Sagnir - 01.06.2004, Page 46
Hannes Hafstein og Klemens Jónsson
OG landritar
Þann 24. september árið 1903 skrifaði Alberti íslandsráðherra Hannesi Hafstein og bað
hann að sigla sem fyrst til Kaupmannahafnar til viðrœðna um málefni íslands. Hannes
var einn af leiðtogum Heimastjórnarflokksins og sigldi hann tafarlaust með gufuskipinu Lauru
til Kaupmannahafnar þar sem Alberti tilkynnti Hannesi þann 13. nóvember að konungur
hefði ákveðiö að útnefna hann fyrsta ráðherra íslands.
Heimastjórnarflokkurinn hafði þingmeirihluta á Alþingi en þar sem margir
þingmenn flokksins töldu sig kallaða til embættisins höfðu þeir ekki treyst sér
til þess að ákveða hver þeirra mundi hreppa hnossið.2 Enginn þeirra var ótví-
ræður foringi.3 Klemens Jónsson skrifaði Finni bróður sínum, prófessor í Kaupmanna-
höfn, daginn sem þing var slitið: „Ekkert hefur verið minnzt hér á ráðgjafaefni, enginn
þorir að hefja máls á því.“4 Því varð Alberti að velja „að eigin geðþótta" einn þeirra og
varð Hannes Hafstein fyrir valinu.5
Eitt af fyrstu verkefnum nýja ráðherrans var að velja næstæðsta embættismanninn,
landritarann. Landritaraembættið var nýtt og voru öll störf landritarans unnin í umboði
ráðherra. Ráðherra Islands þurfti oft að fara til Kaupmannahafnar „til þess að bera upp
fyrir konungi í ríkisráðinu lög og mikilvægar stjórnarráðstafanir" eins og stóð í stjórnar-
skránni. Á meðan var landritarinn staðgengill hans á fslandi og sat meira að segja á
þingi í hans stað en á ábyrgð ráðherra.6 Eitt þýðingarmesta starf landritara var að und-
irbúa frumvörp landsstjórnar sem lögð voru fyrir Alþingi.
Jafnframt var landritarinn forstöðumaður Stjórnarráðsins og hafði yfirumsjón með
skrifstofunum þremur. Þegar heimastjórn komst á lögðust m.a. amtmannsembættin
niður. Féllu þá ýmis fyrri störf amtmanna í hlut landritara, t.d. sá hann um að ganga frá
eignum ómyndugra og ólögráða erfingja og fór hann í eftirlitsferðir til sýslumanna og
bæjarfógeta til að athuga hvort embættisfærslur væru í lagi. Stjórnskipunarlögin frá
1903 gengu tryggilega frá því hvað gera skyldi ef ráðherra íslands létist í embætti en þá
„gegnir landritarinn ... ráðherrastörfum á eigin ábyrgð, þangað til skipaður verði nýr
ráðherra" stendur í 1. grein. Landritaraembættið var einstætt í sögu íslands. „Staða
landritarans var í raun og veru nokkuð einkennileg og óvenjuleg ... var hann eins konar
vararáðherra, en þó ópólitískur", segir í Stjórnarráðssögunni.7 En nýtt stjórnarfar var
að festa sig í sessi og því þýðingarmikið að annar æðsti embættismaður landsins sæti
ekki á þingi en væri áfram í embætti þótt ráðherraskipti yrðu. Landritarinn mundi öðl-
ast „vfðtæka þekkingu á landsmálum og ráða miklu um úrslit þeirra, enda þótt lítið
bæri á, vegna þess hvernig embættinu var hagað.“8
Hannes valdi Heimastjórnarmanninn Klemens Jónsson, sýslumann Eyfirðinga og
bæjarfógeta á Akureyri, sem landritara. Bréfaskipti Hannesar og Klemensar um ráð-
stöfun embættisins hafa varðveist og birtast hér í heild sinni, stafrétt og orðrétt.’ Vegna
ótryggra samgangna þorði Hannes ekki annað en að senda Klemensi tvö bréf, hið fyrra
skrifaði hann um borð í Lauru þegar skipið var statt í Firth of Forth rétt fyrir komuna
til Leith, hið síðara er hann var kominn til Reykjavíkur. Fyrra bréfið er dagsett 17. nóv-
ember 1903.
KÆRI VIN.
Eins og þú ef til vill þegar hefur frjett, fór jeg utan með „Lauru“ um daginn. Það var
eptir áskorun Albertis,10 eins og þú munt sjá í dönsku blöðunum, og var það erindi
hans, að fela mjer ráðherraembættið. Hann hafði ekki látið neinn vita um þetta, að
undanteknum Konunginum og Deuntzer,11 fyrr en eptir að hann hafði fengið telegram
ANNA AGNARSDÓTTIR
Fædd árið 1947. Hún er forseti
heimspekideildar Háskóla íslands.
44 SAGNIR 24 ÁRGANGUR 04
H A N N E S
HAFSTEIN O G KLEMENS