Sagnir - 01.06.1997, Side 116
SVARTIDAUÐI Á ÍSLANDI - Plágurnar 1402 og 1495
Mannjjöldalínurit sem Jón Ólafur Isberg vtkur að sem „ töjlugerð Helga Skúla Kjartanssonar. “ Helgi kveðst hins
vegar saklaus af þessari tnynd, þótt birst haft í kajla eftir hann.
Gunnar Karlsson: Það hefur rnargt gerst
á Islandi eftir fyrri pláguna sem ekki eru
til heimildir um. Hér ganga þau munn-
mæli um grein okkar Helga Skúla að við
höldum því fram í henni að ekkert hafi
breyst, allt hafi verið áfram eins og það
var. Það segjurn við auðvitað ekki.Við
segjum að ekki sé ástæða til að nota plág-
una sem skýringu á samfélagsbreytingum.
Við finnum þær ekki. Hvað gat fólk gert
annað en að halda áfram að gera það sem
það hafði áður gert? Eg sé ekki hin upp-
lögðu tengsl milli helmings mannfalls og
grundvallarbreytinga á samfélaginu. Þetta
verður bara helmingi minna samfélag á
jafnstóru landi. Það getur alveg lifað.
Gísli Gunnarsson: Ég er sammála því
sem Helgi Þorláksson sagði hér áðan. Það
má tengja það enn frekari fantasíum.Til
dæmis því þegar byggð norrænna manna
á Grænlandi leggst af. Sagnfræðingar hafa
haldið því fram að norræna byggðin á
Grænlandi hafi tæmst vegna manneklu á
Islandi, þangað hafi allir flutt.
Haraldur Brieni: Menn segja að það hafi
ekki gerst mikið. Það er kannski málið.
Hér var engin þróun.Við lifðum í ræfil-
dómi. Fáar þjóðir voru jafn ömurlegar og
Islendingar á þessum tíma og öldunum
áður. Það er það alvarlega í þessu.Vilduð
þið lifa á 16. öld?
Grétar Guðbergsson jarðfrœðingur: Bóka-
gerðarmenn halda því fram að skinn til
handritagerðar séu verri eftir plágurnar
en fyrir hana. Ef það er rétt hefur tapast
margvísleg verkkunnátta sem hlýtur að
vera athyglisverð afleiðing svartadauða á
Islandi.
Gunnar Karlsson: Þetta er rétt, 15. aldar
bækur eru ómyndarlegar miðað við 14.
aldar bækur. Kannski er það ekki verk-
unin sem er öðruvísi. Þær eru sparlegar
gerðar. Þetta hefur verið skýrt á annan
hátt af Stefáni Karlssyni. Hann segir að
flutningur krúnunnar til Dannterkur frá
Noregi og hrun norska aðalsins hafi lok-
að bókamarkaði Islendinga, en hér voru
aðallega framleiddar bækur til útflutnings
á meðan Norðmenn gátu stautað sig
fram úr norrænu. En þetta er eina nrerk-
ið sem við höfum i samtímanum um
sparnað kirkjunnar og höfðingja eftir
pláguna.
Jón Olafur Isberg: Menn hafa mismun-
andi skoðanir á öllu sem víkur að svarta-
dauða.Við því er ekkert að gera. Sumt af
þessu er heimildafræðilegt og ekki er tími
til að rekja það hér. Ég hef hér lagt áhersl-
ur á breytingar á fólksfjölda. Ég tók eftir
því sem kom fram í innganginum, að
svartidauði átti að hafa raskað þeirri
fólksfjölgun sem staðið hafði linnuhtið
yfir frá landnámi. Samkvæmt töflugerð
Helga Skúla Kjartanssonar í hinni svo
kölluðu Seðlabankabók, þá var alger
stöðnun í fólksfjölda frá 1100 til 1400.
Hann útilokar fólksfjölda sem orsakavald
breytinga á samfélagsháttum. Auðvitað
skiptir það máli hvernig við lítum á sam-
félagið fýrir 1400. Ef við segjum að sam-
félagið fýrir 1400 hafi verið alveg eins og
eftir 1400, hafði plágan engin áhrif. Ég vil
meina að svartidauði hafi verið fyrsta
stóráfallið.Við vorum með fámenna þjóð
eftir 1400 og alveg fram til 1800. Þess
vegna vorum við þessir ferlegu aumingjar
eins og Haraldur segir. Það er út af fólks-
fæðinni sem við vorum svo aumir.Við
vorum með annars konar samfélag fýrir
1400, hvernig veit ég ekki nákvæmlega,
aðrir verða að skera úr um það.
Gunnar Karlsson: Ég skil ekki af hverju
þið haldið að fatt fólk þurfi að vera aum-
ingjar. Ég sé ekki annað en að fátt fólk
geti verið býsna bratt. Þegar Islendingar
byggðu stærstu timburhús á Norðurlönd-
um, ef ekki allri Evrópu og kölluðu
kirkjur hér á hámiðöldum og drösluðust
meira að segja með timbrið að Skálholti
Haraldur Briem: ... án þess að nota
hjólið einu sinni.
Gunnar Karlsson: Já, án þess að nota
hjól. Nei, það er ekki aumingjaskapur.
Aumingjaskapurinn sem er svo áberandi á
18. öld, er af einhverju öðru, til dæmis
skorti á vítamínum.
Gisli Gunnarsson: Jón Olafur segir að
svartidauði hafi verið áfall.Vafalaust hefur
hann verið það. En stundum geta áfoll
verið mjög jákvætt fyrirbæri og hvatt
menn til dáða. Ekki satt?
Tilvísanir
1 Sjá: Gunnar Karlsson, „Um fræðilegan hernað og plágurnar miklu.“ Saga XXXV
(1997).
2 Islensktfornbréfasafn, sem licftr inni að lialda bréf og gjörnítiga, dóma og máldaga og aðrar
skrár, er snerta ísland cða íslcnska menn IV (Kaupmannahöfn, 1897), bls. 535.
3 Sjá nánar um þetta: Gunnar Karlsson, „Um fræðilegan hernað og plágurnar
miklu,“ bls. 232-233.
4 Það vissu allir læknisfróðir menn allt frá tíma Forn-Grikkjans Gallens til samtíma-
manna og andstæðinga Pasteurs seint á 19. öld að sjúkdómar bárust með eitruðum
gufum sem nefndust miasma í eintölu.
5 Gísli Gunnarsson, Nuptiality and Fertility in Iceland’s Demographic History (Lundi, 1980).
6 IslandskcAnnalcr indtil 1578. Gustav Storm gaf út (Kristjaníu, 1888), bls. 275.
7 Sjá nánar um þetta: Gunnar Karlsson, „Plague Without Rats:The Case of
Fifteenth Century Iceland.“Journal ofMcdieval HistoryXXU:3 (1996).
8 Pollitzer, R. og Meyer, K.F., 77ic Ecology of the Plague. Studies in Diseasc Ecology
(NewYork, 1961).
9 Sigurjón Jónsson, Sóttafar og sjúkdómar á Islandi 1400-1800 (Reykjavík, 1944), bls.
29-52.
10 Björn Lárusson, The Old Icelandic Land Rcgisters (Lundi, 1967).
11 Sjá: ÞorvaldurThoroddsen, Lýsing Islands IV (Kaupmannahöfn, 1922), bls.
296-304.
12 Helgi Skúli Kjartansson, „History and Culture.“ Iccland the Republic (Reykjavík,
1996), bls. 64,85.
114 SAGNIR