Sagnir - 01.06.2004, Síða 47
um að jeg væri kominn til Leith. Það er hjerumbil víst, að Valtýr12
gjörði sjer vonir fram til þess síðasta dags; þeir Björn Jónsson13 o. fl.
höfðu agíterað ákaft, án þess að fá bein afsvör, og hver má vita,
nema Valtýr hafi haft einhverja átyllu til vona sinna, eins og jeg síð-
an mun segja þjer munnlega. Þegar jeg kom til Hafnar var þegar
búið að staðfesta stjórnarskrána og fyrirkomulagslögin, og senda
þau heim með „Vestu“ með ordre til landshöfðingja14 um að birta
þau þannig, að þau öðlist gildi 1. febrúar næstkomandi. Það þarf því
að flýta öllu þannig, að nýja fyrirkomulagið yrði byijað þann dag.
Jeg var presenteraður fyrir Konunginum,15 sem accepteraði mig,
og hef jeg fengið officiel tilkynningu frá Alberti um, að Konungur
hafi ályktað að útnefna mig frá og með þeim degi að telja, er lögin
öðlast gildi. Jafnframt er mjer veitt umboð til að gjöra allt sem þarf
til þess að hin nýja stjórn geti tekið til starfs 1. febrjúar], þar með
talið að constituera16 embættismenn, ráða skrifstofulið o.s.frv.
Nú er hið fyrsta og merkasta sem fyrir liggur, að fá rjettan mann til
landritarastöðunnar, sem er sú afarmikilsvarðandi. Þjer mun ef til
vill vera kunnugt, að þar eru skiptar skoðanir, eins og gengur, og
einn heldur þessum fram, annar hinum.17 Jeg er enn og hef stöðugt
verið sömu skoðunar eins og jeg lauslega ljet í ljósi við þig í þing-
byrjun í sumar, að jeg kýs helst þig, og er því efni þessa brjefs að
spyija þig, hvort þú viljir takast landritaraembættið á hendur.
Ef þú, sem jeg fastlega vona, vilt sinna þessu, þá verður þú að
mæta mjer í Reykjavík í seinni hluta janúarmánuðar helst um það
leyti sem „Laura“ kemur því með henni kemur inventaríið í stjórn-
arskrifstofurnar. Við þurfum þá báðir að fara landveg, þú frá Akur-
eyri, jeg frá Isafirði, og trúi jeg ekki öðru en að við klárum það. Svo
verð jeg að sigla með „Lauru“ í feb[rúar] til að taka við, og fela þjer
allt heima. Jeg sendi þetta brjef með „Agli“ frá Höfn, en af því að
jeg þori ekki að treysta því absolut, að það skip komi á rjettum tíma,
mun jeg einnig senda expres til þín frá Reykjavík, og vona svari með
honum; jeg vona að þú látir það ekki verða til fyrirstöðu, þó að
landritarastaðan geti eigi samrýmst þingmennsku. - Svarið verð jeg
að fá til ísafjarðar, ef það mót von, er neitandi. Ella lætur þú sendi-
manninn fara beint til Reykjavíkur aptur og býst jeg við að hitta þig
þar, í síðasta lagi fyrir 1. febrúar. Ólafur Halldórsson, sem hefði átt
kost á ráðgjafaembættinu ef hann hefði viljað, heldur forstöðu skrif-
stofunnar í Höfn.18
í von um góða framtíð og góða samvinnu,
þinn einlægur vin
H Hafstein
[P.S.] Langbezt, að þú afhendir sýslumannsembættið11' definitivt,
áður þú fer[ð] suður. Amtm[aður]20 constituerar fyrst um sinn ein-
hvern.21 HH
Hannes kom til Reykjavíkur þann 24. nóvember. Tveimur dögum
seinna sendi hann eftirfarandi bréf með hraðboða norður til Akur-
eyrar. Tilgangurinn var sá sami, að bjóða Klemensi Jónssyni landrit-
araembættið.
GÓÐI VIN.
Jeg skrifaði þjer um daginn frá Leith brjef, sem átti að sendast
heim með „Agli“, og jafnvel þó að jeg voni að það brjef komist til
þín, þá þori jeg þó ekki annað en gjöra ráð fyrir því að kunni að mis-
farast eða tefjast, og sendi því hraðboða með bijef þetta, eins og jeg
gerði ráð fyrir í fyrra brjefinu.
Eins og þú munt hafa fijett sigldi jeg með „Lauru“ í f. m. Jeg var
boðaður til Hafnar af Alberti með samþfykki] konungs, og fjekk
brjef um það til ísafjarðar í f . m. Jeg kom aptur með Lauru í fyrra-
kveld og fer með henni vestur þessa daga.
Jeg var præsenteraður fyrir konungi af Alberti, og er nú svo kom-
ið að konungur hefur ákveðið að fela mjer ráðherraembættið frá og
með 1. febrúar næstkomandi, hvernig sem ykkur flokksbræðrum
mínum nú fellur það vel. Mjer eru engin skilyrði sett að neinu leyti,
og sá jeg ekki annað vænna en takast starfið á hendur. Jeg hef feng-
ið fullmakt til þess að gjöra allt sem gjöra þarf til þess tíma, til þess
að hið nýja fyrirkomulag geti komizt í framkvæmd, þar á meðal að
constituera embættismennina.
Það er nú efni þessa bréfs að spyrja þig, hvort þú viljir takast land-
ritaraembættið á hendur. Jeg hef þá tilfinning, að við munum geta
unnið saman; jeg vona að við getum lagst í átt í því að stuðla að friði
og reyna að efla landið.
Það er eitt atriði, sem þjer kann að þykja óviðfeldið, og það er
það, að landritarinn getur ekki setið á þingi, að minnsta kosti ekki
sem þjóðkjörinn. Um það munu allir vera samdóma. Þú yrðir því að
leggja niður þingmennskuna fyrir Eyjafjarðarsýslu, sem jeg veit að
er þjer kær; en áhrif þín á landsmál, starf þitt fyrir landið allt og öll
; position mundi eflast þá, er þú sætir í þessari æðstu stabil22 valds-
mannsstöðu, sem er sú mjög mikilsvarðandi, að ég vona að þú látir
það ekki verða til fyrirstöðu.
Ef þú, sem ég vona, tekst embættið á hendur, þá verð ég að biðja
þig að vera kominn til Reykjavíkur, ef þú mögulega getur, hinn 24.
janúar næstkomandi eða um það leyti. Jeg verð kominn hingað þá,
ef ég lifi, og ef til vill miklu fyrr. Það þarf margt að undirbúa og at-
; huga fyrir 1. febrúar, sem landritari þarf að vera með í. Með
Hannes Hafstein ráðherra.
„Lauru“ 6. febrúar fer ég aftur til Hafnar, og þá verður landritarinn
að taka við Administrationinni. Auðvitað mætti constituera mann
til bráðabirgða; en hitt væri betra.
Það væri bezt að þú afhentir embættið þeim, er settur verður fyrir
þig nyrðra þannig, að sá geti afhent það þeim, er tekur við eptir 1.
febrúar. Mjer finnst Júl. Sigurðsson23 eða Stephensen24 gætu vel
orðið notaðir til þess.
Frjettir skrifa jeg engar. Jeg hef sent Birni „fróða“25 útklippur úr
ófæddum Þjóðólfi með frjettum. Finnur bróðir þinn bað að heilsa
þjer. Brjef frá honum er innlagt.
Jeg bið þig að senda svar þitt til dr. Jónassens landlæknis,26 sem
geymir það þangað til jeg kem hingað. Ef þú getur komið brjefi
sem von er um að náði til ísafjarðar fyrir 6. jan[úar], þá sendir þú
mjer línu þangað. Annars er það naumast til neins. Ef þú skyldir
hafa nokkuð mjög áríðandi að segja mér, mætti ef til vill fá hrað-
boðann til þess að fara vestur.
o N
RÁÐHERRA OG
LANDRITARI sagnir 24 árgangur 04 45