Sagnir - 01.06.2004, Síða 30

Sagnir - 01.06.2004, Síða 30
HVER VER HÚN auknum mæli inn í landið. Steinunn og Inga Lára sóttu alþjóðaþing ICW árið 1920 í Osló og sögðu frá þingstörfum í 19. júní. Árið 1925 fóru þær Inga Lára, Kristín B. Símonarson, Laufey Valdimarsdóttir og Hólmfríður Árnadóttir alla leið til Washington á heimsþing ICW. Voru þær styrktar með ágóða af handavinnusýningu Banda- lagsins og styrk frá Alþingi. Inga Lára sagði ítarlega frá þessari ferð í tímaritinu Iðunni. Var þetta heilmikið ferðalag sem hófst á siglingu til Englands, þaðan til Kanada og endaði í Washington. Alþjóðastarf ICW hafði töluverð áhrif á umræðu kvenna hér á landi og sjást þess m.a. skýr merki í 19. júní.23 Fyrstu formannsskiptin innan Bandalags kvenna urðu svo árið 1925. Steinunn H. Bjarnason gaf ekki aftur kost á sér og var Inga Lára kosin formaður með öllum greiddum atkvæðum. Fyrstu mál sem Inga Lára lagði fram í formennsku sinni voru að skora á Al- þingi að undirbúa og leggja fram frumvarp um ekknastyrki og að fellt yrði úr lögum að konur gætu fremur en karlar skorast undan kosningu í nefndir eða stjórnir. Ári seinna á aðalfundi Bandalags kvenna var mikið rætt um aðild kvenna að hátíðarhöldunum 1930, í tilefni af þúsund ára afmæli Alþingis, og hvernig mætti efla bandalagið. Vakti Inga Lára máls á því hvort ekki ætti að beita sér fyrir því að saga kvenna frá landnámsöld til 1930 yrði rituð. Þessi tillaga var samþykkt að því tilskyldu að fé fengist en hefur líklega hlotið daufar undirtektir þar sem ekki var minnst á málið síðan.24 Næsti aðalfundur Bandalags kvenna var ekki haldinn fyrr en 1930. Þá átti að kjósa nýja stjórn en því var frestað. Næsti fundur var svo haldinn 1931 og mættu aðeins átta konur frá fimm kvenfé- lögum. Mikil lægð var í starfseminni þessi ár og voru greidd at- kvæði um hvort leggja ætti Bandalagið niður. Meirihluti kvenna greiddi atkvæði gegn þeirri hugmynd og var ákveðið að halda ann- an fund og auglýsa rækilega. Samkvæmt fundargerðabók sat Inga Lára ekki þennan fund og því voru það Laufey Vilhjálmsdóttir og Hólmfríður Árnadóttir sem að öllum líkindum skipulögðu næstu skref. Hólmfríður Árnadóttir og Ragnhildur Pétursdóttir tóku að sér sameiginlega formennsku og stefnt var að því að reyna að end- urvekja starfsemi félagsins.25 Á síðari hluta 3. áratugarins blómstraði húsmæðrastefnan og kvenfrelsismál urðu gífurlega óvinsæl. Kvennalistinn, þar sem Brí- et Bjarnhéðinsdóttir sat í efsta sæti, tapaði herfilega í kosningunum 1926 og 19. júní sem staðið hafði í ströngu við að svara öllum þeim áróðri sem á dundi gegn kvenréttindum hætti göngu sinni árið 1929. Þannig varð sífellt erfiðara að halda fram rétti kvenna til að velja sér lífsstarf og menntun er líða tók á 3. áratuginn og konur áttu bara að sinna hefðbundnu hlutverki sínu eins og „eðli" þeirra sagði til um. Þetta var mikil breyting frá því sem var að gerast ára- tuginn á undan. Lægðin í starfsemi Bandalags kvenna hlýtur að standa í beinu samhengi við það bakslag sem hafði orðið í kven- réttindabaráttunni.26 SETA INGU LÁRU í BÆJARSTJÓRN 1918-1922 OG LANDSKJÖRIÐ 1922 Konur stóðu fyrir sérframboðum á árunum 1908-1926. Þeirra fram- boð var kynbundið en þær vildu eignast eigin fulltrúa á stjórnmála- sviðinu, rétt eins og bændur, verkamenn o.fl. áttu sína fulltrúa. Stuttu eftir að konur fengu kosningarétt og kjörgengi til bæjarstjórnar í Hafnarfirði og Reykjavík fóru fram kosningar í Reykjavík 1908 og unnu konur þar stórsigur. Kvenfélögin í bænum höfðu sameinast um einn lista og komust allar fjórar konumar að en bæjarfulltrúar voru alls fimmtán. Konur buðu síðan fram sérlista í bæjarstjórnarkosning- um í Reykjavík árin 1910, 1912, 1914, 1916 og 1918.27 Fylgi kvenna- framboðanna í Reykjavík var mjög mikið árin 1908,1910 og 1912 en fór minnkandi 1914 m.a. vegna þess að nú var stéttapólitíkin að koma til sögunnar. Árið 1916 gekk formaður KRFÍ, Bríet Bjamhéðinsdótt- ir, inn í flokk Heimastjórnarmanna. Verkakvennafélagið Framsókn lýsti yfir stuðningi við verkamannalistann og kjósendur fylgdu þessari þróun eftir. Flokkapólitíkin sundraði þannig samstöðu kvenna.28 Kosningamar 1916 voru mikil vonbrigði fyrir konur. Kosið var um fimm bæjarfulltrúa og sat Inga Lára í fyrsta sæti á kvenfélagslistan- um en konur komu engum að. Verkamenn unnu mikinn sigur í kosningunum og komu þremur fulltrúum að. Var hinum íhalds- sömu stjórnmálafélögum mjög brugðið og í blöðum var konum kennt um hinn mikla sigur Alþýðuflokksins. Því var haldið fram að Inga Lára og Ragnhildur Pétursdóttir, sem setið hafði í öðru sæti á listanum, tilheyrðu sjálfstæðismönnum og hefðu því tekið atkvæði frá „pólitísku félögunum" og stuðlað að sigri andstæðinganna. Óþarfi hefði verið af konum að burðast með sérlista. Einhvers staðar varð að finna blóraböggul og því ekki að beina spjótum sínum að kon- um?1' í bæjarstjórnarkosningunum 1918 bauð Sjálfstjórn, félag borgara sem sameinuðust gegn alþýðuflokksmönnum, Bandalagi kvenna annað sæti á lista og tók Inga Lára það sæti. Kvenfélögin höfðu oft leitað samvinnu við aðra framboðsaðila í bænum en alltaf verið hafnað. Því var ekki óeðlilegt að þær samþykktu samvinnu við Sjálfstjórn sem nánast tryggði þeim fulltrúa í bæjarstjórn.30 í flokksblöðunum hafði Inga Lára ranglega verið staðsett með íhaldsöfl- um. Konur höfðu margsinnis reynt að ná samvinnu \dð karla en ekki tekist fyrr en þarna og því ekki óeðlilegt að þær hafi þegið boð Sjálfstjórnar. Kosið var um sjö bæjarfulltrúa 1918 og stóð keppnin milli Al- þýðuflokksins og lista Sjálfstjórnar, Borgaraflokksins. Alþýðu- flokksmenn gerðu óspart grín að borgarflokksmönnum fyrir að hafa leitað stuðnings kvenfélaganna. Kjörsókn var góð og atkvæði féllu nokkuð jöfnum höndum til Borgaraflokksins og Alþýðu- flokksins. Alþýðuflokkurinn fékk þrjá fulltrúa, Borgaraflokkurinn fjóra og komst Inga Lára að sem bæjarfulltrúi.31 Eftir bæjarstjórn- arkosningarnar í Reykjavík voru bæjarfulltrúarnir kosnir í nefndir og var Inga Lára kosin í fátækranefnd, leikvallanefnd og dýrtíðar- nefnd. Varpað var hlutkesti um hver af hinum sjö bæjarfulltrúum skyldi ganga út eftir tvö ár og upp kom hlutur Ólafs Friðrikssonar. Aftur var varpað hlutkesti um hver skyldi ganga úr bæjarstjórn eft- ir fjögur ár og kom þá upp hlutur Ingu Láru.32 Inga Lára tók sæti í nefndum sem féllu sannarlega undir hin kvenlægu málefni sem kvennalistarnir höfðu lofað að beita sér fyr- ir. Má þar sérstaklega nefna setu hennar í dýrtíðarnefndinni. Kon- ur voru almennt óánægðar með skipan í þær nefndir sem land- stjórn og bæjarstjórn höfðu komið á laggirnar til að mæta áhrifum styrjaldarinnar. Árið 1917 hafði KRFÍ boðað til almenns fundar í Bárubúð og mættu hátt á þriðja hundrað konur. Tillaga var samin til stjórnvalda þar sem þær mótmæltu þeirri ráðstöfun að gengið væri framhjá konum í skipan dýrtíðarnefnda og annarra nefnda er komu dýrtíðinni við.” Sú krafa kvenna: virtist sanngjörn og jafnvel meira en það þar sem öll aðföng og úrvinnsla á heimilum hvfldi á konum fyrst og fremst. Þeirri kröfu var hins vegar mætt með háði og jafnvel spotti... [Á] árinu 1918 var Inga Lára Lárusdóttir kjörin í dýrtíðarnefnd og Ragnhildur Péturs- dóttir í bjargráðanefnd. Kröfur kvenna frá árinu 1917 báru því ár- angur.34 í flokksblöðunum hafði Inga Lára ranglega verið staðsett með íhaldsöflum. Konur höfðu margsinnis reynt að ná samvinnu við karla en ekki tekist fyrr en þarna og því ekki óeðlilegt að þær hafi þegið boð Sjálfstjórnar. Inga Lára sat samt sem áður í bæjarstjórn sem fulltrúi Bandalags kvenna.35 Inga Lára skrifaði sjálf I blað sitt árið 1922 að hún hefði setið í bæjarstjórn fyrst og fremst sem full- trúi Bandalags kvenna og lengst af verið utan flokka.36 Hvaða póli- 28 SAGNIR 24 ÁRGANGUR '04 N G A L Á R A LARUSDÓTTIR T j M A
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108

x

Sagnir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.