Sagnir - 01.06.1997, Blaðsíða 48
Pétur Hrafn Arnason
Kaupmenn í klóm drekans
/
Arni Magnússon og verslunardeilan 1701—1706
Margir menn á Islandi mundu nokkuð vilja tií gefa að hugur ís-
landskaupmanna til mín vœri ekki með öllu óverðskuldaður, sagði
Arnas. En því miðurfyrir mína íanda, ég hef beðið ósigur. Eg er
sá dreki sem þeir íslandskaupmenn liafa undir hœl sínum.
Reyndar var þeim gert að greiða mjölbœtur og nokkurt hallœris-
korn mun kóngur senda meðan húngursneyðin varir. En það voru
ekki mjölbætur sem ég æskti þessu mínufólki, og ekki hallæris-
korn, heldur betri verslun.1
Arni Magnússon. - Þjóðminjasafn Islands.
Þannig hljóðar brot úr samtali Arnasar
Arnæus við þýska kaupmanninn Uffelen í
Islandsklukkunni. Sá síðarnefndi egnir
Arnas til að gagnrýna valdstjórn Dana á
Lslandi og bendir á hve einokunin hafi
fært eigendum verslunarfélagsins mikinn
auð og frama. Arnas viðurkennir að hann
hafi undanfarið eldað grátt silfur við Is-
landskaupmenn og hafi þurft að láta í
minni pokann í þeirri baráttu. Hann líkir
sjálfum sér við dreka, áhrifamikinn ein-
stakling sem þeir hafi tangarhald á.
Fyrirmynd Arnasar, Arni Magnússon,
átti vissulega í útistöðum við danska
kaupmenn. Þær deilur voru afleiðing af
þátttöku hans í umræðu um fyrirkomulag
Islandsverslunarinnar sem var sérstaklega
áberandi á árunum 1701 til 1706. Þar var
aðallega deilt um hvort hætta ætti að
bjóða einstakar hafnir upp og þess í stað
fela einu öflugu félagi að sjá um verslun á
Islandi. Arni slóst í hóp þeirra manna sem
töldu landi og þjóð betur borgið í gamla
fýrirkomulaginu, umdæmaversluninni.
Kaupskaparstefna í Danaveldi
Á sautjándu öld þótti velferð utanrikisversl-
unar best borgið með því að kaupmenn
mynduðu sterk verslunarfelög undir vernd-
arvæng ríkisvaldsins. Kristján §órði fylgdi
þessari þróun i Evrópu sem kristallaðist í
velgengni breska og hollenska Austur-Ind-
iafélagsins. Danskt Austur-Indíafélag var
stofnað árið 1615 og hafði það einkaleyfi á
verslun í þeim hluta danska konungsríkis-
ins.2 Fjórum árum eftir stofnun Austur-
Indíafélagsins var Islenska verslunarfélagið
stofnað með einkaleyfi fyrir verslun á Is-
landi, Færeyjum og Finnmörku. Hinu nýja
félagi var gert skylt að fýlgja þeirri kaup-
setningu sem konungur hafði sett við upp-
haf einokunar. Þar var kveðið á um að
kaupmenn ættu að sýna landsmönnum
sanngirni i verslunarháttum en einnig var
ákveðið að siglt skyldi árlega til allra 20
kaupstaða landsins. Með þessu var gefinn
tónn fýrir þeirri byggðastefnu sem gilti í
verslunarmálum allt ffain á nitjándu öld.3
46 SAGNIR