Sagnir - 01.06.2004, Side 34
HVER VER
HUN
áhugamál kvenna rötuðu einnig á síður blaðsins t.d. heimilisiðnað-
ur og matargerð. Fastur liður var lítill bálkur með ýmsum ráðum
sem sneri mest að umönnun barna og heimilishaldi og þar mátti t.d.
finna handavinnuráð eða sparnaðaruppskriftir enda lá dýrtíðarok
millistríðsáranna þyngst á herðum húsmæðra. Siðferðismál voru
einnig meðal umræðuefna en það þótti vera hlutverk kvenna að
gæta siðferðis síns og annarra.26
Nokkur ljóðskáld voru fastagestir í blaðinu og má þar helst geta
Huldu, Maríu Jóhannsdóttur, Theódóru Thoroddsen og Ólafíu frá
Görðum. Þar að auki birtist þó nokkuð af erlendu efni í blaðinu,
þýddar smásögur og fréttir, flest eftir eða um þekktar kvenréttinda-
konur og þýddi Inga Lára líklega allt efnið sjálf. Erlenda efnið kom
helst frá nágrannalöndunum, Norðurlöndum og Englandi, og
snérist mikið af því um Alþjóðaráð kvenna, ICW, enda var Banda-
lag kvenna félagi í því. Fyrri heimsstyrjöldinni var ekki lokið er
blaðið hóf göngu sína og var stríðið oft gert að umræðuefni. Rætt
var um afleiðingar þess fyrir samskipti landanna, stöðu kvenna á
hinum opinbera vettvangi og fjallað var um aukna verslun með
konur og stúlkubörn.62
19. júní átti margt sameiginlegt með Kvennablaði Bríetar Bjarn-
héðinsdóttur og á þeirn árum sem bæði blöðin voru gefin út birtust
þýðingar úr sörnu erlendu kvennablöðunum. Lesa mátti sömu
fréttirnar og vitnað var í og sagt frá sömu persónunum, sérstaklega
þá frægum kvenréttindakonum s.s. Ellen Key og Selmu Lagerlöf.
Eftir að Bríet hætti útgáfu Kvennablaðsins við lok ársins 1919
skrifaði hún stöku sinnum í 19. júní enda var blaðið þá eini
málsvari kvenna í bænum.63 Segja má að 19. júní hafi verið eins
konar arftaki Kvennablaðsins og gaf Inga Lára Bríeti hvergi eftir
en þær þekktust vel. Inga Lára hafði t.d. skrifað í Kvennablaðið
áður en hún hóf útgáfu 19. júní og farið á Kvennaþing IWSA með
Laufeyju dóttur Bríetar.64 Inga Lára hafði einnig verið virk innan
KRFÍ áður en Bandalag kvenna var stofnað og sagði Bríet um
hana árið 1911 að það „væri vinningur ef hún gæti orðið kvenrétt-
indakona."65 Bríet og Inga Lára sátu á sama tíma í bæjarstjórn
1918-1922 og störfuðu saman í leikvallanefnd en einungis þær tvær
sátu í nefndinni.66 Þær voru samstarfskonur bæði í bæjarstjórn og
sem kvenfélagskonur. Utan þess var Bríet móðir og ól börn sín upp
ein eftir fráfall manns síns 1902.® Inga Lára tók aftur á móti að sér
annars konar uppeldi með kennslustörfum sínum. Þær áttu því
margt sameiginlegt og störfuðu að mörgu leyti að sömu málunum,
utan og innan bæjarstjórnar.
Tímaritið ber þess skýr merki að ritstýran var vel lesin um flest
málefni kvenna og kvennabaráttuna enda í stöðugu sambandi við
erlenda strauma. Þetta var þó ekki í fyrsta sinn sem hún kom að út-
gáfu tímarits því hún hafði oftar en einu sinni ritstýrt Mánaðarrit-
inu, blaði Lestrarfélags kvenna. Hún hafði góðan aðgang að bók-
um gegnurn það félag og jafnvel tækifæri til að velja sjálf þær bækur
sem pantaðar voru. Inga Lára ferðaðist líka mikið og fór t.d. marg-
sinnis til Norðurlanda eftir að námi hennar lauk í Svíþjóð.
19. júní var hápólitískt að öllu leyti. Er konur stóðu fyrir sérfram-
boði til kosninga eftir að blaðið hóf útgáfu árin 1918,1922 og 1926
var stór hluti blaðsins helgaður kosningaáróðri. Önnur pólitísk mál
fengu einnig sinn sess s.s. lagabreytingar er sérstaklega vörðuðu
konur. Ritstýran var mjög pólitísk í skrifum sínum og ekki ein-
göngu þegar kosningabaráttan var í fullum gangi heldur líka þess á
milli. Hún hélt m.a. uppi mikilli umræðu um nýju hjónabands- og
barnalöggjöfina sem sett var árið 1921, ójafnrétti í launamálum og
stöðu einstæðra mæðra og ekkna. Þar að auki lagði Inga Lára sig
einatt fram við að kynna afrek kvenna fyrir lesendum sínum og
birti langa pistla um einstakar konur, erlendar sem innlendar, sem
og þróun einstakra þátta í sögu kvenna. Skilaboðin voru skýr, kon-
ur vilja og geta.
Með útgáfu blaðsins var Ingu Láru efst í huga að sameina konur á
landsvísu og ljá þeim rödd til að tjá skoðanir sínar á hvaða málefni
sem var og ekki síst stöðu kvenna í þjóðfélaginu. Að hennar mati
biðu kvenna mörg málefni sem þörfnuðust þeirra sérstaka skiln-
ings þar sem starfsheimili þeirra væru nú orðin tvö: einkaheimilið
sem ríki konunnar og þjóðfélagsheimilið sem ríki kvenna og karla í
sameiningu. Hún hvatti kynsystur sínar til að fullnýta þau nýju rétt-
indi sem þær höfðu öðlast og sýna að konur væru fullfærar um að
takast á við hið nýja, opinbera hlutverk. Þetta markmið Ingu Láru,
að sameina konur, kom skýrt fram í fyrsta tölublaðinu.68
19. júní hóf göngu sína á erfiðum tíma, enn var barist á vígvöllun-
um og þeir tímar sem við tóku voru tímar skorts og neyðar. Blaðið
var lítið og efnið því takmarkað. Þar að auki valdi hún sér erfitt
viðfangsefni sem átti ekki upp á pallborðið hjá mörgum og því gat
blaðið aldrei orðið vinsælt. Erfitt reyndist að fá upplýsingar um
hversu víðlesið blaðið var en einhverjar upplýsingar er að finna í
blaðinu sjálfu. Virðist því hafa verið vel tekið í upphafi og það náð
góðri útbreiðslu í sumum sveitum landsins en skortur á skilvísi
C-lisiinn ev siguvvænlegastur.
A-listi B-listi x C-listi D-listi E-listi
Vw-nrdtir Þorvaröareon, bæjarfull- Reykjavik. j •Mjnbfir Friðjónsaon, bæjarfulltrúi, ttareyri. <i. GuðmundsBon, bókhaidari, i«rykjavik. A«| ' r.atanason, afgreiðalumaður, irykjavik. ^».*c;^Edur Jónaeon frá^Naríeyri, tA^pfjelagftstjóri, Stykkishóimi. n Jóhannsson, bókhaldari, 'wrhsörði. Jónas Jónsson, skólastjóri, Reykja- vik. Hallgrimur Kristinsson, foratjóri, Reykjavík. Sveinn Ólafsson, umboðömaður, Firði. Jón Hannesson, bóndi, DeildartUngu. Kristinn GuðlaugBson, bóndi, Núpi. Davlð Jónsson, bóndi, Kroppi. Ingibjörg H. Bjarnftson, skólaatjóri, Reykjavik. Inga L. Lérusdóttir, ritsijóri, Reyk- javik. HalJdóra Bjamadóttir, framkvæmd- aratjóri, Akureyri. Tbeodóra Thoroddsen, frú, Reykja- vlk. Jón Magnúason, fyrv. foreætisráð- herra, Reykjavik. Sigurður Sigurðason, ráðunautur Búnaðarfjel. Íahinds, Reykjavik. Sveinn Benediktsson, útgerðarmað- ur, Búðum i Fáakrúðgffrði. Páli Bergsson, kaupraaður, Hrisey. Sigurgeir JJlalason, verkstjóri, Hafn- arfirði. Sigurjón Jónason, afgreiðsiumaður, Íaafirði. Mágnús Blöndal Jónsson, prestur, Vallanesi. Þórarinn Kriatjánsson, hafnaretjóri, Reykjavik. Sigurður Sigurðsson, lyfaali, Vest- mannaoyjum. Siguröur E. Hliðar, dýralæknir, Akureyri. Eiríkur 1». Stefánsson, prestur, Torfaatöðum. Einar G. Einarason, útvegsbóndi, Garðhúsum.
Fjöldi óháðra karla styðja Cdhtann.
CAistinn er listi allra landsins kvenna. Kjósið hann.
O/istínn sigri. Þessvegna setjum við öll X við C. Cdistinn sigrar.
Auglýsing frá landslista kvenna fyrir landskjörið 1922.
32 5AGN18 24 árgangur 04 I H G A LÁRA LARUSDÓTTIR OG TÍMAR