Sagnir - 01.06.2004, Side 29
Árið 1916 sagði Inga Lára upp störfum hjá Barnaskólanum en
kenndi líklega út veturinn 1917.9 Þá hafði hún verið meira og
minna viðriðin Barnaskólann í tíu ár en þess má geta að hún sagði
upp starfi sínu á svipuðum tíma og hún fór að huga að útgáfu tíma-
ritsins 19. júní. Hún tók svo ekki upp kennslustörf aftur fyrr en
fjórum árum síðar og þá við Kvennaskólann í Reykjavík. Ekki er
vitað við hvað hún starfaði í millitíðinni en hún gæti hafa kennt
nemendum í einkatímum á árunum 1917-1921 samfara útgáfu tíma-
rits síns líkt og hún gerði með kennslustörfum sínum við Kvenna-
skólann.
Inga Lára hóf kennslustörf sem stundakennari við Kvennaskól-
ann í Reykjavík árið 1921 og kenndi þar dönsku og annaðist bóka-
safn skólans. f einkatímum kenndi hún svo handavinnu, ensku og
dönsku.10 Árið 1920 dó Lárus faðir hennar og skiptist arfurinn jafnt
milli systkinanna. Lárus var efnaður maður og arfleiddi börn sín að
þó nokkrum eignum og lausafé."
KRÖFTUGUR FÉLAGSSKAPUR KVENNA
Inga Lára tók virkan þátt í ýmsum félagsskap í Reykjavík og átti
þátt í að stofna að minnsta kosti þrjú félög. Fyrst má nefna Lestrar-
félag kvenna en hún var ein af stofnendum þess árið 1911. Margar
konur nýttu sér aðstöðu félagsins en formaður var Laufey Vil-
hjálmsdóttir, samstarfskona og vinkona Ingu Láru.12 Þekktustu fé-
lagskonurnar fyrir utan Ingu Láru og Laufeyju voru Theodóra
Thoroddsen skáld og Ingibjörg H. Bjarnason skólastýra Kvenna-
skólans. Lestrarfélagið átti ekki aðeins að reka bókasafn heldur
einnig að standa fyrir fundum þar sem ræða átti ýmis málefni, eink-
um þau sem bækurnar fjölluðu um. Félagskonurnar héldu uppi
mánaðarriti og urðu greinar í ritinu oft kveikjan að fjörugum um-
ræðum. Auk þess héldu þær úti barnalesstofu þar sem börn gátu
komið og lokið heimanámi sínu í ró og næði eða lesið góðar bækur.
Inga Lára Lárusdóttir
Annað merkt framtak félagsins var málhreinsunarnefnd sem starf-
aði frá 1920 í samvinnu við Verkfræðingafélag íslands og var til-
gangur þess nýyrðagerð og verndun íslensks máls. Inga Lára sat í
stjórn þess um tíma auk þess að sinna ýmsum öðrum störfum innan
þess, sótti fundi vel og var mjög virk í allri starfsemi félagsins.13
Heimilisiðnaðarfélag íslands var annað félag sem Inga Lára átti
þátt í að stofna og var stofnfundur þess haldinn árið 1913 í Reykja-
vík.14 I mars 1912 hafði Inga Lára verið kosin í nefnd á vegum
Lestrarfélags kvenna með það að markmiði að efla heimilisiðnað í
landinu. Á fundi í apríl sama ár kom fram að nefndin sá sér ekki
fært að beita sér fyrir heimilisiðnaði nema á þann hátt að vekja á
honum athygli og eiga frumkvæði að því að stofna sérstakt félag og
samþykkti fundurinn þá tillögu. Heimilisiðnaðarnefnd Lestrarfé-
lags kvenna átti þannig frumkvæðið að stofnun Heimilisiðnaðarfé-
lags Islands.15 Er þar komin skýring á að sömu konurnar áttu þátt í
stofnun beggja félaganna. Tilgangur Heimilisiðnaðarfélagsins var
m.a. að auka og efla þjóðlegan heimilisiðnað á íslandi, vekja áhuga
fólks á að framleiða nytsama hluti og stuðla að sem arðvænlegastri
sölu á íslenskum heimilisiðnaði bæði hérlendis og erlendis. Stóð fé-
lagið fyrir mörgum iðnsýningum og má lesa ýmislegt um starfsemi
þess í 19. júní. Inga Lára var forseti félagsins frá 1916-1920 er Lauf-
ey Vilhjálmsdóttir tók við.16
Inga Lára virðist hafa tekið þátt í ýmsum félagsskap frá unga
aldri.17 Steinunn H. Bjarnason segir um Ingu Láru að hún hafi verið
mjög virk í félagsmálum. Að telja „hér upp öll þau félög, sem hún
samdi drög að lögum fyrir, eða vann fyrir á einn eður annan hátt
ætla ég mér ekki, til þess brestur mig þekkingu. Hún var óvenju
starfshæf og fús til þess að vinna að öllu því, er hún trúði að gagni
mætti koma.“18 Þátttaka hennar f Bandalagi kvenna hafði þó lík-
lega hvað afdrifaríkust áhrif á líf hennar en konurnar innan þess
létu svo sannarlega til sín taka á stjórnmálasviðinu
BANDALAG KVENNA - DRIFKRAFTUR Á
STJÓRNMÁLASVIÐINU
Árið 1917 var Bandalag kvenna formlega stofnað í Reykjavík en
það hafði verið í undirbúningi frá 1916. Bandalagið samanstóð af
ýmsum kvenfélögum í Reykjavík og átti að auðvelda alla samvinnu
meðal þeirra og koma skipulagi á hana. Þau kvenfélög sem tóku
þátt í stofnun Bandalags kvenna kusu konur í nefndir til að undir-
búa starfsemina og sækja fundi. Inga Lára sat í nefnd Heimilisiðn-
aðarfélagsins ásamt Steinunni H. Bjarnason og Ragnhildi Péturs-
dóttur og var Steinunn kosinn formaður Bandalagsins. í 19. júní
sagði Inga Lára um Bandalagið að það væri „stórt spor í átt til auk-
innar samvinnu meðal kvenna í höfuðstað landsins."19 Sagnfræð-
ingurinn Kristín Ástgeirsdóttir telur að með stofnun þess hafi
ákveðinn hópur kvenna skapað nýjan vettvang fyrir nýjar konur. Á
þessum árum höfðu margar forystukonur kvenfélaganna einokað
forystusætin um áratugaskeið. Með tilkomu Bandalags kvenna
fengu nýjar konur tækifæri til að láta til sín taka og öðlast í umræð-
unni rödd sem ekki hafði heyrst áður.20
Allt frá upphafi töldu forystukonur Bandalagsins mikilvægt að
hafa samband við
félög og einstaklinga erlendis. Þær fylgdust vel með framvindu
kvenréttinda annars staðar í heiminum og vildu leggja sitt af mörk-
um til að liðsinna þeim sem við harðrétti bjuggu.21 Inga Lára hafði
þegar haft nasasjón af starfsemi slíkra samtaka því árið 1911, er
hún og Laufey Valdimarsdóttir voru samtímis staddar á Norður-
löndum, fóru þær á kvennaþing IWSA í Stokkhólmi á vegum
KRFI. Sóttu þær þingið að frumkvæði Bríetar Bjarnhéðinsdóttur
eftir að Alþingi hafði neitað konum um ferðastyrk frá fslandi.22
Veturinn 1918 sótti Steinunn H. Bjarnason fund The International
Congress of Women (ICW). Samtökin ICW voru stofnuð 1888 og
voru eins konar alþjóðlegt systrasamband. Þau höfðu ákveðin kven-
réttindi á stefnuskrá sinni t.d. aukið heilbrigðiseftirlit, kosningarétt
kvenna og ýmsa löggjöf er sérstaklega varðaði konur. Samtökin
komu einnig mikið að friðarmálum í kjölfar fyrri heimsstyrjaldar.
Á næsta aðalfundi Bandalags kvenna árið 1919 lagði Steinunn til
að Bandalagið gengi í ICW og var það samþykkt. Sú ákvörðun varð
til þess að alþjóðlegar hugmyndir kvennabaráttunnar streymdu í
N A R 19 JÚNI HVER VAR HÚN? sagnir 24 árgangur 04 27