Sagnir - 01.06.1997, Síða 112
SVARTIDAUÐI Á ÍSLANDI - Plágurnar 1402 og 1495
Umræður
Eftir að öllum fyrirlestrum var lokið hófust umrœður. Fjórir fyrir-
lesaranna sátu við pallborð, þeir Haraldur Briem, Gunnar Karls-
son,Jón Olafur Isberg og Gísli Gunnarsson. Umræðurnar hófust
á þvi að þeim vargefið tœkifœri á því að tjá sig almennt um mál-
ið en einnig var opnað fyrir spurningar annarra ráðstefnugesta.
Efni dagsins var rœtt á mjög víðum grunni en umrœðurnar, sem
og ráðstefnan öll, voru hljóðritaðar af Ríkisútvarpinu og birtast hér
i nokkurn veginn óbreyttri mynd.
Lungnapest, kýlapest, rottur
og flær
Jón Ólafur Isbcrg: Ég held að rétt sé að
taka undir alla fyrirvara unr eðli plágunn-
ar. Hugsanlega hefði plágan getað verið
öðruvísi á öðrum tímum. Umhverfi og
vistkerfi og aðrir þættir hefðu getað haft
önnur áhrif en í dag. En Haraldur Briem
benti á þær smitleiðir sem hafa verið
sannaðar vísindalega. Annaðhvort förunt
við eftir því sem er vísindalega sannað
eða við erum hætt að tala um vísindi, þá
erum við komin út í eitthvað allt annað.
Gunnar hélt því fram hér áðan máli
„Ef tungumál á ekki til orð
yfir skepnu sem þrífst í
nánu sambýli við fólk og
helst í þökunum yfir höfð-
um þess, þá getur maður
nú haldið að einfaldasta
skýringin væri sú að skepn-
an hafi ekki verið til. "
Gunnar Karlsson
sínu til stuðnings að orðið „rotta“ kæmi
ekki fram í ensku safni samtímaheimilda
um svartadauða. En það er ástæðulaust að
leita, orðið rotta var ekki til í ensku á
þessunt tíma.
Haraldur Bricin: Ég held að ef við ein-
blínum á að hér hafi gengið sótt með
mjög stuttum meðgöngutíma og með
mjög hárri dánartíðni, það megi lesa úr
þeint litlu heimildum sem við höfum, þá
er faraldsfræðilega mjög erfitt að útskýra
það með lungnasmiti alveg sama hvaða
baktería/örvera var á ferðinni. Engin
stökkbreyting getur breytt því. Ég held
því fram líka að inflúensufaraldur hefði
ekki getað gengið yfir ísland nreð þessum
afleiðingum undir neinum kringumstæð-
um, bara út frá faraldsfræðilegunt lögmál-
urn. Ef maður leggur til þekkingu okkar í
dag á faraldrinum þá getur hún hjálpað
okkur við að skilja þetta, mér finnst allt
benda til að þetta hafi verið plága.
Ég held hins vegar að forsendan rotta
og rottufló urn útbreiðslu plágu í Evrópu
sé marklaus. Sú skýring sem sumir hafa
gefið að það hafi verið mannafló sem bar
þetta á milli, er vel sennileg. Blóðsýklunin
og bakteríumagnið í mannslíkamanum
bauð hæglega upp á að mannaflóin hafi
borið pláguna á milli manna, jafnvel þó
hún sé ekki eins virk í því sambandi og
rottuflóin. Sumir halda þvi fram að
rottufló þrífist illa á norðlægum slóðum,
en geri það mun betur á trópískum svæð-
um og eigi þar greiða leið á milli manna.
I köldu loftslagi á hún að eiga erfiðara
með það. Ég held líka að mannafló passi
vel við þá staðhæfmgu að faraldurinn hafi
verið virkari að vetri til. Þá hefur flóin
þrifist ágaetlega á fatnaði manna í húsurn.
Menn fóru örugglega ekki oft í bað og
voru gjarnan í sömu fötum, voru ekki að
stunda það að þvo eða viðra. Það var bara
ekki hægt. Allt styður þetta að mannaflóin
hafi borið þennan sjúkdóm.
Ég vil meina að úr þvi að þetta var ekki
lungnasjúkdóntur, þó með þennan stutta
meðgöngutíma og háu dánartölu, þá þarf
nauðsynlega að hafa verið smitfeija þarna
á ferð. Hver svo sem hún hefur verið.
Gunnar Karlsson: Svo mikil gagnrýni
hefur komið fram á grein okkar Helga
Skúla Kjartanssonar að ég veit ekki hvort
ég ætti að fara að eyða tíma fundarins í að
tíunda það allt, það verður gert lið fyrir
lið á öðrum vettvangi.
Jón Olafur fann að því sem ég sagði
um heimildasafn Rosemary Horrox; þar
sé orðið „rat“ ekki skráð í atriðisorðaskrá.
Því mætti svara á tvo vegu: Ef tungumál á
ekki til orð yfir skepnu sem þrífst í nánu
^>ateni,qtiO0 nuþer ínfigneoviri ftli
dlTimie rmlatíoníbuð Uluftrarunt
Somu^, crqntlitifíima cura re#
cognitus:^na cum indícere^
Forn-Grikkinn Galeti varJyrstur til að setja fram kenningar urn að sjúkdómar bœrust um t eiturgufum eða míösmum.
110 SAGNIR