
10 Um þetta fjallar Chris Husbands, IWtat is History Teaching, bls. 79.
12 I þessu sambandi má benda á grein sem Magnús Þorkelsson, sögukennari í
Menntaskólanum við Sund, skrifaði í Ný menntamál í árslok 1996. Þar gerir hann
grein fyrir niðurstöðum úr könnun sem hann lagði fýrir nemendur í MS. Með
könnuninni, sem gekk í stuttu máli út á að kanna þekkingu nemenda á einstökum
staðreyndum í atburðasögu og einstökum hugtökum, hugðist Magnús kanna sögu-
vitund íslenskra unglinga. Niðurstöðurnar voru í meginatriðum þessar:Tímaskyn
nemenda virðist vera „takmarkað eða jafnvel lítið auk þess sem afþví má álykta að
nemendur þekki ekki allar þær persónur sem þar var spurt um.“ Sjá Magnús Þor-
kelsson, „Söguvitund - hvað er nú það?“ Ný inenntainál 14 (1996), bls. 40.
18 Páll Skúlason, Pcvlingar. Safn crinda oggrcina (Reykjavík, 1987), bls. 304.
19 Páll Skúlason, Pcvlingar, bls. 304. Þessi hugmynd á rætur sínar að rekja allt aftur til
fornaldar og taldi Aristóteles t.a.m. að helsta markmið manneskjunnar væri að
þroska sjálfa sig í þeim tilgangi að nýta alla möguleika sína sem manns til fullnustu.
— SjáVilhjálmur Árnason, „Lífsgleði njóttu. Hugmyndir um hamingjuna“, bls. 19.
20 Sjá m.a.: Guðmundur Finnbogason, Lýðmcnntun. - Páll Skúlason, „Um rétdæti, ást
og frelsi.“ Sjö siðfrcvðifyrirlcstrar (Reykjavík, 1991). - Durkheim, Emilie, „Education:
its Nature and its Role.“ Education and Sociology (NevvYork, 1956).- Mill.John
Stuart, Kúgun kvenna. - Solomon, Robert C., „Romancing the Self: Fichte, Schell-
ing, Schiller, and Romanticism." Contincntal Philosophy sincc 1750. Thc Risc and Fall
of the Self (Oxford, 1988).—Vilhjálmur Árnason, „Lífsgleði njóttu. Hugmyndir um
hamingjuna.“
21 Páll Skúlason, Pcvlingar, bls. 62. - Sjá ennfremur kenningar Emilie Durkheim um
manninn sem felagsveru í bókinni Education and Sociology. Sjá kaflann: „Education:
its Nature and its Role.“
22 Páll Skúlason, „Um rétdæti, ást og frelsi.“ - Sjá einnig grein Vilhjálms Árnasonar,
„Lífsgleði njóttu. Hugmyndir um hamingjuna.“ Þar fjallarVilhjálmur um hug-
myndir Sókratesar en hann hélt því fram aö sönn sjálfsþekking væri forsenda þess
að maðurinn gæti náð skynsamlegum tökum á lífi sínu, sjá bls. 19.
23 Geir Sigurðsson, Síðustu mennirnir.
24 Rúsen, Lifandi saga, bls. 35 og 104—105.
25 Um þetta fjallar Jörn Rúsen meðal annars á bls. 83 í bókinni Lifandi saga.
26 Gaarder.Jostein, Vcröld Soffiu. Aðalheiður Steingrímsdóttir og Þröstur Ásmundsson
þýddu (Reykjavík, 1995).
27 Um þetta fjallar Chris Husbands á bls. 75-79 í bókinni What is History Tcaching.
28 Rúsen, Lifandi saga, bls. 72-75.
29 Husbands, What is History Teaclting, bls. 75.
30 Husbands, What is History Teaching, bls 84. - Sjá einnig Gunnar Karlsson, Að lcvra af
sögu, bls. 64.
31 Hér er verið að fjalla um hina svokölluðu samhengiskenningu. Sjá Husbands, What
is History Teaching, bls. 63 og grein eftir Svavar Hrafn Svavarsson, „Skáldleg sagn-
fræði.“ Saga XXXIV (1996), bls. 255-271.- Bevir, Mark, „Mind and Method in
the History of Ideas.“ - I þessu sambandi er einnig rétt að benda á grein eftir
Carlo Ginzburg, „Microhistory:Two orThreeThingsThat I Know about It.“ John
and Anne C.Tedeschi þýddu. Criticial Inquiry 20:1 (1993), bls. 10-35. Kenningar
Ginzburg um sannleika í sagnfræði hafa haft töluverð áhrif á hugsun mína um þessi
mál.
32 Um kenningar Piaget fjallar Chris Husbands í bókinni What is History Tcaching, bls.
8 og 15-16.- Sjá einnig umfjöllun Gunnars Karlssonar í bókinni Að lara af sögu,
bls. 60-64.
33 Husbands, What is History Tcaching, bls. 5 og 8.
34 Shemilt, Dennis, „The Devil’s Locomotive.44 History andTheory (1983).
35 Páll Skúlason, Pcvlingar, bls. 35. - Sjá einnig grein eftir Pál Skúlason, „Sagan og
tómið.“ Timarit Máls og menningar (1989). - Sjá ennfremur Rúsen, Lifandi saga, bls.
20-21.
36 Páll Skúlason, „Sagan og tómið“, bls. 52-53.
37 Af þessari ástæðu hefur franski heimspekingurinn Paul Ricoeur haldið því fram að
öll sagnfræðiritun taki óhjákvæmilega á sig einhvers konar frásagnarform og því
grundvallist öll sagnfræði á hæfileikanum til að segja frá. Frásögn sé hið eina orð-
ræðuform sem geti gert söguna skiljanlega. Sjá Arnar Þorsteinsson, A sagnfrcvðin að
scgja frá? Óprentuð B.A.-ritgerð í sagnfræði 1993 við Háskóla íslands.
38 Um þetta fjallar Jörn Rúsen, Lifandi saga, bls. 79-82.
SAGNIR 45