Sagnir - 01.06.2004, Side 20

Sagnir - 01.06.2004, Side 20
Aðildin að Fríverslunarsamtökum Evrópu: w m HVAÐ var ? Á árunum fyrir heimsstyrjöldina 1914 - 1918 jókst verslun milli landa svo mikið að samkeppn- in um ódýrustu framleiðsluna var farin að ógna heimamarkaði ýmissa landa. Á stríðsárunum brugðu stjórnvöld víða um heim á það ráð að reyna að takmarka innflutning sem ógnaði sam- keppnisstöðu heimaframleiðslunnar, einna helst með því að beita tollum og innflutningskvótum. Pessi verndarstefna í innflutningsmálum var tekin upp á íslandi þegar heimskrepp- an mikla skall á upp úr 1930. íslenska hagkerfið var mjög sérstakt að því leyti að nær öll afkoma landsins byggðist á sjávarútvegi og meira en 90% alls útflutnings voru sjávarafurðir. Þessar einhæfu útflutningsvörur skiluðu miklu í þjóðarbúið og því var mikilvægt að verð á sjávarafurðum væri hátt og aðgengi að fiskimörkuðum úti í heimi væri frjálst. Með aukinni tækni unnu sífellt færri við fiskvinnslu en áður og til þess að næg vinna væri í landinu þurftu íslensk stjórnvöld að bregðast við þessari þróun. Ólíkt flestum vestrænum þjóðum, sem hurfu smám saman frá tolla- og haftastefnunni eftir seinni heimsstyrjöldina, þá héldu íslensk stjórnvöld í þessa stefnu allt fram á 7. ára- tuginn en þá voru fyrstu skrefin tekin í átt að opnun hagkerfisins. Aðild íslendinga að Fríverslunarsamtökum Evrópu var mikilvægur þáttur í þessari stefnubreytingu og leituðu þeir stuðnings Norðurlandaþjóðanna, sem allar voru aðilar að EFTA, við inngönguna. Aðildin gekk ekki átakalaust fyrir sig og afstaða stjórnmálaflokkanna og fulltrúa atvinnu- lífsins til málsins var ólík. ÍSLAND OG VIÐSKIPTABANDALÖGIN Eftir seinni heimsstyrjöldina varð mönnum ljóst að koma þyrfti á sterku alþjóðasam- starfi til að tryggja öryggi í Evrópu og jafnvægi í alþjóðaviðskiptum. Þá væri unnt að koma á frjálsari viðskiptaháttum en ríkt höfðu síðan í kreppunni miklu á fjórða áratugn- um. Reynslan hafði kennt mönnum að varast bæri viðskiptahömlur í verndarskyni2 og árið 1957 komu sex Vestur-Evrópuríki: Frakkland, Vestur-Þýskaland, Italía, Belgía, Hol- land og Lúxemborg sér saman um stofnun Efnahagsbandalags Evrópu, EBE. Með því bandalagi voru tollar í viðskiptum milli aðildarríkjanna afnumdir á nokkrum árum en innflutningur frá öðrum ríkjum var háður sameiginlegum ytri tollum sambandsins.3 Stofnun Efnahagsbandalagsins skapaði ákveðin vandamál fyrir önnur ríki í Vestur-Evr- ópu og óttuðust þau neikvæð áhrif á viðskipti sín við bandalagsríkin sex. Því stofuðu önn- ur sjö Vestur-Evrópuríki: Bretland, Austurríki, Portúgal, Sviss, Danmörk, Noregur og Svíþjóð með sér Fríverslunarsamtök Evrópu, EFTA, árið 1960.J Islendingum var ekki boðin þátttaka í stofnun EFTA og stóðu þeir því algerlega utan við þessar tvær blokkir. íslenska ríkisstjórnin hafði lítinn áhuga á því að ganga í EFTA fyrst um sinn því EFTA var einkum ætlað að vera fríverslunarsvæði með iðnvörur og tók ekki nema að takmörk- uðu leyti til sjávar- og landbúnaðarafurða sem voru helstu útflutningsvörur íslendinga.5 íslendingar áttu þó mikil viðskipti við aðildarríki EFTA og um miðjan 7. áratuginn nam útflutningur íslands til aðildarríkja EFTA-samningsins um 40%.6 Árið 1967 voru miklir erfiðleikar í íslenskum sjávarútvegi og að hausti þess árs var farið að ræða af fullri alvöru um hvort það gæti verið Islendingum hagkvæmt að ganga í EFTA. Verðmæti útflutnings höfðu lækkað um nær milljarð króna á fyrstu níu mánuðum ársins. Þessir erfiðleikar áttu sér ekki eina meginorsök heldur voru það samverkandi áhrif margra og að því er virðist óskyldra þátta. Þar má nefna verðfall á lýsi og mjöli, verðfall á freðfiski, aflabrest á vetrarvertíð, lokun skreiðarmarkaðs í Nígeríu og breyttar sfldargöngur.7 18 SAGNIR 24 ÁRGANGUR 04 A Ð I L D N A Ð FRÍVERSLUNARSAMT
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108

x

Sagnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.